Tíminn - 14.04.1989, Síða 12
12 Tíminn
Föstudagur 14. apríl 1989
FRÉTTAYFIRUT
KABÚL — Afganskir her-
menn berjast nú til þess aö
opna aö nýju hinn mikilvæga
Salang þjóöveg sem liggur frá
Kabúl til Sovétríkjanna.
Skæruliðar náöu aö loka þess-
ari leið í síðustu viku og er
takmark þeirra að veikja varnir
Kabúlborgar meö því aö svelta
fólk inni. Sovétmenn hafa sent
matarbirgðir og hjálpargögn
1 eftir þessari leið.
NIKOSIA — Byltingarverðir
hafa handtekiö son og tengda-
son Aijatollah Hossein Ali
Montazeri sem útnefndur hafði
verið eftirmaður Khomeini erki-
klerks, en var þvingaður til að
gefa þá útnefningu upp á bát-
inn eftir harða valdabaráttu.
Montazeri var ekki eins hroða-
lega öfgafullur og Khomeini og
eldheitustu stuðningsmenn
hans.
MOSKVA — Pravda mál-
gagn sovéska kommúnista-
flokksins hvatti þá er biðu lægri
hlut í kosningunum í síðasta
mánuði að gera annað tveggja,
hætta í stjórnmálum eða að
taka upp umbótastefnu í anda
Gorbatsjof. Var þessu sérstak-
lega vísað til háttsettra með-
, lima kommúnistaflokksins sem
féllu í kosningunum.
SEOUL — Moon Ik-hwan 71
árs prestur var handtekinn er
hann kom heim til Suður-Kóreu
úr ólöglegri heimsókn til Norð-
ur-Kóreu þar sem hann ræddi
við ráðamenn um frið. í Suður-
Kóreu eru í gildi sérstök lög
sem banna kommúnisma og
samskipti við hið kommúníska
ríki í norðri.
LIMA — Vinstri sinnaðir
skæruliðar myrtu tíu manns í
árás á þorpið Pantarpata í
Ayacuchohéraði. Þeir rændu
síðan og brenndu hús í þorp-
inu. Þá var leiðtogi í æskulýðs-
samtökum stjórnarflokksins í
Perú myrtur.
KAIRÓ — Hosni Mubarak
forseti Egyptalands hvatti
landsmenn sína að skrúfa ör-
lítið fyrir kranann og draga úr
barneignum. Hann sagði að ef
Egyptar hættu ekki að eignast
átta til tólf börn hver hjón muni
matarskortur blasa við. Þetta
segir Hosni í tilefni þess að
vöruskortur og atvinnuleysi er
nú að þjaka Egypta.
llillllllllllllllllllll ÚTLÖND
Blóðbað á Vesturbakkanum:
Israelska landa-
mæralögreglan
myrðir sex Araba
ísraelska landamæralögreglan
sem send var til hernumdu svæðanna
til að draga úr ofbeldi skaut að
minnsta kosti sex Palestínumenn til
bana og særði fimmtán í árás á
palestínska þorpið Nahalin á Vestur-
bakkanum í morgunsárið í gær.
íbúar þorpsins sem er rétt utan við
Betlehem segja að árás iögreglunnar
hafi verið hrein og bein fyrirfram
skipulögð fjöldamorð.
Þorpsbúar segja að nokkrir jeppar
hlaðnir vopnuðum hermönnum og
síðskeggjuðum strangtrúuðum Gyð-
ingum sem tekið hafa sér bólfestu á
hernumdu svæðunum hafi komið
inn í þorpið rétt fyrir dagrenningu.
Þá sátu þorpsbúar að snæðingi þar
sem músltmar mega ekki snæða að
degi til í hinum helga föstumánuði
Ramadan sem nú stendur vfir.
-Þeir drógu fók út úr húsum sínum
og hófu skothríð á það, sagði einn
þorpsbúa í símtali við fréttamann
reuters.
Fréttir af þessum hroðaverkum
komu af stað átökum milli Palestínu-
manna og ísraelskra hermanna og
lögreglu í Betlehem, Beit Jalla og
Beit Sahour. Unglingar brenndu
hjólbarða, komu upp götuvígum og
grýttu ísraelskar bifreiðar.
Útgöngubann hefur verið sett á
þessum slóðum og er fréttamönnum
meinaður aðgangur að þeim. Svo
undarlega vill til að tólf klukku-
stundum eftir atburðina í Nahalin
höfðu ísraelsk yfirvöld ekki gefið út
yfirlýsingu vegna atburðarins.
Þó þessi ísraelski hermaður spjalli létt við aldinn Palestínumann, þá var því
ekki að heilsa í Nahalin þar sem ísraelar skutu 6 Araba til bana.
Samstaða fær
löggildingu
Verkalýðssamtökin Samstaða
leituðu eftir löggildingu í Póllandi
í gær, en starfsemi samtakanna
hefur verið bönnuð í sjö ár, eða
allt frá því Jaruzelski hershöfð-
ingi setti herlög á árið 1981. Lech
Walesa leiðtogi Samstöðu sagðist
telja að Samstaða fái löggildingu
á mánudaginn í samræmi við ný
lög sem pólska þingið Sejm sam-
þykkti í síðustu viku. Samkomu-
lagið var afurð átta vikna við-
ræðna stjórnarandstöðunnar og
ríkisstjórnarinnar í Póllandi og
gerir ráð fyrir efnahagslegum og
stjórnarfarslegum umbótum í
Póllandi.
