Tíminn - 20.02.1993, Page 1
BSB8I
Laugardagur
20. febrúar 1993
35. tbl. 77. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Herjólfsdeilan:
Slitnaði upp
úr viðræðum
heimi.
,; Þær eru óneitanlega gómsætar að sjá boll-
| umar sem Vigfús Bjömsson bakari og fé-
^ lagar I Breiðholtsbakaríi bjóða viðskipta-
p vinum sinum uppá þessa dagana. Þaö er
■ því viðbúið að það veröl f nógu aö snúast
I hjá Margréti Guöjónsdóttur við að afgreiöa
lalla þá fjölmörgu sem munu leggja leið
1 sína í bakaríið sem verður 20 ára f næstu
f§ viku. Timamynd Ámi Bjama
Bolludagurinn:
Annríki í bakaríum
Þótt bolludagurinn sé á mánudag
taka margir forskot á sæluna og
gæða sér á gómsætum bollum um
þessa helgi.
Það er því viðbúið að það verði
handagangur í öskjunni í bakaríum
landsins, bæði við afgreiðslu og bakst-
ur. Að sama skapi mun ungviðið verða
iðið við flengja sína nánustu með
vendi og fá bollu fyrir.
Ekki er óvarlegt að ætla að bakaðar
verði hátt í 400 þúsund bollur á land-
inu öllu en verð á hverri einstakri er
frá 109 og allt upp í 150-160 krónur.
Þetta mun vera sama verð og á síðasta
ári en engu að síður er líklegt að ein-
hverjir muni baka sína bollur sjálfir í
stað þess að kaupa þær tilbúnar. -grh
SFR hótar verkfalli
Starfsmannafélag ríkisstofnana
hefur samþykkt að efna til allsherj-
aratkvæðagreiðslu um verkfall sem
hæfist 22. mars.
Atkvæðagreiðslan fer fram 4. mars
Baksvið
heims-
viðburðanna
Dagur Þorleifsson
skrífar um glæpi og of-
beldi í hinum vestræna
og verða atkvæði talin daginn eftir.
Kjarakröfum sem félagið hefur sett
fram hefur verið hafnað og telur fé-
lagið verkfallsboðun eðlilegt fram-
hald af því.
í tilkynningu frá SFR er hvatt til
samstöðu allra launþegahreyfing-
anna í landinu. Það sé eina leiðin til
að hrinda þeim skerðingum sem yfir
almenning hafa dunið að undan-
fömu. Jafnframt er skorað á ríkið að
fallast á réttlátar kröfur félagsins svo
að hægt verði að komast hjá verk-
föllum. -EÓ
I gær slitnaði upp úr samninga-
viðræðum í Herjólfsdeilunni.
Stjórn Herjólfs kom saman síð-
degis í gær og ræddi þann
möguleika að segja allri áhöfn-
inni upp störfum.
Hólmgeir Jónsson, framkvæmda-
stjóri Sjómannasambandsins, segir
að eftir fund með stjórn Herjólfs og
formanni Sjómannafélagsins Jötuns
í gær hafi hann það á tilfinningunni
að lausn deilunnar felist í því að
lækka laun undirmanna.
„Þá er orðið nægilegt launabil svo
menn séu sáttir. Það er Stýrimanna-
félagið sem er í verkfalli en ekki Sjó-
mannafélagið Jötunn en við stýri-
mennina er nánast ekkert talað. Það
versta í þessu er að það er ekki VSÍ
sem hefur sett þetta svona upp held-
ur yfirmennirnir.“
Svo virðist sem engin lausn sé í
sjónmáli í verkfalli stýrimanna á
Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi. Á
fundi í gær lagði Sjómannafélagið
Jötunn fram tilboð um framleng-
ingu á óbreyttum kjarasamningi
undirmanna á Herjólfi án tillits til
þess hvað aðrir í áhöfn skipsins
mundu semja um síðar. En samn-
ingur undirmanna rennur út 1.
mars.
Jötunn fór þó fram á að stjórn Her-
jólfs mundi taka til baka uppsögn á
greiðslu á frídögum.
