Tíminn - 04.05.1989, Qupperneq 4
4 Tíminn
E^CJRr ÁRIVIÚLA TT SIIVII 681500
HEKK-
KLIPPUR
BENSIN- OG
RAFKNÚNAR
VOR í GARDINUM
SKRIFSTOFA ALÞINGIS
Staða forstöðumanns
tölvumála Alþingis
er laus til umsóknar
Starfssvið: Umsjón með tölvukerfi Alþingis, þróun
tölvuvæðingar og þjónustu við notendur.
Tæki: Wang VS-7010 tölva (4MB minni, 900 MB
diskrými) ásamt um 50 einmenningstölvum (Wang
og Macintosh), sem verið er að raðtengja.
Verkefni: Helstu verkefnin eru ritvinnsla, útgáfa
(WP -(- ritvinnsla, prentsmiðjusamskipti og einka-
útgáfa) og vinnsla gagna starfsemi Alþingis (PACE
gagnagrunnur).
Umsóknarfrestur er til 15. maí n.k. og er æskilegt
að umsækjandi gæti hafið störf sem allra fyrst.
Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Alþingis, sími 11560.
Lögtök
Eftir kröfu gjaldheimtustjórans í Reykjavík og að
undangengnum úrskurði verða lögtök látin fara
fram án frekari fyrirvara á kostnað gjaldenda, en
ábyrgð Gjaldheimtunnar, að átta dögum liðnum frá
birtingu auglýsingar þessarar, fyrir eftirtöldum
gjöldum:
Vanskilafé, álagi og sektum skv. 29. gr. laga nr.
45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 14.
gr. laga nr. 90/1987 fyrir 1 .-3. greiðslutímabil 1989
með eindögum 15. hvers mánaðar frá febrúar
1989 til apríl 1989.
Reykjavík 2. maí 1989
Ðorgarfógetaembættið í Reykjavík.
Verkstæðissala
Hornsófar og sófasett á heildsöluverði.
Bólsturverk,
Kleppsmýrarvegi 8. Sími 91-36120.
Um 462 milljónir í eftirlaunasjóði 140 starfsmanna Seðlabankans:
Fimmtudagur 4. maí 1989
v, i1 u».|i»,i.i.uurr"=
Síðustu snjóskaflarnir eru nú á undanhaldi á höfuðborgarsvæðinu og margt
forvitnilegt kemur í Ijós eins og sést á þessari mynd. Trabanteigandi í Árbæjarhverfi
getur nú bráðlega farið að vitja um bílinn sinn þar sem farið er að sjást í hann eftir
fjögurra mánaða veru í skaflinum. vmamynd: Ámi Biama
Seðlabankajón
er séra Jón í
lífeyrismálum
„Til að mæta þeirri skuldbindingu sem hvílir á (Seðla)bank-
anum vegna eftirlaunasjóðs starfsmanna hefur bankinn Iagt
til hliðar 462 m.kr. í árslok 1988“, segir m.a. í skýringum með
ársreikningi Seðlabankans. Þar af nam sérstakt lífeyrisfram-
lag bankans um 216 milljónum króna á árinu 1988. Greiðslur
bankanna í eftirlaunasjóði starfsmanna sinna eru athygiivert
dæmi um það, hve gamla máltækið um Jón og séra Jón er
ennþá í fullu gildi á sumum sviðum.
Seðlabankinn bendir á, að sam-
kvæmt síðustu áætlun trygginga-
fræðings hafi lífeyrisskuldbindingar
bankans vegna starfsmanna verið
samtals 462 milljónir króna í árslok
1987. Miðað við rúmlega 140 menn
í fullu starfi svarar þessi upphæð til
nær 3,3 milljóna króna skuldbind-
inga að meðaltali á hvem
starfsmann.
Til þess að tryggja álíka vel af-
komu á elliárum fyrir hina 125 þús.
„Meðaljóna" á íslenska vinnumark-
aðnum hefðu eignir lífeyrissjóðanna
þurft að nema rúmlega 410 milljörð-
um á sama tíma.
Mikið vantaði hins vegar þar á,
því í árslok 1987 voru heildareignir
allra lífeyrissjóða landsins (að eftir-
launasjóðum bankanna meðtöldum)
rúmlega 50 milljarðar króna, þ.e.
aðeins rúmlega 400 þús.kr. á „Með-
aljóninn", eða einungis um 12% af
skuldbindingum Seðlabankans
vegna hvers „Seðlabankajóns".
