Tíminn - 04.05.1989, Side 5
Fimmtudagur 4. maí 1989
fíminn 5
Neyðarástand að skapast í landbúnaði. Hætt við að kornræktin misfarist í ár og sáningin á leið í
súginn vegna verkfalls BHMR. Ólafur á Þorvaldseyri:
„Við munum I ara í skaða-
bótamál við þessa menn“
„Ef ekki tekst að sá korninu fyrir helgi er alls óvíst hvort
yfirhöfuð taki því að sá. Við erum þegar búnir að missa
verulega góða viku niður af vaxtartímanum og henni getum
hvorki við né aðrir bætt aftan við sumarið,“ sagði Olafur
Eggertsson bóndi á Þorvaldseyri undir EyjafjöUum.
Kombændur og innflytjendur sem
flytja inn sáðkorn fyrir þá, hafa sótt
um undanþágu til náttúrufræðinga
með að fá tollafgreidd sextíu og sex
tonn af byggi sem standa í gámum á
hafnarbakka í Reykjavík en sáning
ætti nú með réttu að standa yfir.
Ólafur sagði að kornbændur á
Suðurlandi ættu nú á hafnarbakka í
Reykjavík sextíu og sex tonn sáð-
korns - byggs. En samkvæmt lögum
á Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins að sjá um eftirlit með innflutningi
á fóðri og fræjum. Allur innflutning-
ur slíks liggur því nú niðri vegna
verkfalls náttúrufræðinga. Eftir því
sem dregst að sá korninu sagði
Ólafur að mætti reikna með hrað-
minnkandi uppskeru í réttu hlutfalli
við þann dagafjölda sem sáning
dregst á langinn.
Hann sagði að sáðkornið sem þeir
ekki fá nú vegna verkfallsins sé í
þrjú hundruð hektara og ef allt væri
með felldu mætti reikna með um sex
hundruð tonna uppskeru af byggi,
bæði til manneldis og til fóðurs.
Meðalverð sem fæst fyrir kornið er
um fjörutíu krónur þannig að hér
eru um 24 milljónir króna í húfi.
„Rannsóknastofnun Landbúnað-
arins hefur unnið gott starf við
rannsóknir, tilraunir og kynbætur í
kornræktinni og við bændurnir erum
hryggir yfir því að starfsmenn stofn-
unarinnar sem hafa byggt upp þessa
nýbúgrein með okkur, skuli nú vera
tilbúnir að brjóta hana niður einmitt
nú þegar framfarirnar eru að koma
í ljós,“ sagði Ólafur.
Ólafur sagði að kornbændur hefðu
ítrekað reynt að fá undanþágu svo
sáning gæti hafist og leitað allra
hugsanlegra leiða í því efni. Tækist
það ekki myndu þeir freista þess að
fá tjón sitt metið og fara í skaðabóta-
mál við náttúrufræðinga til að freista
þess að fá tjón sitt bætt.
„Það er ekki talið að hér sé verið
að tala um neyðarástand og því
hefur undanþága vegna ofannefnds
ekki verið veitt,“ sagði Ingileif Jóns-
dóttir sem situr í undanþágunefnd
náttúrufræðinga.
Félag íslenskra náttúrufræðinga
og Félag dýralækna hélt fund með
Steingrími J. Sigfússyni landbúnað-
arráðherra í gær þar sem ráðherra
var kynnt hversu alvarlegt ástand
væri að skapast vegna verkfalla fé-
lagsmanna þessara félaga.
Sem dæmi má nefna eru nú ekki
gefnar áburðarieiðbeiningar hjá
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
en bændur og garðyrkjumenn þurfa
mjög á þeim að halda á þessum
árstíma. Þá liggur niðri undirbúning-
ur undir ræktunartilraunir stofnun-
arinnar og hætt er við að ýmsar
rannsóknir á sauðfé í tengslum við
sauðburð fari forgörðum.
Hjá Skógrækt ríkisins liggur trjá-
plöntusala niðri en hún stendur und-
ir tæpum helmingi þess fjár sem
stofnunin hefur úr að spila. Þá ætti
nú að standa yfir sáning birkifræs, en
hún liggur niðri og þegar er útséð um
að minna verður sáð í ár en ætlað
var.
Starfsemi Veiðimálastofnunar
liggur niðri og ekki hefur verið hægt
að merkja seiði frá hafbeitarstöðv-
um. Þá er ekkert eftirlit með flutn-
ingi seiða milli landshluta eins og lög
gera ráð fyrir og öll slátrun liggur
niðri vegna verkfalls dýralækna.
Landbúnaðarráðherra lýsti
áhyggjum sínum yfir því ástandi sem
er að skapast vegna kjaradeilunnar
og hét fundarmönnum að gera sitt til
að leysa hana. -sá
touIlsKorn
iwoMS|,nq|aM
U4°Ms,|nq v
U40MS|,nqtaM
Kornið stendur í gámi á hafnarbakkanum og allt virðist benda til að það verði þar, þar til verkfallið leysist.
Tímamynd:Ámi Bjaroa
Búf jártalning kærð?
Nokkuð almenn andstaða virðist
vera gegn núverandi fyrirkomulagi
búfjártalningar í landinu. Guð-
mundur Valtýsson er sem kunnugt
er einn þeirra sem risið hefur önd-
verður gegn talningunni. Ef komið
verður með húsleitarheimild hefur
hann jafnvel í hyggju að láta reyna á
málið fyrir hæstarétti. En það eru
fleiri en Guðmundur sem ekki sætta
sig við talninguna og má þar nefna
Lúther Olgeirsson sem segir fram-
kvæmdina fáránlega.
