Tíminn - 04.05.1989, Side 20
20 Tíminn
Fimmtudagur 4. maí 1989
■llllili DAGBÓK !M: ................................................................................... ... ^|l;:iliii!liiiiliiií!i!llíli!;'::: ^!;l!íllli!M^ .............................................- - ■ ................................. ............. .................... ............................... ......................................................................................................................................
-■ --’• ■■ w
Dagsferðir Ferðafélags íslands
Fimmtud. 4. maí kl. 13:00: Selvogs-
heiði - Svörtubjörg - Hlíðarvatn. Ekið
um Þrengslaveg. Gengið um Selvogsheiði
að Svörtubjörgum og Eiríksvörðu. Kom-
ið niður hjá Hlíðarvatni (1000 kr.)
Laugard. 6. maí kl. 09:00- Skarðsheiði
(1051 m) Ekið inn Svínadal og gengið
þaðan (1000 kr.)
Sunnud. 7. maí kl. 10:00 - Fuglaskoð-
unarferð á Suðurnes. Kjörin fjölskyldu-
ferð. Þettaer 19. ferðF.l. til fuglaskoðun-
ar og skráningar á fuglum. Æskilegt að
taka sjónauka og fuglabók með. Frítt
fyrir börn 15 ára og yngri. (1000 kr.)
Fararstjórar: Gunnlaugur Pétursson,
Haukur Bjarnason og Jón Hallur Jó-
hannsson. Brottför í allar ferðirnar er frá
Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Far-
miðar við bfl.
Ferðafélag íslands
Bústaðasókn:
Verðandi biskup heiðraður
með hátíðartónleikum
Á uppstigningardag efnir organisti
Bústaðakirkju, Guðni Þ. Guðmundsson,
kór Bústaðakirkju, hljóðfæraleikarar og
einsöngvarar til sérstakra tónleika til
heiðurs verðandi biskupshjónum frú
Ebbu Sigurðardóttur og séra Olafi Skúla-
syni. Vill söfnuðurinn þannig votta þeim
hjónum þakklæti sitt fyrir aldarfjórðungs
þjónustu og fagna yfir glæsilegum sigri í
biskupskosningunum. Tónleikarnir hefj-
ast með hátíðarverki J.E.F. Hartmann,
sem hann samdi í tilefni af fjögur hundruð
ára afmæli Kaupmannahafnarháskóla. Er
verkið flutt af ellefu málmblásturshljóð-
færaleikurum, páku og orgeli.
Síðan kemur Kantata nr. 199 eftir J. S.
Bach, „Mein Herze schwimmt im BIut“
og er Ingibjörg Marteinsdóttir einsöngv-
LJA fc-—' 1 T1 K |
BiifiiB 1 ■■IriÍM
m UNARÁSTUIN
|— — — =
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Árhus:
Alla þriðjudaga
Svendborg:
Annan hvern þriðjudag
Kaupmannahöfn:
Alla miðvikudaga
Varberg:
Alla fimmtudaga
Moss:
Alla laugardaga
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Hvassafell......... 15/5
Gloucester/Boston:
Alla þriðjudaga
New York:
Alla föstudaga
Portsmouth/Norfolk:
Alla sunnudaga
SKJPADE/LD
SAMRANDSJMS
LINDARGÖTU 9A • 101 REYKJAVlK
SlMI 698100
L i. i. A A Á A A A .
IAKN TRAIJSIRA FLUININGA
ari. Næst er Missa brevis í G-dúr eftir
Mozart, fyrir kór, hljómsveit og ein-
söngvara. Þeir eru: Ingibjörg Marteins-
dóttir sópran, Stefanía Valgeirsdóttir alt,
Einar Örn Einarsson tenór og Eiríkur
Hreinn Helgason bassi.
Stjórnandi á hljómleikunum er Guðni
Þ. Guðmundsson og tuttugu og einn
hljóðfæraleikari tekur þátt í flutningi
þessarar dagskrár.
Tónleikarnir hefjast klukkan 17:00 (kl.
5 síðdegis) og er öllum heimill ókeypis
aðgangur.