Þótt lífeyrissjóður „Meðaljóns“
hafi síðan hækkað upp í um 560 þús.
með rúmlega 70 milljarða kr. heild-
areign lífeyrissjóðanna um síðustu
áramót, virðist ljóst að miklu þarf
hann þar við að bæta ef hann á að
geta gert sér von um lífeyri að
nokkru gagni þau u.þ.b. 10 ár sem
„Meðaljón“ lifir eftir að lífeyrisaldri
er náð.
Sé hins vegar gert ráð fyrir að
eftirlaunaréttindi „Seðlabankajóns"
hafi hækkað úr 3,3 í 4 milljónir að
meðaltali á s.l.ári - og síðan að hann
eigi eftir að tvöfalda þann rétt sinn á
síðari hluta starfsævinnar (í 8 millj-
ónir á núvirði) ætti „Seðlabankajón"
væntanlega að vera laus við alvarleg-
ar fjárhagsáhyggjur á elliárunum.
Þegar tekið er mið af því að
lífeyrisréttindi opinberra starfs-
manna munu almennt svipuð og hjá
bankámönnum virðist á hinn bóginn
umhugsunarverð staðreynd fyrir
skattgreiðendur landsins, að hrein
eign Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkis-
ins í árslok 1987 var aðeins 7 millj-
arðar króna - þ.e. aðeins 15 sinnum
hærri upphæð heldur en í eftirlauna-
sjóði starfsmanna Seðlabankans.
Ekki mun hins vegar fjarri lagi að
ríkisstarfsmenn séu 150 sinnum fleiri
en starfsmenn Seðlabanka. Það vek-
ur spurningu um hvort skattgreið-
endur hafi e.t.v. þegar verið skuld-
bundnir til að greiða 70-80 milljarða
króna (t.d. álíka upphæð og öll
ríkisútgjöldin á s.l. ári) vegna lífeyr-
isréttinda sem opinberir starfsmenn
hafa nú þegar áunnið sér, auk þeirra
réttinda sem þeir eiga eftir að ávinna
sér í óbreyttu lífeyriskerfi. Sá er
munurinn að bankarnir hafa látið
reikna út þessar skuldir sínar, en
það hefur hið opinbera hins vegar
ekki gert - kannski ekki þorað að
gera? -HEI
SAMEINING
SÓLARINNAR
OG GEFJUNAR
í gær tók til starfa nýtt fyrirtæki
í fataiðnaði, Sólin-Gefjun hf.
Gerður var samningur milli eig-
enda Fataverksmiðjunnar Gefjun-
ar og saumastofunnar Sólarinnar
hf. um stofnun hins nýja hlutafé-
lags sem mun taka við rekstri
beggja fyrirtækjanna og yfirtaka
sammninga við viðskiptavini
þeirra.
Eigendur fyrirtækisins eru að
jöfnu Samband íslenskra sam-
vinnufélaga og hluthafar sauma-
stofunnar Sólarinnar hf. en stærst-
ur hluthafi í saumastofunni var
Guðlaugur Bergmann í Karnabæ.
Til samstarfsins var stofnað
vegna erfiðleika í fataiðnaði hér-
lendis og til þess að styrkja íslenska
fatagerð þannig að hér megi við-
halda nauðsynlegri þekkingu á
þessu sviði og bjóða vandaðan
íslenskan fatnað á viðunandi verði,
eins og segir í fréttatilkynningu frá
hlutafélaginu.
Fyrirtækið mun reka fataverk-
smiðju og framleiða m.a. hefð-
bundinn herrafatnað og annan al-
mennan herrafatnað fyrir verslun-
ardeild Sambandsins og G. Berg-
mann hf. Megináhersla verður lögð
á gerð einkennisfatnaðar og sér-
saumaðs fatnaðar fyrir vinnuhópa.
Áður störfuðu samtals um 30
starfsmenn hjá fyrirtækjunum en
22 þeirra hafa verið ráðnir til starfa
hjá nýja fyrirtækinu.
Stjómarformaður nýja fyrir-
tækisins er Ólafur Friðriksson
framkvæmdastjóri verslunardeild-
ar Sambandsins, aðrir í stjórn eru
Guðlaugur Bergmann og Haf-
steinn Eiríksson. SSH