Tíminn - 04.05.1989, Blaðsíða 10
Fimmtudagur 4. maí 1989
10 Tíminn
ÍÞRÓTTIR
Knattspyrna:
Gott hjá Stuttgart
-gegn Napólí í fyrri leik liðanna í úrslitum UEFA-keppninnar
Ásgeir Sigurvinsson og félagar í
Stuttgart voru aðeins 3 mín. frá
jafntefli í fyrri úrslitaleiknum gegn
Napólí í UEFA-keppninni í Napólí í
gærkvöld. Sigurmark leiksins gerði
brasilíski landsliðsmaðurinn Careca
á 87. mín.
Stuttgart fékk aukaspyrnu á 17.
mín. leiksins. Ásgeir Sigurvinsson
gaf á Maurizio Gaudino sem skoraði
af 30 m færi og þannig var staðan í
leikhléinu.
Diego Maradona jafnaði úr víta-
spyrnu á 68. mín. og Careca gerði
síðan sigurmarkið á elleftu stundu,
eins og áður segir. Stuttgart nægir að
sigra 1-0 í síðari leiknum, en hann
verður í Stuttgart eftir 2 vikur.
Ásgeir átti góðan leik í gærkvöldi
Ensku meistararnir Liverpool
misstu af tveimur stigum í meistara-
slagnum ■ gærkvöld er liðið gerði 0-0
jafntefli gegn nágrönnum sínum
Everton. Nottingham Forest vann
Millwall 4-í og West Ham vann 2-1
sigur á Newcastle.
eins og félagar hans, en fyrirfram var
búist við stórsigri Napólí. BL
í fyrrakvöld voru þrír leikir í 1.
deild, Luton vann stórsigur á Charl-
ton í botnbaráttunni 5-2, Manchest-
er United vann Wimbledon 1-0 og
Southampton vann Aston Villa 2-1.
BL
Knattspyrna:
Jaf nt hjá Liverpool
Knattspyrna:
KA-menn Tactic-meistarar
Frá Jóhannesi Bjarnasyni íþróttafréttamanni
l ímans á Akureyri:
Um síðustu helgi fór fram knatt-
spyrnumót á Akureyri sem kennt er
við Tactic íþróttavörur. Fjögur lið
tóku þátt í mótinu, 1. deildarlið KA
og Þórs ásamt 2. deildarliðum
Tindastóls og Leifturs.
Mótið hófst á föstudag og léku þá
KA og Tindastóll og Þór gegn
Leiftri. KA marði Sauðkrækinga 2-1
Golf:
Einherjar
verðlaunaðir
Á laugardag verða afhent verð-
laun til handa þeim kylfíngum sem
náðu þeim áfanga að fara holu í
höggi á síðasta ári. Hér er um 36
einstaklinga að ræða og eru þeir þar
með komnir í Einherjaklúbbinn.
Verðlaunin verða afhent í Síðumúla
35 kl. 17.00 á laugardag. BL
og Þór vann öruggan sigur á Leiftri
4-2.
En á laugardag fór að draga til
tíðinda, því þá unnu Sauðkrækingar
stórsigur á Þórsurum 4-2 og var sá
sigur síst of stór. KA og Leiftur
skildu jöfn 0-0.
Síðasta umferðin var síðan leikin
1. maí. Tindastóll og Leiftur gerðu
þá jafntefli 2-2 og var það sjálfsmark
Eyjólfs Sverrissonar Sauðkrækings
30 sek. fyrir leikslok sem réð úrslit-
um.
Leikur Akureyrarliðanna var al-
gjör einstefna, KA-menn unnu yfir-
burðasigur 4-1 og voru mun spræk-
ari. Árni Hermannsson, Þorvaldur
Örlygsson, Örn Arnarson og Gauti
Laxdal skoruðu fyrir KA, en Júlíus
Tryggvason fyrir Þór. í KA-liðið
vantaði nokkra leikmenn, en það
kom ekki að sök þar sem Þórsarar
voru mjög slakir.
Ekki er gott að koma auga á
hvaða ieikstíl hinn júgóslavneski
þjálfari Þórs ætlar að leggja fyrir
sína menn, en víst er að ekki er hann
áferðarfagur. Bæði liðin léku mjög
gróft og skörkuðu jafnt í knöttinn
sem sköflunga andstæðinganna.