Hólmgeir segir ekki tímabært að
ræða um einhvern heildarsamning í
þeirri stöðu sem málið virðist vera
komið í.
„Ég held að það sé rétt að þeir svari
okkar tilboði fyrst."
Sáttafundur í deilunni hefur ekki
verið boðaður og ekki útlit fýrir að
svo verði á næstunni eftir það sem á
undan er gengið.
-grh
Ábyrgðar-
leysi að
berjast ekki
Helgarviðtalið er við
Svanhildi Kaaber, for-
mann KÍ.
Blaðsíða 6-7.
Undankeppni
Evrópu-
söngva-
keppninnar
Hvaða Iag og flytjendur
fara til írlands fyrir
hönd íslands?
Blaðsíða 12.
Löng og erfið barátta Soffíu Hansen heldur áfram:
Dætur Soffíu búa við
ömurlegar aðstæður
Mál Soffíu Hansen sem berst fyrir því að fá dætur sínar heim til ís-
lands hefur veríð tekið fyrir hjá tyrkneskum dómstólum að nýju.
Um er að ræða mál sem höfðað var vegna brota Halims Al, foður
stúlknanna, á umgengisrétti, en sem kunnugt er hefur Soffía ekki
fengið að sjá dætur sínar þrátt fyrír að dómstólar hafl dæmt henni
rétt til þess. í vikunni birti tyrkneskt blað frétt þar sem lýst er öm-
urlegum aðstæðum barnanna.
Blaðsíða 8-9.
J
r Fá útlend- ^
ingar aö fjár-
festa í ís-
lenskum
sjávarút-
vegsfyrir-
tækjum?
Blaðsíða 2.
V_J
Við réttarhöldin í fýrradag mætti
Halim Al ekki og enginn fyrir hans
hönd. Lögmaður Soffíu óskaði eftir
því að skipt yrði um dómara þar sem
honum fannst sem dómarinn drægi
taum Halims. Var orðið við þeirri
kröfu.
Dómarinn samþykkti að sameina
fjögur mál sem höfðuð hafa verið á
hendur Halim A1 vegna brota á um-
gengisrétti og brota á farbanni.
Dóms er að vænta í málinu 18. mars.
í vikunni birtist frétt í tyrkneska
blaðinu Aktuel. Þar er líst þeim að-
stæðum sem dætur Soffíu búa við.
í greininni kemur fram að stúlk-
urnar sækja ekki skóla, þrátt fyrir að
það beri þeim að gera lögum sam-
kvæmt. í staðinn eru þær látnar lesa
íslömsk fræði. Faðir telpnanna ekur
þeim í skólann klukkan hálf átta á
morgnanna og koma þær heim tólf
tímum síðar.
Stúlkunum er haldið mikið inni við
og fá ekki að leika sér við önnur
börn. Lokað hefur verið á öll sam-
skipti við nágranna.
Blaðamaðurinn náði tali af einum
þeirra sem leiðbeinir stúlkunum í
íslömskum fræðum. Leiðbeinand-
inn sagði að stúlkunum gengi vel að
læra. Eldri telpunni gengi þó mun
betur að læra kóraninn utan að en
þeirri yngri. Blaðamaðurinn spurði
leiðbeinandann hvort stúlkurnar
söknuðu móður sinnar og fékk það
svar að þær vildu ekki hitta mömmu
sína.
Blaðamaðurinn reyndi oftar en
einu sinni að ná sambandi við stúlk-
urnar og ná myndum af þeim að
skóladegi loknum en Halim kom í
veg fyrir að honum tækist það. Hann
Ijafði í hótunum við blaðamanninn,
tófiti honum m.a. á þrjá menn sem
biðu í bíl hans.
í greininni segir blaðamaðurinn að
telpurnar hafi verið því sem næst
heilaþvegnar og þeim hafi verið inn-
prentað að láta ekki útlendinga eða
útlend trúarbrögð hafa áhrif á sig og
hafa að engu það sem útlendingar
segðu.
Lokaorð greinarinnar eru að telp-
urnar búi við aðstæður sem geri það
að verkum að þær viti ekki einu
sinni hvað þær vilja sjálfar.
-EÓ