Tíminn - 22.12.1990, Síða 10

Tíminn - 22.12.1990, Síða 10
lOTíminn Laugardagur 22. desember 1990 Erlend börn hafa sent jólasveininum bréf til íslands í fjölda ára: „Til jólasveinsins, Islandi, Norðurpól“ Þeir þrettán íslensku jólasveinar sem búa hér í fjöllunum og eiga sér föður að nafni Leppalúða og móður sem heitir Grýla, eru nú ekki þeir, eða frekar sá jólasveinn sem þekktastur er erlendis. Sá jóla- sveinn gengur í rauðum fötum með hvítu skinni á köntunum og er með sítt hvítt skegg. Hann er góður og gefur alltaf þægu bömunum fjafir um jólin, en mörg erlend börn halda að þessi jólasveinn búi á slandi. Kannski gerir hann það. í fjölda ára hafa borist til íslands bréf frá bömum f öðrum löndum sem skrifa jólasveininum óskir sín- ar. Þessi bréf bárust alltaf Ferða- skrifstofu ríkisins þar sem Helga Þorsteinsdóttir hafði þann starfa að svara bréfum barnanna. Hún hætti störfum fyrir tveimur árum og tóku þá þær Margrét Steingrímsdóttir og Auður Birgisdóttir, starfsmenn Ferðaskrifstofu íslands, eins og hún heitir nú, við ritarastarfinu. „Það hefur verið ósköp lítið nú í ár; það eru aðallega nokkrir kennarar í Bretlandi sem senda okkur bréf frá nemendum sínum og svo nokkrir fleiri,“ sagði Margrét hjá Ferðaskrif- stofu íslands. Margrét sagði einnig að flest þau bréf, sem þau fengju núna, væru stfluð beint á þá. Magn- ús Oddsson hjá Ferðamálaráði sagði að þeim bærust nokkur bréf á ári sem hefðu þá oftast verið send beint til annarra ríkisstofnanna, en frá tieim færu þau öll til Ferðaskrifstofu slands. Frá Ferðaskrifstofunni fá bömin sent kort frá jólasveininum sem á er prentaður texti á ensku. Hann er á þessa leið í íslenskri þýðingu: „Kæri vinur, Ég var mjög ánægður að fá bréfið frá þér. Ég óska þér gleðilegra jóla og mun gera mitt besta til að uppfylla óskir þínar, vegna þess að ég veit að þú ert ósköp góður. Ástar- kveðjur, Jólasveinninn." Það hafa fleiri aðilar tekið að sér þann starfa að vera jólasveinn. Norð- urpóll er fyrirtæki sem hefur auglýst erlendis að jólasveininn væri að finna á íslandi. Þeir vinna gjarna í samstarfi við aðila erlendis og fá Rafmagnseftirlit ríkisins: FARIÐ VARLEGA MEÐ RAFMAGNIÐ Jólin með allri sinni ljósadýrð eru nú að ganga í garð. í fréttatilkynn- ingu frá Rafmagnseftirliti ríkisins er fólk minnt á að líta eftir og huga að rafmagnstækjum, tenglum, jólaseríum o.fl., því að oft vill brenna við að slfltir hlutir gleymast í öllu amstrinu fyrir jólin. Að sögn Bergs Jónssonar hjá Raf- magnseftirlitinu leggja þeir aðal- áherslu á þar að fólk kunni að um- gangast rafmagnið á þann hátt að það stafi ekki hætta af því. Bergur sagði að það væri ýmislegt í sam- bandi við meðferð á rafmagni sem þyrfti að gæta að nú um jólin. T.d. Margrét Hallgrímsdóttir borgarminjavörður afhendir Davíð Oddssyni borgarstjóra fyrsta tölusetta eintakið af Reykjavíkurmyndum Jóns bisk- ups. Reykjavíkurmyndir Jóns Helgasonar Fyrsta askjan af þremur með mynd- um Jóns Helgasonar biskups var formlega gefln út s.l. miðvikudag- inn. í þessari fyrstu öskju eru birt- ar Reykjavíkurmyndir og ritar Guð- jón Fríðríksson skýríngartexta við hvetja mynd, og einnig stuttan inn- gang um ævi og