Tíminn - 22.12.1990, Blaðsíða 5
Laugardagur 22. desember 1990
Tíminn 5
Mikill áhugi fyrir roösútun hjá Sútunarverksmiöjunni á Akureyri:
Rík þjóð sem á 100
milljón þorskroð?
Hlýtur það ekki að vera rík þjóð sem á 100 milljón þorskroð — ef
marka má fréttir af nýju roðsútunarverksmiðiunni á Nýfundna-
landi? „Það mætti segja það,“ svaraði Hannes Arnason, verkefnis-
stjóri hjá tæknideild Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins.
Segir hann þetta verkefni hafa komið þar aðeins til skoðunar. Sút-
unarverksmiðjan á Akureyri hafi mikinn áhuga á að fara út í slíka
vinnslu, því auk þess að eiga megnið af vélakostinum sem til þarf sé
eitt stærsta útgerðarfyrirtæki landsins þar við bæjardyrnar. Til-
raunavinnsla hafl þó ekki gengið þar nógu vei til þessa. Vandinn sé
fyrst og fremst sá, að fínna út að hvaða leyti sútun á roði sé frá-
brugðin sútun á dýrahúðum.
„Vandamálið er að þetta er atvinnu-
leyndarmál sem erfitt er að komast
yfir. Ég veit að Kanadamenn hafa
eytt þó nokkuð miklum fjármunum
í að þróa þennan vinnsluferil. Það er
væntanlega á því sem þessi nýju fyr-
irtæki þeirra byggja," sagði Hannes.
40 milljarða verðmæti
í roði sem nú er hent?
Hráefnisskortur ætti þó a.m.k. ekki
að vera vandamál hér á landi. Að
sögn Hannesar gætum við átt um
20.000 tonn af blautu þorsk- og
steinbítsroði er allt færi tii vinnslu,
en 10 til 15 þús. tonn væri þó
kannski raunhæfari tala.
Hér er því um að ræða 20- til 30-
falt það magn sem nýja þorskroða-
verksmiðjan á Nýfundnalandi áætlar
að breyta í 2ja milljarða króna út-
flutningsverðmæti. (Þorskroðið
skyldi þó ekki eiga eftir að verða Ak-
ureyringum drýgri „stóriðja" heldur
en álverksmiðjan hefði orðið?)
Grænlendingar selja
saltað roð til sútunar
Roðsútun virðist vaxandi iðnaður.
Auk verksmiðjanna í Kanada er
Hannesi kunnugt um danskt fyrir-
tæki sem kaupir söltuð steinbíts- og
hlýraroð af Færeyingum og Græn-
lendingum sem það lætur vinna fyr-
ir sig á Ítalíu. Þar er roðið sútað, lit-
að og yfirborðsmeðhöndlað til að fá
fallegri áferð. Sagðist Hannes hafa
séð mjög falleg „skinn“ frá þessu fyr-
irtæki. Sömuleiðis er honum kunn-
ugt um roðsútunarfyrirtæki sem
nýlega er tekið til starfa í Frakk-
landi.
Áhugi á Akureyri
Hannes sagði engar tilraunir enn
hafa farið fram í þessum efnum á
vegum Rannsóknastofnunar fisk-
iðnaðarins. En áhugi væri fyrir því
að tengjast verkefni sem reynt verði
að ýta af stað á næstunni, væntan-
lega í samvinnu við Sútunarverk-
smiðjuna á Akureyri. Finna þurfi
betri vinnsluaðferðir áður en fram-
leiðsla geti hafist á „roðskinnum".
Þetta verkefni muni þá snúast um
sútun á fiskroði almennt og þá
möguleika sem íslendingar eiga í
því sambandi.
