Tíminn - 01.10.1988, Page 20
20 Tíminn
Laugardagur 1. október 1988
Auglýsing
Stjórn Kvikmyndasjóðs ísiands hefur ákveðiö
að örva gerð kvikmynda fyrir börn með því að veita
nokkrum höfundum kvikmyndahandrita fyrir
barna- og unglingamyndir viðurkenningu fyrir
handrit sín. Viðurkenningin verður í formi fjárfram-
lags til frekari vinnslu handritanna, og ertil hennar
efnt í tengslum við „Markað möguleikanna", sem
haldinn verður hér á landi 17.-21. október n.k.
„Markaður möguleikanna" er haldinn að frum-
kvæði Norræna starfshópsins um börn og barna-
menningu, og verður fjallað þar um börn og lifandi
myndir. Þriggja manna dómnefnd, tilnefnd af stjórn
Kvikmyndasjóðs, mun lesa þau handrit sem
berast, og velja nokkur úr til viðurkenningar.
Handrit, eða handritsúrdrættir, eigi lengri en nemur
20 vélrituðum síðum, berist skrifstofu Kvikmynda-
sjóðs, pósthólfi 320, 121 Reykjavík, í lokuðu
umslagi ásamt dulnefni, og réttu höfundarheiti í
öðru lokuðu umslagi, eigi síðaren 15. janúar 1989.
Niðurstöður dómnefndar munu liggja fyrir 15.
febrúar 1989.
Kvikmyndasjóður íslands.
Styrkir til bifreiðakaupa
Tryggingastofnun ríkisins veitir hreyfihömluðum
styrki til bifreiðakaupa.
Nauðsyn bifreiðar vegna hreyfihömlunar skal vera
ótvíræð.
Umsóknir vegna úthlutunar 1989 fást hjá greiðslu-
deild Tryggingastofnunar ríkisins, Laugavegi 114,
Reykjavík, og hjá umboðsmönnum hennar um
land allt.
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember.
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahúsiö í Húsavík
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa nú þegar eöa eftir
samkomulagi./
Deildarstjóri óskast frá áramótum.
/
Húsavík er 2500 manna bær meö góöar samgöngur og
þjónustu, aðstööu til íþrótta og útivistar.
í sjúkrahúsinu er almenn deild, fæöingardeild og
langlegudeild, samtals 62 rúm.
Húsnæöi fyrir hendi. Hringið eða heimsækið okkur og
kanniö kjör og aðbúnað.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 96-41333.
Ur Útboð
IniXaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. Hitaveitu
Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í uppsetningu og
tengingu röra og tækja í stöðvarhúsi Nesjavalla-
virkjunar. Verkinu tilheyra undirstöður tækja, stál-
grindargólf auk pípulagna að og frá tækjum.
Þvermál röra er frá DN 50 og allt að DN 1200 mm
og er hluti þeirra úr ryðfríu stáli. Verktími er
nóvember 1988-mars 1990. Vettvangsskoðun á
Nesjavöllum 11. október n.k. kl. 14.00.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 25.000 skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
25. október kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
lilillllllHlllllllllllll MINNING llllllllllllll
Hlynur Ingi Búason
Fæddur 16. júní 1973
Dáinn 16. september 1988
„Hann Hlynur okkar lenti í bíl-
slysi í gærkvöldi og hann er dáinn.“
Þvílík harmafregn! Mig setti hljóðan
og vansæld og vanmáttarkennd gripu
mig. Af hverju hann? Aðeins örfá-
um stundum áður voru flestir úr
fjölskyldunni saman komnir eins og
venjulega í Skeiðaréttum. Nú ætlaði
Hlynur að fara með vinum sínum á
sinn fyrsta réttardansleik, ferð sem
aldrei var farin til enda. Ekki óraði
okkur fyrir því að þessi dagur yrði
okkar síðasta samverustund.
Hlynur var okkur sérstaklega
hjartfólginn og í honum sáum við
fyrirmynd alls þess sem foreldrar
óska sér í fari sonar. Hann var
sérstaklega barngóður og nutu dætur
okkar þess í ríkum mæli.
Allt frá því Hlynur komst á legg
þá dvaldi hann í sveit á sumrin hjá
ömmu og afa á Votumýri.
Hann lagði sérstaka rækt við sveit-
ina og var þar eins oft og hann gat í
frístundum sínum. Þar hafði hann
fjórhjólið sitt sem hann hafði mikla
unun af.
Sjaldan eða aldrei er varnarleysi
mannsins jafn augljóst og á stundum
sem þessum þegar fólk er hrifið á
brott fyrirvaralaust. Stærstur er
missir foreldra og systkina. Elsku-
legri og betri son og bróður er vart
hægt að hugsa sér enda mun vand-
fyllt það tómarúm sem hann skilur
eftir sig.
Elsku Halla, Búi, Eli'n Hrund og
Eiríkur Steinn. Megi algóður guð
styrkja ykkur í ykkar miklu sorg en
höfum hugfast að Hlynur gerði
heiminn og tilveruna betri með tilvist
sinni þótt hún yrði allt of stutt.
