Tíminn - 04.05.1989, Síða 3
Fimmtudagur 4. maí 1989
Tíminn 3
100 millj. kr.
hagnaður hjá
Olíufélaginu
Á aðalfundi Olíufélagsins hf. í arins. Þar kom einnig fram að fjár-
gær kom fram að rétt um eitt
hundrað milljón króna hagnaður
eftir skatta varð af rekstri félagsins
og dótturfyrirtækja þess á liðnu ári.
Vörusala Olíufélagsins árið sem leið
var 4.367,7 milljónir, að frádregnum
söluskatti og sölulaunum. Brúttósala
félagsins var 5.093 milljónir, og
jókst hún um 19,86% frá árinu á
undan. Hlutdeild félagsins í heildar-
sölu í landinu á bílabensíni og
brennsluolíum nam 45,28%. Á árinu
voru að meðaltali 280 starfsmenn
hjá félaginu, miðað við heilsársstörf.
Launagreiðslur og tengd gjöld voru
408 milljónir.
Þetta var meðal þess sem fram
kom í skýrslum þeirra Kristjáns
Loftssonar stjórnarformanns og Vil-
hjálms Jónssonar forstjóra til fund-
magnsmyndun frá rekstri hjá Olíu-
félaginu og dótturfyrirtækjum var
342,4 milljónir árið sem leið, og
eigið fé þeirra í árslok var 2.169,1
milljón. Hækkaði það um 303 millj-
ónir á árinu, og var eiginfjárhlutfall
á efnahagsreikningi 58,3% um ára-
mótin. Hlutafé í Olíufélaginu er nú
348,8 milljónir, en það var hækkað
á liðnu ári um 20% með útgáfu
j öfnunarhlutabréfa.
Fundurinn samþykkti að greiða
10% arð af hlutafé, og er það sama
arðgreiðsla og var á síðasta ári.
Einnig samþykkti fundurinn að
hækka hlutafé félagsins enn um
20%, þannig að það yrði að því
loknu 418,6 milljónir króna.
í stjórn Olíufélagsins hf. voru
kosnir þeir Karvel Ögmundsson,
Vilhjálmur Jónsson forstjóri á aðal-
fundi Olíufélagsins hf. í gær.
Tímamynd: Pjetur
Kristján Loftsson, Magnús Gauti
Gautason, Oddur Sigurbergsson og
Sigurður Markússon. -esig
Nokknr af flugkennurum og eigendum Vesturflugs við eina af kennsluvéium flugskólans fyrir utan höfuðstöðvarnar
á Reykjavíkurflugvelli. Talið frá vinstri Örn ísleifsson, Stcfán P. Þorbergsson, Hörður Hafsteinsson og Þorsteinn
Guðmundsson. Tímamynd: Árni Bjama
jr Flugkynningardagur hjá Vesturflugi:
Utsýnisflug og
fallhlífarstökk
Flugskólinn Vesturflug hf. stend-
ur fyrir opnu húsi í dag til kynningar
á starfsemi sinni og gefst fólki kostur
á að fara í útsýnisflug á ýmiskonar
flugvélum og þyrlu. Þá verður Fall-
hlífarklúbbur Reykjavíkur með
kynningu á fallhlífarstökki. Opnað
verður klukkan 10.00 og stendur
kynningin fram eftir degi, allt eftir
veðri og áhuga fólks, en áætlað er að
kynningin standi til klukkan 18.00.
Stefán P. Þorbergsson yfirkennari
hjá Vesturflugi sagði í samtali við
Tímann að tilgangurinn með þessum
flugdegi væri að kynna flugkennsl-
una hjá skólanum og gefa fólki kost
á að fara í útsýnisflug og sýnishorn
af kennslu. „Þá verður Magnús
Nordal flugstjóri með listflugvél sína
á svæðinu og býður fólki að skreppa
í smá hopp og taka nokkrar bakfalls-
lykkjur,“ sagði Stefán. Einnig verð-
ur Albína Thordarson með stærri
þyrluna sína á staðnum og býður
fólki í þyrluflug. Félagar úr Fallhlíf-
arklúbbi Reykjavíkur ætla að hafa
kynningu á fallhlífarstökki og klukk-
an 15.00 verður sýningarstökk yfir
svæðinu. „Svo er annað sem þeir
hafa upp á að bjóða líka og það er
að þeir ætla að leyfa fólki að taka
þátt í fallhífarstökki. Þeir eru með
eina körfu og geta tekið einn og einn
farþega í einu og stokkið með hann,“
sagði Stefán. Þá verður Leiguflug
Vals Andersen í Vestmannaeyjum
einnig með kynningu á starfsemi
sinni.
Stefán sagði að fyrir utan þetta
yrðu myndasýningar og kaffiveiting-
ar fyrir þá sem kæmu. Vesturflug
hélt slíkan dag í fyrra, og sagði
Stefán að undirtektirnar þá hefðu
verið hreint ótrúlegar, troðfullt hefði
verið út úr dyrum fram undir kvöld.
í dag verða þrjár tveggja sæta
vélar í notkun, tvær fjögurra sæta,
ein sex sæta og ein sjö manna flugvél
til að anna útsýnis- og kynningarflug-
inu, fyrir utan þyrlu Albínu.
Flugskólinn Vesturflug var stofn-
aður fyrir um fimm árum af flug-
áhugamönnum og flugkennurum.
Vesturflug hefur að jafnaði fjórar
kennsluflugvélar í notkun í einu,
auk tveggja annarra til kennslu í
blindflugi og vél til útsýnis- og leigu-
flugs. Skólinn er alhliða flugkennslu-
skóli, með kennsluréttindi til einka-
flugmanns, verkleg atvinnuflug-
mannsréttindi og kennsluréttindi til
bóklegs og verklegs blindflugs. Stef-
án sagði að fjölmargir væru að læra
flug í dag og hjá þeim væru líklega
um 30 nemendur sem kæmu í nær
öllum frítíma sínum, en aðrir viku-
lega eða sjaldnar í mánuði.
Flugskólinn Vesturflug er til húsa
á Reykjavíkurflugvelli, Skerjafjarð-
armegin. -ABÓ
■
vanta í þetta sinn!
Leikandi og létt! Upplýsi:
& É
:. 1 |
L