Fermingarbörn í
Eyrarbakkakirkju sunnudaginn
7. maí ki. 13:00
Aðalsteinn Martin Grétarsson, Túngötu 8,
Eyrarbakka
Eiríkur Vignir Pálsson, Túngötu 13, Eyrarbakka
Helga Guðný Jónsdóttir, Eyrargötu 19, Eyrarbakka
Kjartan Ingi Sveinsson, Háeyrarvöllum 22,
Eyrarbakka
Sigríður Sif Magnúsdóttir, Seylum, Ölfusi
Sigrún Sif Jóelsdóttir, Eyrargötu 1A, Eyrarbakka
Kaffisala
Kvenfélags Háteigssóknar
Kaffisala Kvenfélags Háteigssóknar
verður á uppstigningardag 4. maí í Sókn-
arhúsinu, Skipholti 50A og stendur yfir
kl. 15:00-17:00.
í desember sl. var sett upp á kórvegg
Háteigskirkju listaverk Benedikts Gunn-
arssonar, Krossinn og ljós heilagrar
þrenningar, sem Kvenfélag Háteigssókn-
ar gaf. Allur ágóði kaffisölu kvenfélagsins
nú verður notaður til að ljúka greiðslum
yegna kórmyndarinnar.
Fríkirkjan í Reykjavík
Dagur aldraðra i söfnuðinum er sunnu-
dagurinn 7. maí. Engin guðsþjónusta er
á uppstigningardag. Cecil Haraldsson
Hafnarfjarðarkirkja
Guðsþjónusta á uppstigningardag kl.
14:00. Oldruðum boðið sérstaklega til
kirkju. Esther Helga Guðmundsdóttir
sópran syngur einsöng. Kaffisamsæti í
Álfafelli eftir guðsþjónustuna. Prestur:
sr. Þórhildur Ólafs. Organisti: Helgi
Bragason. Safnaðarstjóm
Hallgrímskirkja
Messa fellur niður á uppstigningardag
vegna undirbúnings kirkjulistahátíðar.
Farið verður á vegum Starfs aldraðra til
Hvalsneskirkju og hlýtt á messu. Kirkju-
kaffi í Sandgerði á eftir. Lagt verður af
stað frá Hallgrímskirkju kl. 13:00. Til-
kynna þarf þátttöku í síma 39965.
Háteigskirkja
Messa kl. 14:00 Tómas Sveinsson
BILALEIGA
meö utibú allt í knngum
landiö, gera þér mögulogt
aö leigja bíl á einum staö
og skila honum á öörum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendis
interRent
Bílaleiga Akureyrar
Afmæli
Hjörieifur Sigurðsson, E'rrv. héraðs-
stjóri Vegagerðar ríkisins, Olafsvík, verð-
ur 70 ára 9. maí nk.
Hann tekur á móti gestum laugardag-
inn 6. maí að heimili sínu Miðbrekku 1,
Ólafsvík.
Námsstefna um heima-
þjónustu aldraðra
Samband íslenskra sveitarfélaga og
Öldmnarráð fslands gangast sameigin-
lega fyrir námsstefnu um heimaþjónustu
aldraðra föstudaginn 5. maí í Borgartúni
6 í Reykjavík kl. 09:00-17:00.
Á námsstefnunni verður fjallað um
þjónustu við aldraða í heimahúsum.
Kynnt verður hlutverk heimaþjónustu í
frumvarpi til laga um málefni aldraðra,
sem lagt hefur verið fram á Alþingi, svo
og þáttur heimaþjónustu í drögum að
frumvarpi til laga um félagslega þjónustu
sveitarfélaga.
Framsögumenn verða Jón Björnsson,
félagsmálastjóri, Akureyri, Sigurbjörg
Sigurgeirsdóttir, öldrunarfulltrúi, Kópa-
vogi, Jóna Eggertsdóttir, félagsráðgjafi,
Borgarspítala, Guðrún Halldórsdóttir,
skólastjóri Námsflokka Reykjavíkur,
Dögg Pálsdóttir, deildarstjóri í heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðuneytinu, Sveinn
Ragnarsson, félagsmálastjóri, Reykja-
vík,' Eygló S. Stefánsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur og Árni Sigfússon, formaður
félagsmálaráðs Reykjavíkurborgar.
Námsstefna þessi er í senn ætluð sveit-
arstjórnarmönnum, þeim sem skipu-
leggja heimaþjónustu af hálfu sveitarfé-
laganna og þeim sem að henni starfa.
Útivistarferðir
Fimmtud. 4. maí kl. 13:00 - Landnáms-
gangan 11. ferð: Stampar-Hvamms-
höfði-Hvammsvík. Gönguferð við allra
hæfi um fjölbreytta strönd Hvalfjarðar.
Næstsíðasta strandgangan í landnáms-
göngunni 1989. (900 kr.)