starfsferil Jóns. Útgefendur eru Árbæjarsafn og ís- landsmyndir og er askjan gefln út í 500 tölusettum eintökum. Árið 1945 eignaðist Reykjavíkur- borg myndir Jóns Helgasonar bisk- ups, sem eru á annað hundrað tals- ins. „Má telja þetta heilsteypta myndasafn upphafið að minjasafni Reykjavíkur og eru myndirnar nú meðal mestu dýrgripa Árbæjarsafns og ómetanlegar heimildir um sögu borgarinnar," segir í fréttatilkynn- ingu frá Árbæjarsafni. Jón Helgason var biskup á árunum 1917 til 1938. Þrátt fyrir embættisstörf lagði hann ekki dráttlistina á hilluna, en hana hafði hann numið samhliða prests- námi í Kaupmannahöfn. -hs. I S>2_íí\o\d fiood .....Oae%idU2. __________ ______ 9cáknr C2wv5Ímaó---- ______PteaÆe rílau A—x*ðu&..-£eT—— c\vr’v^vpwSvJ o. roiHi. 5ÍiSr'en- CUv<i 'fejio booVc& -Ond Q.J cotíx>n áress aná CL (Jolr oP Svoes. ----------- -- h ðcp OJre uou oLaxjs aacL cSouíd WCtóV bo.cU......piecrs^ Srent-c, r., c Nokkur bréf- anna sem bárnst Ferða- skrífstofú (s- lands nú fyrir jólin. væru perur utan á handriðum mjög varhugaverðar. „Þessar perur eru yfirleitt með 220 volta spennu og geta skapað mikla hætta. Ef pera slæst utan í eitthvað eða brotnar af einhverjum öðrum orsökum, þá standa vírarnir sem em inni í perunni út í loftið. Vírarnir geta verið lífshættulegir þar sem full spenna er á þeim. Menn geta rekið sig í þetta á þröngum svölum eða börn snert vírana óvart. Því er um að gera að ganga frá greinunum þannig að engin hætta sé á því að þær verði fyrir hnjaski og passa að ekki rigni ofan í perustæðið," sagði Bergur. Bergur vildi líka minna fólk á það að hafa ekki of stórar perur í neinum ljósum. „í öllum kösturum og flest- um ljósum eiga að vera upplýsingar um það hvað það mega vera stórar perur í viðkomandi lampa og fólk má alls ekki fara upp fyrir það. Einn- ig þarf að gæta þess í sambandi við ljóskastara að þeim sé ekki komið fýrir nálægt brennanlegum hlutum. Fyrir hefur komið að kviknað hefur í efnum af þessum sökum." Rafmagnseftirlit ríkisins minnir fólk á það í fréttatilkynningunni að slökkva á ljósasamstæðum og öðr- um skrautljósum á nóttunni, og eins ef íbúðin er skilin eftir mann- laus. Sama gildir um sjónvarp og önnur rafeindatæki en sjónvarps- tæki geta átt það til að bila með þeim afleiðingum að það kvikni í þeim. Fólki er ráðlagt að kaupa Ijósasam- stæður sem hafa fengið gildingu hjá Rafmagnseftirliti ríkisins og fara eft- ir þeim leiðbeiningum sem fylgja hverju sinni á íslensku. khg. sent í gegnum þá nöfn barna sem vilja fá bréf frá jólasveininum. „Þeir bjóða jólakort og bréf frá jólasvein- inum á íslandi og nota hluta af þessu til styrktar sinni starfsemi,“ sagði Hermann Auðunsson, aðstoð- armaður jólasveinsins hjá Norður- pól. Hermann sagði að þeir hefðu verið með þessa landkynningu í gangi í nokkur ár og „við sendum börnun- um sérstakt jólakort með myndum af jólasveininum. Síðan sendum við þeim bréf, sögu og viðurkenningar- skjal frá jólasveininum fyrir að hafa verið gott barn. Svo og er hvatt til að börnin skrifi jólasveininum. Þetta hefur mælst mjög vel fyrir." Hermann sagði einnig að starfsemi þeirra hafi ekki enn náð þeim styrk- leika að ríkið sjái sér fært að