Tíminn - 01.10.1988, Side 4
4 TH'minn
SINFONIUHLJOMSVEIT
ÍSLANDS
STARFSÁRIÐ 1988-1989
FYRRA MISSERI
ÁSKRIFTARTÓNLEIKAR
1
2
3
4
ÁSKRIFTARTÓNLEIKAR, 6. 0KTÓBER 5 ÁSKRIFTARTONLEIKAR, 3. DESEMBER
Stjórnandi: Petri Sakari Einleikarar: Foptenay-tríóið Leifur Þórarinsson: För 1988 Beethoven: Tríókonsertinn Sibelíus: Sinfónía nr. 1 Stjórnandi: Petri Sakari Einleikari: Salvatore Accardo Webern: Passacaglia Bruch: Fiðlukonsert Debussy: Síðdegi skógarpúkans Messiaen: L Ascension
ÁSKRIFTARTÓNLEIKAR, 20.0KTÓBER 6 ÁSKRIFTARTÓNLEIKAR, 5. JANÚAR
Stjórnandi: George Cleve Einleikari: Martial Nardeu Haydn: Sinfónía nr. 93 Þorkell Sigurbjörnsson: Flautukons- ert Carl Nielsen: Sinfónía nr. 4 Stjórnandi: Páll P. Pálsson Einleikari: Guðmundur Magnússon Mozart: Seranaða fyrir 10 blásara Beethoven: Píanókonsert nr. 1 Stravinsky: Sinfónía í C
ÁSKRIFTARTÓNLEIKAR, 3. NÓVEMBER 7 ÁSKRIFTARTÓNLEIKAR, 19. JANÚAR
Stjórnandi: Petri Sakari Einleikarar: Erling Bl. Bengtsson Nina Kavtaradze Tchaikovsky: Píanókonsert nr. 1 Tchaikovsky: Rococo tilbrigðin Tchaikovsky: Francesca da Rimini Stjórnandi: Frank Shipway Einleikari: Ralph Kirshbaum Áskell Másson: Impromptu Schubert: Sinfónía nr. 5 Dvorak: Sellókonsert
ÁSKRIFTARTÓNLEIKAR, 17. NÓVEMBER OO ÁSKRIFTARTÓNLEIKAR, 2. FEBRÚAR
Stjórnandi: Murry Sidlin Einleikari: Þorsteinn Gauti Sig- urðsson Mendelssohn: Ruy Blas Beethoven: Píanókonsert nr. 2 Shostakovitch: Sinfónía nr. 5 Stjórnandi: Petri Sakari Einleikari: Jónas Ingimundarson Einsöngvarar: llona Maros, Marianne Eklöf Beethoven: Píanókonsert nr. 3 Atli Heimir Sveinsson: Nóttin á herð- um okkar
TÓNLEIKAR UTAN ÁSKRIFTAR
13. OKTÓBER. 24. NÓVERMBER
TÓNLEIKAR ( SAMVINNU VID EINSÖNGVARA TÓNLIST ÚR VINSÆLUM SÖNGLEIKJUM
Stjórnandi: Anthony Hose Ýmsir höfundar: Úr ýmsum óperum. Stjórnandi: Murry Sidlin
26. OG 29. OKTÓBER 8. DESEMBER
[ BIENNAL TÓNLEIKAR AÐVENTUTÓNLEIKAR
Stjórnandi: Petri Sakari Einleikarar: Ungir norrænir tónlistarmenn Stjórnandi: Petri Sakari Sögumaður: Benedikt Árnason
10. NÓVEMBER 9. FEBRÚAR
AFMÆLISTÓNLIIKAR PÓLÝFÓNKÓRSINS ÓPERUARfUR 0G UÓÐASÖNGVAR
Stjórnandi: Ingólfur Guðbrandsson Stjórnandi: Petri Sakari Einsöngvari: Hermann Prey
mr
SALA ASKRIFTARSKIRTEINA
STENDUR YFIR
HÆGT ER AÐ PANTA ÁSKRIFTARSKÍRTEINIOG LAUSAMIÐA
SIMLEIÐIS MEÐ ÞVIAÐ GEFA UPP NÚMER Á GREIÐSLUKORTL
ATHUGIÐ ÓBREYTT MIÐAVERÐ FRÁ SÍÐASTA VETRI.