JB/BL
Fræðslumál:
Unglinga
ráðstefna
Unglinganefnd ÍSÍ gengst fyrir
ráðstefnu á sunnudaginn kemur. Þar
verður fjallað um íþróttir barna og
unglinga. Fjölmargir aðilar er tengj-
ast umfjöllunarefninu halda erindi
og eru allir áhugamenn um bættar
barnaíþróttir hvattir til þess að mæta
á ráðstefnuna, sem hefst kl 9.45.
Þátttökutilkynningar skulu berast
skrifstofu ÍSÍ fyrir kl. 16.00 á föstu-
dag. BL
Jóna Harpa Viggósdóttir frá Neskaupstað skellir knettinum framhjá hávörn
Luxemburgara Og í gólfíð. Tímamynd: Pjetur.
Blak:
Sigrar og tap
- hjá unglingalandsliði kvenna gegn Luxemburg
ísland sigraði í tveimur af þremur
unglingalandsleikjum kvenna í blaki
er fram fóru hér á landi um síðustu
helgi.
ísland vann fyrsta leikinn 3-1.
Hrinutölur voru 15-13, 15-17, 15-11
og 15-6.
í öðrum leiknum voru íslensku
stúlkurnar þreyttar og töpuðu 3-0,
15-10, 15-8 og 15-13. ísland komst í
10-1 í fyrstu hrinu en missti forskotið
niður.
í þriðja leiknum náði ísland að
hefna með 3-1. Hrinutölur voru
6-15, 15-13, 15-8 og 15-11.
Karítas Jónsdóttir KA lék vel í
öllum leikjunum og Elva Rut Helga-
dóttir HK lék vel í fyrsta leiknum.
BL
1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2
Get-raunir!!!
Tveir tipparar urðu 408.488 kr.
ríkari um síðustu helgi þar sem
þeim tókst að fá 12 rétta. Þá
komu 38 raðir fram mcð 11
réttum og vinningsupphæðin fyrir
hverja röð er 9.213 kr.
Annar þeirra aðila sem voru
með 12 rétta keypti röð sína í
söluturninum Bræðraborg í
Kópavogi á sjálfval. Er þetta
önnur vikan í röð sem sjálfval í
Bræðraborg skilar 12 leikjum
réttum.
FYLKISVEN sigraði í bráð-
bana í hópleik getrauna, en Fylk-
isven og ROZ höfðu orðið efstir
og jafnir í keppninni með 105
stig. í bráðabananum urðu úrslit
þau að Fylkisven var með 11 rétta
en ROZ aðeins 9 rétta. Eins og
nafnið gefur til kynna þá saman-
stendur FYLKISVEN hópurinn
af nokkrum hörðum Fylkismönn-
um. Þeir leggja því land undir
fót, því í vinning var ferð í
Lundúna á bikarúrslitaleikinn í
ensku knattspyrnunni á Wembley
leikvanginum.
Fjögur fyrirtæki eru nú eftir í
fyrirtækjakeppni getrauna. Þau
eru þessi:
Endurskoðunarsk.st.Sveinn og
Haukur-Auglýsingast. Magnúsar
Ólafssonar
Veitingahöllin-Endursk. B.E.Á.
í undanúrslitum keppninnar
leika fyrirtækin sem að ofan segir
og í 19. leikviku verður síðan
úrslitaleikurinn.
Þar sem fjölmiðlaleik getrauna
er nú nýlokið og nýr leikur hefst
ekki fyrr en í 19. leikviku, eru
síðasta vika og sú sem í hönd fer,
nokkurskonar upphitunarvikur
fyrir næsta leik. í síðustu viku var
nokkuð jafnræði með fjölmiðlun-
um í spám sínurn. Allir voru með
4, 5 eða 6 rétta. Bylgjan og Stöð
2 voru með 6 rétta, en Tíminn,
DV, Dagur og RÚV höfðu 5
rétta. Sigurvegarinn í síðasta fjöl-
miðlaleik, MBL, var með 4 rétta
ásamt Þjóðviljanum og Stjörn-
unni.
Fram var sem oft áður sölu-
hæsta fétag síðustu viku með
hvorki meira né minna en 14,64%
áheita. Fylkismenn komu næstir
með 9,77% og KR var í þriðja
sætinu með 6,40%. Stjarnan og
Selfoss hafa sótt í sig veðrið að
undanförnu í sölunni, en Haukar
og FH eru nú horfin af topp 10
listanum.