Laugard. 6. maí kl. 10:30 - Fugla- og
náttúruskoðunarferð á Suðurnes: Farið
um Bessastaðanes, Garðskaga, Fuglavík,
Sandgerði o.fl. Góðir leiðbeinendur. Til-
valin fjölskylduferð. (1000 kr.)
Sunnudagur 7. maí: Kl. 13:00 Útivistar-
dagur fjöiskyldunnar - pyisuvcisla. Létt
ganga iýrir alla fjölskylduna um Heið-
mörk og Rauðhóla. Endað í pylsuveislu.
Heimkoma uppúr kl. 16:00
Kl. 10:30 á sunnudag: Gönguferð Blá-
fjöll-Rcykjavík. Gengið verður frá Blá-
fjöllum í Heiðmörk (Bláfjallaleið). Brott-
för í ferðimar frá BSl, bensínsölu.
Sjáumst.
Útivist, ferðafélag
Kaffiboð Snæfellinga-
félagsins í Reykjavík fyrir
eldri héraðsbúa
Eins og undanfarin ár efnir Félag
Snæfellinga og Hnappdæla í Reykjavík til
kaffiboðs fyrir eldra fólk úr héraðinu
sunnudaginn 7. maí kl. 15:00 í Sóknar-
salnum, Skipholti 50A.
Aðalfundur félagsins hefst síðan kl.
17:30. Auk venjulegra aðalfundarstarfa
verður þar rætt um kaup á húseign fyrir
félagið.
Þá er enn sem fyrr hafinn undirbúning-
ur undir sólarlandaferð félagsins f haust
og þeim sem áhuga hafa á því veittar
upplýsingar þar um.
Finnskur lögreglukór syngur
í Langholtskirkju á sunnudag
Finnskur lögreglukór kemur ( heim-
sókn til Lögreglukórs Reykjavíkur og
heldur tónleika í Langholtskirkju sunnu-
daginn 7. maí kl. 21:00.
I maímánuði 1988 var haldið í Reykja-
vfk söngmót lögreglukóra höfuðborga
Norðurlandanna. Kór lögreglumanna í
Helsinki komst þá ekki tii lslands en
verður nú á ferðinni. í kómum em 32
söngmenn. Kórinn kemur til landsins
laugardaginn 6. maí og heldur tónleika í
Langholtskirkju sunnud. 7. maf kl. 21:00.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.
Vorfundur
Vélprjónafélags íslands
Vorfundur Vélprjónafélags lslands
verður haldinn í Stapa, Ytri-Njarðvfk,
laugardaginn 6. maí kl. 14:00. Katrín Ösk
Þorgeirsdóttir flytur erindi um „breyt-
ingaskeiðið“ og Þórdís Jónsdóttir verður
með kynningu á „túpu-litum“. Kaffihlé
og frjálsar umræður.
Frá Félagi eldri borgara
Göngu-Hrólfur mætir við Nóatún á
laugard. 6. maí kl. 10:00. Stefnt er að
göngu að Laugardal.
Opið hús í dag í Goðheimum, Sigtúni
3. Kl. 14:00 - frjáls spilamennska. Kl.
19:30 - félagsvist og kl. 21:00 er dansað.
Ath.: Opið hús í Tónabæ á laugardag
kl. 13:30. Kl. 14:00 er félagsvist.
Kaffiboð
Skagfirðingafélaganna
Skagfirðingafélögin f Reykjavík verða
með gestaboð fyrir eldri Skagfirðinga í
Drangey, Síðumúla 35, á uppstigningar-
dag kl. 14:00.
Bílasími fyrir þá sem þess óska er
685540 eftir kl. 12:00, sama dag.
Laugardagsganga Hana nú
Hin vikulega laugardagsganga Hana
nú í Kópavogi verður laugard. 6. maí.
Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10:00.
Nýlagað molakaffi á boðstólum.
Guðsþjónustur í
Reykjavíkurprófastsdæmi
á uppstigningardag
Dagur aldraðra
Árbæjarkirkja. Guðsþjónusta kl. 14:00.
Eldra fólki safnaðarins sérstaklega boðið
til guðsþjónustunnar. Kaffiveitingar f
boði Kvenfélags Árbæjarsóknar í safnað-
arheimilinu eftir messu. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
Áskirkja. Guðsþjónusta kl. 14. Sigur-
björn Einarsson biskup prédikar. Eftir
guðsþjónustu býður safnaðarfélag Ás-
prestakalls eldri sóknarbörnum til sam-
veru í safnaðarheimili Áskirkju. Kaffi-
veitingar og almennur söngur. Munið
kirkjubílinn. Sr. Ámi Bergur Sigur-
bjömsson.