SINFÓNÍUHUÓMSVEIT ÍSLANDS,
GIMLIVIÐ LÆKJARGÖTU, SÍMI622255
Laugardagur 1. október 1988
'Tli inriiw* í t " -
Spurt er: „Viljiö þér leyfa hundahald í Reykjavík meö þeim skilyröum, sem
gilt hafa síðustu fjögur ár?“
Október 24.-30.:
Kosið um
hundahald
Gengið hefur verið frá fram-
kvæmd skoðanakönnunarinnar um
hundahald í Reykjavík dagana 24.-
30. október nk., sem borgarráð
hefur samþykkt. Hún er framkvæmd
í samræmi við reglur um undanþágu
frá banni við hundahaldi í Reykja-
vík, sem gilt hafa síðastliðin fjögur
ár í Reykjavík. Kosið verður í
anddyri Laugardalshallar og verður
kjörstaður opinn mánudag til föstu-
dags, kl. 16.00-19.00, en laugardag
og sunnudag kl. 14.00-20.00.
Kjörskrá verður sú sama og gilti
við forsetakosningar síðastliðið sum-
ar og atkvæðisrétt hafa þeir, sem á
kjörskránni eru, og eru orðnir átján
ára á síðasta degi kosningarinnar.
Vakin er athygli á, að kjörskráin
miðast við lögheimili 1. desember á
síðasta ári. Allar upplýsingar um
kjörskrá gefur Manntalsskrifstofa
Reykjavíkur, sími 18000.
Spurningin á kjörseðlinum er
þessi: „Viljið þér leyfa hundahald í
Reykjavík meðþeim skilyrðum, sem
gilt hafa síðustu fjögur ár?“
Helstu skilyrði eru eftirfarandi:
1. Leyfi til hundahalds er bundið
við nafn og heimilisfang eiganda og
er óheimilt að framselja það. Sé um
að ræða leyfi fyrir hund í sambýlis-
húsi þarf skriflegt samþykki sameig-
enda.
2. Skylt er að ábyrgðartryggja
hunda fyrir tjóni, sem þeir kunna að
valda.
3. Hundar eru færðir árlega til
hreinsunar.
4. Hundurinn skal vera merktur,
m.a. með heimilisfangi eiganda.
5. Bannað er að hleypa hundum
inn á tiltekin svæði, svo sem leikvelli,
svo og í almenningsfarartæki, sam-
komuhús og fleira. Sá sem leyfi
hefur skal sjá um að hundurinn valdi
ekki óþægindum eða óþrifnaði.
6. Ef sá sem leyfi hefur brýtur
gegn reglum um hundahald, getur
borgarráð svipt hann leyfi.
7. Hunda sem valda hættu, óleyfi-
lega hunda eða hunda sem ganga
lausir utanhúss skal taka úr umferð
og er heimilt að lóga hættulegum
hundum þegar í stað.
Að öðru leyti er vísað til sam-
þykktar um hundahald í lögsagnar-
umdæmi Reykjavíkur, nr. 385/1984,
sem liggur frammi á borgarskrifstof-
um, Austurstræti 16 og í Heilbrigðis-
eftirliti Reykjavíkurborgar, Drápu-
hlíð 14, og á kjörstað í anddyri
Laugardalshallar, meðan kosning
stendur yfir. JIH
Nýirembættismenn
sem forseti skipar
Forseti Islands skipaði þann 28.
september s.l. tvo nýja ræðismenn.
Þeir eru þau Sigrún K. Baldvinsdótt-
ir í Sidney í Ástralíu í stað dr. Jan
H. Barnett, sem látið hefur af emb-
ætti, og Gösta Christian Lundholm í
Gautaborg í Svíþjóð.
Þá hefur forseti íslands skipað
eftirtalda menn í embætti:
Erlendur Kristjánsson verður
deildarstjóri í menntamálaráðuneyt-
inu í stað Sigurðar J. Briem, - Bolli
Þór Bollason verður skrifstofustjóri
í fjármálaráðuneytinu, - Niels Árni
Lund verður deildarstjóri í landbún-
aðarráðuneytinu, - Gunnar H. Hall
verður skrifstofustjóri í Hagstofu
íslands í stað Ingimars Jónassonar,
og Ragnhildur Hjaltadóttir verður
skrifstofustjóri í samgönguráðuneyt-
inu. -sá