Auk ógrynni hráefna búi íslending-
ar yfir mikilli reynslu af sútun dý-
raskinna. Það sem á vantar sé fyrst
og fremst að finna út að hvaða leyti
sútun á roði er frábrugðin. Takist
þetta, ætti að vera mjög heppilegt að
geta notað þær sútunarverksmiðjur
sem til eru í landinu, með flestum
þeim tækjum og búnaði sem til þarf,
en hafa nú minnkandi verkefni
vegna fækkunar á sauðfé.
Hannes segir íslendinga einnig að
því leyti eiga völ á betra roði til
vinnslu en margir aðrir, að þeir
veiða almennt stærri fisk. Roðið sem
franska verksmiðjan fái til vinnslu
sé t.d. af mun smærri fiski, sem þar
með þýðir smærri „skinn". En það
er eðlilega ókostur þegar kemur að
því að framleiða vörur úr þessum
skinnum. Miðað við roð sem Hann-
es hefur séð frá Grænlandi hafa
menn þar bætt úr þessu með því að
rífa roðið af steinbítnum heilum en
ekki af flökum, eins og roðflettivél-
arnar gera. Roðið af bakugganum
kemur þá með og skinnið verður
stærra.
„Þetta er eitt af því sem við þurfum
að skoða í sambandi við þetta vænt-
anlega verkefni okkar."
Roðskómir ekki úr
sútuðu roði
Roðskór eru svo sem ekkert ný-
mæli á íslandi þar sem menn hafa
gert og gengið í skóm úr steinbíts-
roði öldum saman. Gallinn við þá
Hannes Ámason sýndi okkur sútað steinbítsroð sem saltað var á Græn-
landi og sútað á ftalíu fýrír fýrírtæki í Danmörku. Kemur glöggt í Ijós hve
„skinnið" er miklu stærra en ella vegna þess að uggaroðið er áfast
Seðlaveskið er úr hlýraroði. Timamynd: Pjetur
skógerð var hins vegar sá, að sögn
Hannesar, að þar var bara um þurrk-
un að ræða. Roðið var ekki sútað og
búið til úr því leður, heldur aðeins
þurrkað og nuddað þangað til það
var sæmilega mjúkt. Með þeim
hætti fáist ekki almennileg rotvörn
eins og við sútun.
Roð hf. starfrækt
í áratug
Sútun á roði er samt alls ekki glæ-
nýtt fyrirbæri hér á landi. Að sögn
Hannesar var fyrirtækið Roð hf.
stofnað hér skömmu eftir síðari
heimstyrjöld. Roð hf. keypti vélar til
landsins og réð til sín danskan sút-
ara, sem unnið hafði við sútun á
roði. Gallinn var hins vegar sá að
ekki fékkst nógu hátt verð fyrir sút-
að steinbítsroð á þessum tíma. Og í
annan stað var roðvinnslan ein og
sér ekki næg til að standa undir
áframhaldandi rekstri. En af ein-
hverjum ástæðum reyndist erfitt að
fá skinn til sútunar meðfram. Roð
hf. hætti því starfsemi á síðari hluta
6. áratugarins.
Spurður sagði Hannes steinbítsroð
fljótt á litið virðast hvað auðveldast
til vinnslu. M.a. sé lítið hreistur á
því, auk þess sem það sé raunveru-
lega mjög sterkt. Hannesi er t.d.
kunnugt um að hreistrið hafi reynst
Kanadamönnum nokkurt vandamál
við sútun á laxroði. Þorskroð hafi
þann kost að vera lítið hreistrað, en
sútun á því hafi minna verið reynd
hér á landi. Af þorskroði fæst hér
hins vegar miklu meira magn.
- HEI
Fimmta kanadíska roðsútunarverksmiðjan tekur til starfa á Nýfundnaiandi í janúar:
2ja milljarða verðmæti
úr 5001. af þorskroði
Skór, buddur og belti úr þorsk-
roði? „Því ekki?“ svarar kanadíski
fckaupsýslumaðurinn Larry Gus-
hue, sem opnar nýja verksmiðju
til sútunar á þorskroði á Ný-
fundnalandi nú í janúar. Það er
fimmta roðsútunarverksmiðan í
Kanada, samkvæmt frétt á við-
skiptasíðu The Ottawa Citizen.