„Mín afstaða í þessu máli hefur
ekkert breyst og ég mun standa fast
á því að ekki verði talið á þennan
hátt hér. Það er rétt að taka það
fram strax að ekki skakkar svo oft
tölum hjá mér að ég þurfi neitt að
fela. En ég tel þetta spilla fyrir
bændastéttinni og skapa tortryggni.
Aðgerðin er auðvitað hæpin ef lög-
regluaðgerðum er beitt í þessu
skyni," sagði Guðmundur Valtýsson
bóndi á Eiríksstöðum í Svartadal, í
samtali við Tfmann.
Hann taldi þetta ekki á nokkurn
hátt geta stemmt stigu við heima-
slátrun eins og eitt af markmiðunum
á að vera og sagði aðrar leiðir
heiliavænlegri í því efni.
Eftir að þetta mál kom upp hefur
fjöldi manns hringt í Guðmund og
látið í ljós ánægju sína með að hann
skyldi neita talningarmönnum um
aðgang að húsunum. „Mér virðist
sem margir sem þegar hafa gengið í
gegnum þessa talningu séu mjög
óánægðir með hana. í mig hefur
hringt fólk frá Aðaldal, Norðfirði,
Reykhólasveit og fleiri stöðum og
lýst yfir ánægju sinni með þessa
glímu mína. Bændur hafa ef til vill
sæst á talningu til að forðast vand-
ræði en verið mjög óhressir með
hana. Eins er hitt að talningarmenn
eru oftar en ekki nágrannar bænd-
anna og kunningjar úr sveitinni og
mönnum leiðist að standa uppi í
hárinu á þeim. Lang skynsamlegast
af talningarmönnunum hefði auðvit-
að verið að fara að dæmi oddvitans
í Sveinsstaðahreppi, skila af sér
gögnunum og neita að taka þátt í
þessu." En eins og greindi frá í
Tímanum í gær taldi oddvitinn að-
gerðina jafngilda áfellisdómi yfir sér
og sínum störfum þar sem hann
hefur haft yfirumsjón með forða-
gæslu fram til þessa.
„Það er óskaplega erfitt að standa
í svona löguðu. Ég er með öll mín
hús læst og þau verða það þar til
komið verður með húsleitarheimild.
Ef til þess kemur hefur hvarflað að
mér að kæra þann úrskurð til hæsta-
réttar. Ég held að héðan af geti það
ekki verið nema af því góða að láta
reyna á hvort svona nokkuð sé hægt.
En í lögum er varað við að gerð sé
húsleit nema viðkomandi liggi undir
mjög sterkum grun um að hann hafi
eitthvað að fela og þá oftst fylgir
kæra í kjölfarið. Þessar aðgerðir
dynja á bændum núna en hver veit
nema þær beinist að öðrum síðar.“
Guðmundur hefur ekki mikla trú
á talningunni. „Af því sem mér
hefur heyrst er ekki nokkurn hlut að
marka þessa talningu. Ef ég hefði
haft eitthvað til að fela og kært mig
um, hefði það ekki verið neitt vanda-
mál. Ég veit um margar leiðir til þess
þannig að það er ekki rnálið."
En það eru fleiri sem ekki hafa trú
á framkvæmd búfjártalningarinnar.
„Mér finnst þessi talning fáránleg.
Fyrst þeir eru að telja núna þá verða
þeir að telja aftur þegar sauðburði
er lokið og aftur í haust ef hún á að
koma að einhverju gagni. Ef verið
er að leita eftir þessu svarta kjöti
eins og gefið hefur verið í skyn þá fá
þeir skýringu á því aldrei hjá hinum
almenna bónda. Búfjáreign í
kauptúnum þar sem ekki er að finna
neinn fullvirðisrétt, er yfirleitt það
stór að hún mettar mikinn hluta
markaðarins,“ sagði Lúther Olgeirs-
son bóndi í Forsæludal í Vatnsdal,
Áshreppi, í samtali við Tímann.
Hann hefur ekki heldur í hyggju
að taka búfjártalningu þegjandi og
hljóðalaust. „Talningarmenn virðast
hafa getað talið til þessa án þess að
hafa neitt í höndunum nema ansi
loðna reglugerð. Ég hugsa að ég
komi til með að fara fram á húsleit-
arheimild ef af talningu á að verða.
Talningu átti að vera lokið þrítug-
asta apríl og ég veit ekki hvað þeir
ætla að gera. Þá er ótalið í Sveins-
staðahrepp og ég sé ekki að þeir hafi
ástæðu til að telja hjá mér á meðan.
Ég held að bændur geri sér ekki
almennilega grein fyrir þessu fyrr en
eftir á. Menn eru að átta sig á því
núna að verið er að leita eftir
einhverri aukaframleiðslu sem ekki
hefur komið fram áður,“ sagði
Lúther. jkb
Stutturfundur um væntan-
legt vinnulag í kjaradeilu
ríkisins og BHMR í gær:
Ný funda-
lota hefst
í dag
Sáttafundur hófst í kjaradeilu
BHMR og ríkisins kl. 17 og var
hann haldinn í húsakynnum ríkis-
sáttasemjara og töldu ýmsir tíma
til kominn að deiluaðilar hittust.
Óformlegar viðræður hafa far-
ið fram að undanförnu milli deilu-
aðila og meðal annars sátu Páll
Halldórsson formaður BHMR og
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra á tveggja manna
tali í gærmorgun.
Fundurinn í gær stóð stutt og
fór fram undir verkstjórn sáttas-
emjara og var ákveðið hvernig að
fyrirhugaðri samningalotu verður
staðið og hefst næsti sáttafundur
kl. tíu árdegis í dag.
Ekkert nýtt var lagt fram á
fundinum í gær, en Páll Halldórs-
son sagði eftir hann að á næstu
dögum myndi ráðast hvort samn-
ingar tækjust. -sá