Bústaðakirkja. Guðsþjónusta kl. 14. Org-
anisti Guðni Þ. Guðmundsson. Sýning á
handavinnu aldraðra í safnaðarheimilinu
eftir messu. Kaffiveitingar. Hátíðartón-
leikar kl. 17. Sr. Ólafur Skúlason.
Digranesprestakall. Sameiginleg guðs-
þjónusta Kópavogssafnaða í Kópavogs-
kirkju, uppstigningardag kl. 14. Dagur
aldraðra. Sr. Kristján Einar Þorvarðarson
og sr. Þorbergur Kristjánsson þjóna fyrir
altari. Sr. Árni Pálsson prédikar. Sam-
vera í safnaðarheimilinu Borgum að lok-
inni guðsþjónustu. Sóknarnefndin.
Dómkirkjan. Messa kl. 14. Dagur aldr-
aðra. Sr. Ólöf Ólafsdóttir prédikar. Sr.
Hjalti Guðmundsson þjónar fyrir altari.
Kaffidrykkja á Hótel Borg eftir messu.
Eldri borgumm í söfnuðinum boðið.
Sóknamefndin.
Eiliheimilið Grund. Guðsþjónusta kl. 10.
Organisti Kjartan Ólafsson. Sr. Guð-
mundur Óskar Ólafsson.
Fella- og Hólakirkja. Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson préd-
ikar. Sr. Hreinn Hjartarson þjónar fyrir
altari. Kór aldraðra í Gerðubergi syngur
undir stjóm Sigurbjargar Hólmgríms-
dóttur. Sóknarprestur.
Grensáskirkja. Guðsþjónusta kl. 14.
Öldruðum sérstaklega boðið til kaffi-
drykkju eftir messu. Samkoma hjá
U.F.M.H. kl. 20:30. Prestamir.
Hjallaprestakall í Kópavogi. Sameiginleg
guðsþjónusta safnaðanna í Kópavogi á
uppstigningardag kl. 14. Kirkjudagur
aldraðra. Sr. Kristján EinarÞorvarðarson
og sr. Þorbergur Kristjánsson þjóna fyrir
altari. Sr. Ámi Pálsson prédikar. Sam-
vera í safnaðarheimilinu Borgum að lok-
inni guðsþjónustu. Sóknarnefndin.
Kársnesprestakali. Sameiginleg guðs-
þjónusta allra safnaða f Kópavogi f Kópa-
vogskirkju kl. 14. Dagur aldraðra. Sr.
Kristján Einar Þorvarðarson og sr. Þor-
bergur Kristjánsson þjóna fyrir altari. Sr.
Ámi Pálsson prédikar. Samvera í safnað-
arheimilinu að lokinni guðsþjónustu.
Sóknamefndin.
Langholtskirkja. Dagur aldraðra f Lang-
holtskirkju, kirkju Guðbrands biskups.
Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Sigurður
Haukur Guðjónsson. Kór Langholts-
kirkju. Organisti JónStefánsson. Öldmð-
um og ástvinum þeirra er boðið ásamt
vinum okkar, bifreiðastjórum Bæjarleiða
og fjölskyldum þeirra, í veislukaffi eftir
athöfnina í kirkjunni og þá hefst sýning á
munum sem hinir öldmðu hafa unnið að
í vetur. Sýnum þakklæti okkar til þeirra
er réttu okkur hagsæld dagsins og fjöl-
mennum. Sóknarnefnd.
Laugameskirkja. Guðsþjónusta kl. 14:00
á degi aldraðra. Þorsteinn Ólafsson,
fyrrv. yfirkennari, prédikar. Kirkjukór-
inn syngur. Kaffi í safnaðarheimilinu eftir
messu í boði sóknarnefndar. Kirkjukvöld
kl. 20:30. Kirkjukórinn flytur negrasálma
o.fl. Þröstur Eiríksson organisti stjórnar
kórnum og leikur á orgel. Sr. Bernharður
Guðmundsson, fræðslustjóri kirkjunnar,
ræðir ýmsar hliðar mannlífsins miili tón-
listaratriða. Sóknarprestur.
Neskirkja. Guðsþjónusta kl. 14. Orgel og
kórstjóm Reynir Jónasson. Sr. Olafur
Jóhannsson.