Samstaða var á sínum tíma
fyrstu óháðu verkalýðssamtökin
í austantjaldsríkjunum. Þau eru
nú aðili að samkomulagi sem
gerir ráð fyrir að stjórnarandstað-
an hljóti þriðjung þingsæta í
Sejm, sem í framtíðinni mun
verða neðri málstofa. Kommún-
istaflokkurinn mun skipa hin
sætin. Hins vegar verður stofnuð
ný 100 manna öldungadeild, eða
efrideild og mun verða kosið til
hennar í algerlega frjálsum kosn-
ingum.
Hin nýja öldungadeild mun
verða fyrsta algerlega lýðræðis-
kjörna þingdeild kommúnista-
ríkjanna í Austúr-Evrópu.
Kosningar til þessara þingsam-
kunda fara fram 4. og 18.júní í
sumar. Frá þessu var skýrt í gær.
Löggan í London
skýtur ræningja
Lögreglan í London drap tvo
vopnaða ræningja og særðu þann
þriðja eftir að mennirnir gerðu mis-
heppnaða póstránstilraun á Rayners
Lane í austurhluta London.
Mennirnir þrír óku bifreið sinni á
ranga hurð og komu að tómum
kofanum í pósthúsinu sem þeir
hugðust ræna. Þeir flúðu því í dauð-
ans ofboði, en lögreglan komst á
slóð þeirra.
Til skotbardaga kom á milli lög-
reglu og glæpamannanna í íbúða-
hverfi með fyrrgreindum afleiðing-
um. Einn lögreglumaður særðist í
átökunum.
Sýrlenskir þyrluflugmenn ráðast ekki á garðinn þar
sem hann er lægstur:
Skutu eldf laugum
á sovésk herskip
Kynþáttaólgan í Júgóslaviu:
550 voru teknir
fastir í Kosovo
Tvær sovéskar freigátur sem voru
á siglingu á austanverðu Miðjarðar-
hafi 39 sjómílur frá sýrlensku hafnar-
borginni Tartus urðu fyrir óvæntri
árás í gær þegar tvær sýrlenskar
herþyrlur, smíðaðar í Sovétríkjun-
um, gerðu eldflaugaárás á skipin.
Sjö sjóliðar særðust og er tveimur
þeirra varla hugað líf. Sýrlensk
stjórnvöld hafa beðið Sovétmenn
afsökunar á árásinni sem Sýrlending-
ar segja hafa verið hræðileg mistök.
Árásin kom eins og skrattinn úr
sauðaleggnum fyrir sovésku sjólið-
ana því samkipti Sýrlendinga og
Sovétmanna hafa verið með ein-
dæmum indæl enda fá Sýrlendingar
flest vopn sín frá Sovétríkjunum og
sovéskir hernaðarráðgjafar hafa ver-
ið Sýrlendingum til halds og trausts
um áraraðir. Þá er rétt rúmur mán-
uður frá því að Eduarde Sévardna-
dse utanríkisráðherra Sovétríkjanna
var í opinberri heimsókn í Sýrlandi
þar sem vel fór á með honum og
Assad forseta.
Gennady Gerasimov talsmaður
utanríkisráðuneytis Sovétríkj anna
skýrði frá því í gær að sameiginleg
rannsóknarnefnd Sovétmanna og
Sýrlendinga hafi verið sett á fót til að
rannsaka málið. Hann sagði nokkuð
ljóst að flugmönnum þyrlanna hafi
orðið á hrikaleg mistök, en ekki sé
enn vitað hvað hafi valdið þeim.
Lögreglan í Júgóslavíu handtók
550 albanska menn í kjölfar hinna
blóðugu kynþáttaátaka í Kosovo-
héraði í síðasta mánuði. Frá þessu
skýrði Dragan Sapjonic dómsmála-
Pan Am þotan sem sprengd var
í loft upp yfir Skotlandi:
Saklaus farþegi hélt á
sprengju hryðjuverkamanna
Það var saklaus bandarískur
farþegi sem hélt á sprengjunni sem
grandaði bandarísku Pan Am
breiðþotunni yfir Skotlandi í des-
ember síðastliðnum. Þá er talið að
Palestínumaðurinn Hafez Dalk-
amoni sem er meðlimur í einum
öfgafyllstu skæruliðasamtökum
Palestínumanna hafi skipulagt til-
ræðið. Þetta kemur fram í skýrslu
FBI bandarísku Alríkislögreglunn-
ar, en menn á hennar vegum hafa
rannsakað tildrög sprengjutilræðis-
ins.
Sprengjunni var að líkindum
komið fyrir í Toshiba segulbands-
tæki sem ættingi Hafez Dalkamoni
bað saklausan bandarískan farþega
að taka með sér í vélina. Það
kostaði farþegann lífið ásamt 269
öðrum.
ráðherra Serbíu í gær.
Tuttugu og fjórir menn, þar af
tveir lögreglumenn, voru drepnir í
átökunum í Kosovo sem vöruðu
meira og minna í sex daga.
Hermenn hafa haldið uppi lögum
og reglu frá því að um hægðist , en
mikil ólga ríkir þó enn undir niðri
meðal hinna 1,7 milljón Albana sem
búa í Kosovo eftir að Serbar, sem
eru ekki nema 200 þúsund í Kosovo,
hafa fengið aukna íhlutun í stjórn
héraðsins. Albanir í Kosovo hafa
haft nokkuð mikla sjálfstjórn frá því
1974 þegar Tító kom á fót sjálf-
stjórnarhéruðum í Kosovo og Vovj-
odina þar sem mikill meirihluti
manna eru Slóvanar. Héruðin eru í
raun hluti Serbíu, en Tító vildi með
þessu jafna valdahlutfallið í Júgó-
slavíu, en Serbía var langstærsta
lýðveldið í sambandslýðveldinu.
VEISTU ...
að aftursætið
fer jafnhratt
og framsæUð.
SPENNUM BELTfN
hvar sem við sitjum
í Mnum.
yUMFEROAB
RAO