Nýja verksmiðjan er við Trinity-
fióa á Nýfundnalandi, þar sem
góðu þorskroði að verðmæti millj-
óna dollara er hent árlega, að sögn
verksmiðjueigandans. Kanadískur
„byggðasjóður“ hefur samþykkt
að leggja fram þriðjunginn af um
616 þús. dollara (um 30 millj. ísl.
krónur) byggingarkostnaði verk-
smiðjunnar. Áætlað er að 150
manns starfi í verksmiðjunni þeg-
ar vinnslan verður komin í fullan
gang.
Hráefnlð fyrir hlna nýju verk-
smiðju eru þau u.þ.b. 500 tonn af
þorskroði, sem árlega hefur verið
hent til þessa hjá stóru fisk-
vinnslufyrirtæki (National Sea
Products plant) í bænum Carpel
Arm.
Úr þessu roði segir Lany Gushue
hægt að vinna um 12 milljón fer-
fet af fullunnu „þorskskinni“ á
ári. Sútun á roði sé afar einföld og
auðveld. Verð á sútuðu roði sé um
4 doUarar (190 kr.) ferfetið, sem
sé ódýrt skinn. Það þýðir áætlað
um 48 milljóna dollara (2ja mil]j-
arða kr.) framleiðsluverðmæti
verksmiðjunnar á ári.
Kaupendurnir eru Kóreumenn
sem framleiða tískufatnað, stíg-
vél, skó, töskur, belti og annan
leöurvarning úr þorskroðinu,
„Roðskó“, sem Larry Gushue seg-
ir bæði sterka og fallega, kveður
hann seljast fyrir allt upp í 400
Bandaríkjadali (22 þús. kr.).
„En er ekki fiskfýla af þessum
vörum?“ spyrja tortíyggnir, leður-
klæddir Kanadamenn. „Er svína-
lykt af svínsleöurjökkunum ykk-
ar?“ spyr Larry Gushue á mótí.
„Þetta er eins og hvert annað leð-
ur.“
Hann bendir á að Kóreumenn
hafi sútað fiskroð í 1.000 ár
(kannski álíka lengi og íslending-
ar gerðu sér skó úr steinbíts-
roði?). Þar og víðar um Austur-
lönd flær sé hins vegar mikill
skortur á htáefni til þeirrar
vinnslu, því þar um slóðir roð-
fletti menn sjaldnast flsk fyrr en
hann er kominn á diskinn þeirra.
Hvað snertir framtíðarmarkað er
Larry Gushue afar bjartsýnn.
Hann bendir á að framboð á leðri
til sútunar á heimsmarkaði fari
óðum minnkandi. í fyrsta lagi
vegna þess hvað fólk dregur nú
mildð úr nautakjötsáti, og f öðru
lagi vegna stöðugt vaxandi mót-
mæla gegn slátrun á dýrum ein-
göngu í því skyni að fá af þeim
skinnið.
Á sama tíma stóraukist markað-
ur fyrir skinnavörur. Síðustu 2-3
ár hafi t.d. um 200 milljónir Kín-
veija keypt sér leðurskó í fyrsta
skiptí á ævinnf. Áður hafi þeir
ekki haft efni á slíkum munaðar-
vörum.
Fyrir eru í Kanada Ijórar verk-
smiðjur sem súta fiskroð, sem
fyrr segir. Tvær í Bresku Kólumb-
íu sem súta laxroð, ein í Ontaríó
sem vinnur úr roði af vatnakarfa
og sú fjórða í Nova Scotía, sem
sútað hefur roð af fimm fiskteg-
undurn, m.a. þorskroð frá Ný-
fundnalandi. - HEI