Seljasókn. Guðsþjónusta kl. 14. Dr. Jak-
ob Jónsson prédikar. Kór Ölduselsskóla
syngur í guðsþjónustunni undir stjóm
Margrétar Dannheim. Kvenfélag Selja-
sóknar býður eldri borgumm til kaffi-
drykkju að lokinni guðsþjónustu. Kirkju-
kórinn syngur undir stjóm Kjartans Sig-
urjónssonar. Sóknarprestur.
Húnvetningafélagið
í Reykjavík
Húnvetningafélagið í Reykjavík heldur
aðalfund sinn fimmtudaginn 11. maí kl.
20:00 í Húnabúð, Skeifunni 17.
Félagsvist. - Spilað verður laugardag-
inn 6. maí á sama tíma og venjulega í
Húnabúð, Skeifunni 17.
Félag eldri borgara Kópavogi
Minnum á skemmtifundinn föstudag-
inn 5. maí kl. 20:30 í Félagsheimili
Kópavogs, neðri sal.
Sýning í HAFNARBORG
í Hafnarfirði
1 Hafnarborg, menningar- og listastofn-
un Hafnarfjarðar, stendur nú yfir mál-
verkasýning Jóns Gunnarssonar. Sýning-
in er opin kl. 14:00-19:00 alla daga nema
þriðjudaga. Sýningin stendur til 7. maf.
Daði sýnir í FÍM-salnum
Daði Guðbjörnsson opnaði nýlega mál-
verkasýningu í FlM-salnum, Garðastræti
6, Reykjavík.
Daði hefur haldið fjölda einkasýninga
hér heima og eriendis og tekið þátt f
mörgum samsýningum.
FIM-salurinn er opinn virka daga kl.
13:00-18:00 og kl. 14:00-18:00 um helgar.
Sýningin stendur til 16. maí.
Sundlaugarnar i Laugardal em opnar mán-
udaga - föstudaga kl. 7.00-20.00. Laugardaga
kl. 7.30-17.30 og sunnudaga kl. 8.00-15.30.
Sundlaug Vesturbæ|ar er opin mánud.-föstud.
kl. 07.00-20.00, laugardaga 07:30-17.30 og
sunnudaga 08.00-15.30
Sundhöll Reykjavlkur er opi mánud.-föstud. kl.
07.00-19.30, laugardaga 07.30-17.30 og sunnu-
daga 08.00-13.30.
Sundlaugar Fb. Breiiholtl: Opin mánudaga-
föstudagakl. 7.20-09.30 og 16.30-20.30, laugar-
daga kl. 7.30-17.30. Sunnudaga kl. 8.00-15.30.
Lokunartlmi er miðaöur við þegar sölu er hætt.
Þá hafa gestir 30 mln. til umráöa.
Varmárlaug I Mosfellssvelt: Opin mánudaga -
föstudaga kl. 7.00-8.00 og kl. 17.00-19.30.
Laugardaga kl. 10.00-17.30. Sunnudaga kl.
10.00-15.30.
Sundhöll Keflavfkur er opin mánudaga -
fimmtudaga: 7.00-9.00, 12.00-21.00. Föstu-
daga kl. 7.00-9.00 og 12.00-19.00. Laugardaga
8.00-10.00 og 13.00-18.00. Sunnudaga 9.00-
12.00. Kvennatímar þriðjudaga og fimmludaga
19.30-21.00.
Sundlaug Kópavogs: Opin mánudaga - föstu-
daga kl. 7.00-9.00 og kl. 14.30-19.30. Laugar-
daga kl. 8.00-17.00. Sunnudaga kl. 8.00-12.00.
Kvennatímar eru þriðjudaga og miðvikudaga kl.
20.00-21.00. Síminn er 41299.
Sundlaug Hafnarfjarðar er opin mánudaga -
föstudaga kl. 7.00-21.00. Laugardaga frá kl.
8.00-16.00 og sunnudaga frá kl. 9.00-11.30.
Sundlaug Akureyrar er opin mánudaga -
föstudaga kl. 7.00-8.00, 12.00-13.00 og 17.00-
21.00. Á laugardögum kl. 8.00- 16.00. Sunnu-
dögum 8.00-11.00.
Slmi 23260.
Sundlaug Seltjarnarness: Opin mánudaga -
föstudaga kl. 7.10-20.30. Laugardaga kl. 7.10-
17.30. Sunnudaga kl. 8*17.30.