styrkja þetta, en það er gert á flestum hinna Norðurlandanna, svo sem á Græn- landi og í Finnlandi. „Þetta er mikil landkynning og því viljum við held- ur að jólasveinninn búi á íslandi en í Finnlandi eða annarstaðar," sagði Hermann, aðstoðarmaður jóla- sveinsins, jafnframt. —GEÓ ........................llfc__Barftfb ________CloSc._Cpnt^»»5 _____ ~DzS\ck. ___ _Ct***»í ____________Ci~£>itoá Deor Vabr\e.r Chr'Stroo«S j. 31 uJtxnb Q rnoJb fi SiviÉ. : por CWnSlmaS... I- ^JOsJlá SYc , te hec\r QBooV Vfe. JoJn i <doa.~s C.r«- . ! Fi^. UJiyrí oJl 'fho.ve. CO^orS iX r(axnc.fnScr X <2o/ei ! 3=»JV' £a. n daars Some corobj ; Qríd X ^ova Síjoo Sorno. ! vjj.no- c\\c\ s^óor fam cWri L,**. Cö.'TOLs CW CouicJ X jioye. iw uPsdaiý cfa>l/ Por Chn£prry>-S On<J i /h/k X X a Cord JZQsLr V $ 2£. CoMdJS &ÚAío. Cte«S/<* --- CW 2j/n?qo .Pea.r Potlier CKr.'SAmaí .n Hooo OSt anj ChtOXAí rtlnjeef^ ncjt-o ij fríartA C»4ha>- do „ ucx* fúd ih. fídoaees feo nowe F/u ? CffVld X , haGe. cl Cortra. mu Ouja (chah Laúuid. be loueiy Colei-he ■ Þetta verður algengasti jólamaturínn á boröum landsmanna á aö- fangadagskvöld. Hamborgarhryggurínn hefur ótvíræðan vinning fram yfir annan hátíðamat, svo sem hangikjöt, rjúpur, kalkúna eða annað lostæti. Timamynd: Pjetur Ferðir rútubíla um jól og áramót Jól og áramót eru miklir annatímar hjá sérleyfíshöfum vegna stórauk- inna ferðalaga fólks til ýmissa staða víða um landið. Á öllum styttrí leið- um út frá Reykjavík eru rútuferðir frá einni upp í sjö ferðir á dag, en á langleiðum, s.s. til Akureyrar og á Snæfellsnes, eru daglegar ferðir. Um annatímann sem nú fer í hönd ætla sérleyfishafar hinsvegar að bæta við allmörgum aukaferðum, svo þjónustan við farþega megi verða sem best. Þegar nær dregur jólum eru dag- lega fleiri en 50 komur og brottfarir sérleyfisbifreiða frá Umferðarmið- stöðinni og ætla má að á bilinu 2500- 3000 farþegar séu á ferðinni með sér- leyfishöfum á degi hverjum síðustu daga fyrir jól. Síðustu ferðir fyrir jól á lengstu sérleyfisleiðum frá Umferðarmið- stöðinni eru á Þorláksmessu kl. 8.00 og 17.00 til Akureyrar, kl. 8.30 til Hafnar í Hornafirði, á Snæfellsnes kl. 17.00. og 19.00 og til Hólmavíkur kl. 10.00. Síðustu ferðir fyrir jól frá Um- ferðarmiðstöðinni eru á aðfangadag kl. 13.00 til Borgarness, Laugarvatns, Þorlákshafnar og Hrunamanna- /Gnúpverjahrepps, kl. 13.30 til Hellu og Hvolsvallar, kl. 15.00 til Hvera- gerðis og Selfoss og kl. 15.30 til Keflavíkur. Á jóladag eru sérleyfisbif- reiðar ekki í förum. Á gamlársdag eru síðustu ferðir frá Umferðarmiðstöð- inni kl. 15.00 til Hverageröis og Sel- foss og kl. 15.30 til Keflavíkur. Á nýársdag aka margar sérleyfisbif- reiðar ekki, en á styttri leiðum er ek- ið síðdegis til og frá Borgarnesi, Hveragerði, Selfossi, Þorlákshöfn, Laugarvatni og Keflavík. Sérleyfis- hafar hvetja fólk til að panta sér far, eða kaupa farmiða tímanlega, svo auðveldara sé að koma farþegum bæði fljótt og örugglega til vina og skyldmenna sinna um þessi jól og áramót. Allar nánari upplýsingar um ferðir sérleyfishafa eru veittar hjá B.S.Í., Umferðarmiðstöðinni, s: 91- 22300. khg.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.