Hafi elsku Hlynur þökk fyrir alt.
Far þú í friði,
friður guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem).
Guðni og Helga
Laugardaginn 17. september sl.
fréttum við að elskulegur frændi
okkar hann Hlynur Ingi hefði verið
tekinn frá okkur í hörmulegu slysi.
Hann var lífsglaður og hamingju-
samur 15 ára strákur sem var í blóma
lífsins og átti allt lífið framundan.
Hann var hjálpfús á allan hátt og oft
var gaman að þeim uppátækjum sem
hann fann uppá. Við áttum margar
góðar stundir í sveitinni hjá ömmu
og afa og einnig hér heima. Við
viljum með þessum orðum kveðja
hann Hlyn okkar hinstu kveðju og
um leið votta hans nánustu okkar
dýpstu samúð, þó sérstaklega for-
eldrum hans Höllu og Búa og syst-
kinum þeim Elínu Hrund og Eiríki
Steini. Megi þessum yndislega
frænda okkar líða vel þar sem hann
er núna.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja,
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðasta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði.sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem).
Ruth og Ásgerður
Hve sæl, ó, hve sæl
er hver leikandi lund.
En lofaðu engan dag
fyrir sólarlags stund.
Hve sæl, ó hve sæl
er hver leikandi lund.
Og lukkan hún er eilíf,
þótt hverfi um stund.
- B.S. Ingemann. - Matth.Jochumsson.
Fregnin um að hann Hlynur vinur
okkar og frændi hafi látist af slysför-
um þann 16. september sl. kom eins
og reiðarslag og eftir stöndum við
hnípin og vanmáttug.
Það er sárt að kveðja góðan vin og
orð eru einskis megnug að manni
finnst. En það eru nú einmitt orðin
og gerðir sem gera lífið svo mikils-
vert. Þannig var það með Hlyn.
Hann lét engan í friði, hafði óstöðv-
andi lífslöngun sem hann deildi með
öllum sem hann umgekkst.
Sem oft áður vorum við saman í
sveitinni. Við höfðum ákveðið að
fara í réttirnar með litlu krílin og
Hlynur var friðlaus þar til hann hafði
fengið far með okkur austur löngu
áður. Hann varð að komast sem
fyrst því hann hafði öðrum skyldum
að gegna, hann þurfti að fara á
handboltaæfingu á laugardag og
koma aftur austur síðdegis. Honum
stóð á sama þótt hann sæti þröngt á
milli barnastóla og hefði eitt í fang-
inu. Hann var einn af stóru strákun-
um sem alltaf var talinn upp ef á einn
var minnst.
Þegar við reyndum að útskýra
fyrir henni Berglindi okkar 3ja ára,
að Hlynur væri hjá Guði svaraði
hún: Er Guð líka hjá strákunum.
Hann fór í sund með strákunum,
fékk Tryggva og Ágústu til að koma
með sér út á bakka, tína maðk og
fara að veiða. Fara á skauta og
skíði, síðast en ekki síst að fylgjast
með ólympíuleikunum, svona var
hann Hlynur okkar, fullur atorku.
Það er undarlegt og jafnframt
mikil gleði að fá að fylgjast með
æskunni og forréttindi að fá að
DAGVIST BARNA
;;
Fóstrur, þroskaþjálfar
áhugasamt starfsfólk!
Dagvist barna, Reykjavík, óskar eftir starfsfólki
í gefandi störf á góðum vinnustöðum.
Til greina koma hlutastörf bæði fyrir og eftir
hádegi. Upplýsingar veita forstöðumenn eftirtal-
inna dagvistarheimila, og skrifstofa Dagvistar
barna, sími 27277.
Vesturbær - Miðbær
Valhöll Suðurgötu 39 s.19619
Ægisborg Ægissíðu 104 s. 14810
Austurbær
Langholt Dyngjuvegi 18 s. 31105
Nóaborg Stangarholti 11 s. 29595
Skóladagheimilið Auðarstræti 3 s. 27395
Stakkaborg Bólstaðarhlíð38 s. 39070
Breiðholt
Hálsakot Hálsaseli 29 s. 77275
Iðuborg Iðufelli 16 s. 76989
Seljaborg v/Tungusel s. 76680
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Fósturheimili
óskast!
Fósturheimili óskast fyrir börn á skólaaldri og
börn með sérþarfir.
Þeir sem hafa áhuga, hringi í Félagsmála-
stofnun Reykjavíkurborgar, fósturdeild, sími
25500.
IÐNSKOUNN f REYKJAVÍK
Námskeið
fyrir hársnyrtifólk verður haldið í Iðnskólanum í
Reykjavík dagana 8.-10. október n.k.
Nánari upplýsingar veita Sigrún Magnúsdóttir og
Jónína Jónsdóttir í síma 26240 milli kl. 9 og 12.
Iðnskólinn í Reykjavík.