En ekki þýðir að líta of mikið
um öxl, horfum fram á veginn á
18. leikviku. Spáin er þessi:
Charlton-Wimbledon: 2
Bikarmeistarar Wimbledon eru í
miklu stuði um þessar mundir og
láta sig ekki muna um að hirða 3
stig í Dalnum.
Derby-Aston Villa: 1
Óvænt tap Derby gegn Luton í
síðustu viku stappar stálinu í
leikmenn liðsins fyrir leikinn
gegn Aston Villa. Pottþéttur
heimasigur.
Middlesboro-Arsenal: 2
Arsenal-liðið er á hörkusiglingu í
áttina að meistaratilinum og lið
Middlesboro ætti ekki að verða
þeim fjötur um fót. Útisigur á
Ayresome Park.
Newcastle-Millwall: x
Allt að tapaður fallbaráttuslagur
hjá Newcastle. Liðið nær þó jafn-
tefli gegn Millwall, sem hefur átt
undir högg að sækja að undan-
förnu.
Norwich-Everton: x
Það hefur ekki gengið sem best
hjá Norwich-liðinu að undan-
förnu og liðið hefur ekki unnið í
síðustu 7 leikjum. Jafntefli verð-
ur ofaná í heimaleik gegn Ever-
ton.
Southampton-Manchester Utd:2
Loks kemur að því að lið Manc-
hester United tekst að vinna leik.
Eftir marga ósigra að undan-
förnu, jafn heima sem heiman,
tekst United liðinu að sigra Dýrð-
lingana á útivelli.
West Ham-Luton: 2
Lið West Ham er fallið í 2. deild,.
en Luton er enn í fallhættu, þrátt
fyrir sigurleiki uppá síðkastið.
Útisigur hjá Luton.
Barnsley-Portsmouth: 1
Staða Barnsley í 2. deildinni er
mun betri en Portsmouth og því
eru allar líkur á heimasigri í
þessum leik.
Brighton-Ipswich: x
Bæði liðin sigla lygnum sjó í 2.
deildinni og varla er ástæða til að
reikna með öðru en rólegheita-
leik, jafntefli.
Leicester-Crystal Palace: 2
Crystal Palace-liðið á enn mögu-
leika á 1. deildarsæti að ári, en
þarf líklega að taka þátt í sér-
FJÖLM
stakri aukakeppni um sætið.
Leicester er neðarlega í deildinni
og ekki líklegt til að hirða stig af
Palace. Útisigur.
Swindon-Stoke: x
Stoke hirðir annað stigið af
Swindon, sem hefur betri stöðu í
deildinni, en ekki er allt sem
sýnist.
W.B.A.-Sunderland: 1
Öruggur sigur heimamanna á liði
Sunderland, sem statt er um mið-
bik deildarinnar. Lið Albion er
nánast ósigrandi á heimavelli.
skúli lúðvíks.
V’
í’ - . LEIKIR 6. MAÍ ’89 J CD 2 > o Z Z rs F z z 3 ! cc 3 <3 < D S c. <r < £ Z < -7 o > CD ÍN 8 & z < i < S ■ SAMTALS
1 X 2
Charlton - Wimbledon 2 2 2 2 X X 1 1 X 2 3 4
Derby - Aston Villa 1 1 1 1 1 1 1 1 2 8 0 1
Middlesbro - Arsenal 1 2 2 2 2 2 2 X 2 1 1 7
Newcastle - Millwall 1 1 X 2 2 J 1 1 1 6 1 2
Norwich - Everton 2 1 X 1 1 X 1 X 2 4 3 2
Southampton - Man. Utd. 2 2 2 2 2 X 2 2 2 0 1 8
West Ham - Luton 1 1 2 2 2 1 2 1 1 5 0 4
Barnsley - Portsmouth 1 * X 7 1 1 1 X 6 3 o
Brighton - Ipswich X 2 X X 2 X 1 X X 1 6 2
Leicester - C. Palace 1 1 2 X 2 X 2 1 1 4 2j 3
Swindon - Stoke 1 1 X X 1 1 2 1 1 6 2 1
W.B.A. - Sunderiand U í 1 1 1 1 u 1 X 8 1 0