Tíminn - 20.02.1993, Blaðsíða 19

Tíminn - 20.02.1993, Blaðsíða 19
Laugardagur 20. febrúar 1993 Tíminn 19 Ingvar Gunnlaugsson bóndi, Syðra-Kolugili Fæddur 16. júní 1917 Dáinn 9. febrúar 1993 í dag er borinn til hinstu hvílu Ing- var frændi minn. Ingvar var fæddur að Kolugili í Víðidal, V- Hún., 16. júní 1917. Þar bjó hann og starfaði til dauðadags. Ingvar var sonur Gunnlaugs Daníelssonar og seinni konu hans Sigrúnar Jónsdóttur. Systkini hans og samfeðra voru Ingibjörg f. 1902, látin, Kristín f. 1903, látin, Bjöm f. 1904, bóndi á Ytra-Kolugili, Sigríður f. 1906, látin, Haraldur f. 1908, búsettur í Reykja- vík. Alsystkini Ingvars voru Agnar f. 1915, látinn, og Asa f. 1924, búsett á Syðra-Kolugili. Ingvar var ógiftur og bamlaus, en bjó í sambýli við systur sína Ásu og mág sinn Ragnar og er söknuður þeirra mikill. Minningamar hrannast upp við skyndilegt fráfall hans. Mér er minn- isstæður fyrsti morguninn minn í sveit á Kolugili. Ingvar kom fyrstur úr fjósinu, eins og hann var vanur, byrjaði að elda hafragraut og tók upp súrt slátur úr tunnu. Ég horfði andaktugur á þetta og hugsaði hvort hann ætlaði virkilega að borða þetta. Hann sneri sér við um leið og hann hrærði í pottinum og spurði mig um líðan skyldmenna fyrir sunnan. Hann hafði áhuga á að frétta af systkinum sínum. Að þessu búnu lagði hann á borð fyrir okkur og grauturinn hvarf ofaní hann, svo var rokið út að vinna. Já, vinna. Það var aldrei slegið slöku við vinnu á Kolugili. Unnið alla daga frá morgni til kvölds, ég hef aldrei kynnst eins duglegu fólki og Kolugilssystkinum. Ingvar var góður bóndi og átti grösuga jörð. Hann átti fallegt og vel hirt fé og góð hross. Ingvar var hógvær maður og hafði þægilegt viðmót. Hann var einstak- lega vel lyntur, hann reiddist aldrei hvorki við menn né skepnur. Hann var hjálpsamur maður og hændust auðveldlega að honum bæði börn og dýr. Hans lífsstíll var að sælla væri að gefa en þiggja. Ingvar var nátt- úmbarn og hafði yndi af fjallaferð- um, hvort sem hann fór í göngur á Arnarvatnsheiði eða í veiðiskap. Eitt vorið vomm við Ingvar uppi á Víðidalsfjalli að reka stóð. Þar var brún hryssa sem var nýköstuð rauðu hestfolaldi. Hann leit á folaldið og sagði að ég mætti eiga það. Þarna var kominn minn fýrsti hestur, en hestar hafa átt hug minn og fjöl- skyldu minnar síðan. Þetta þakka ég frænda mínum. Það em margir kílómetrarnir sem Ingvar hefur gengið um ævina, eða öllu heldur hlaupið við fót. Hann gaf sér sjaldan tíma til að skreppa í bæ- inn, en hjálpaði stundum bróður sínum Agnari við jólatréssölu í Bankastræti í Reykjavík. Einu sinni fór hann í ferð með bændum til Nor- egs. í dag kveð ég góðan dreng, Ijúfan og hjálpsaman, og bið guð að blessa minningu hans. Jón Albert Hj ónabandssæla Husbands and Wives *★* Framleiöandi: Robert Greenhut. Handrít og leikstjóm: Woody Allen. Aóalhlutverk: Woody Allen, Mia Farrow, Judy Davis, Sydney Pollack, Blythe Danner, Liam Neeson og Juliette Lewis. Stjörnubíó. Öllum leyfð. Á síðasta ári gerði heimspressan einkalífi Woody Allens og Miu Farrow ítarleg skil, en þau skildu eftir margra ára samband og sam- starf í kvikmyndum. Glöggir menn þóttust sjá greinilegt samband með efni þessarar myndar og atburðum í einkalífi Allens, þegar hann viður- kenndi að hann og 19 ára fósturdótt- ir hans hefðu staðið í ástarsam- bandi. Athyglin, sem málið vakti, varð til þess að Hjónabandssæla varð vinsælasta mynd Allens í langan tíma í Bandaríkjunum, en myndir hans eru mun vinsælli í Evrópu en þar, ef undan er skilin New York, sem er sögusvið flestra mynda hans. Allen leikur virtan prófessor í bók- menntum, sem er giftur Farrow, en hjónaband þeirra er orðið hálfl- íflaust. Þau komast þó ekki að því fyrr en bestu vinir þeirra, hjónin Pollack og Davis, tilkynna þeim skilnað sinn. Þau segjast skilja í mesta bróðerni, enda vel siðað fólk, en annað kemur á daginn þegar þau byrja að hitta annað fólk. Þá sprettur afbrýðisemin upp og gömul ágrein- ingsefni rifjast upp. Það er ekki laust við að Allen og Farrow öfundi þau talsvert, en þeim langar báðum að prófa að vera með öðru fólki, þótt þau segi ekki hvort öðru frá því. Al- len fær áhuga á Lewis, nemanda sín- um, en vægt til orða tekið virðast eldri menn hrífast mikið af henni. Hlutimir verða ekki síður flóknir hjá Farrow, en hún fær áhuga á vinnufélaga sínum, sem hún hafði asnast til að kynna fyrir Davis og koma þeim í raun saman. Áhorfand- inn fylgist með uppákomum í lífi persónanna og þær útskýra einnig gerðir sínar og skoðanir í viðtölum við spyril, sem ekki er hluti fram- vindunnar að öðm leyti. Eins og svo oft áður eru það sam- skipti kynjanna, sem em fyrirferðar- mest í handriti Allens. Hann tekur skemmtilega fyrir „litlu“ atriðin í fari makans, sem fara í taugarnar á hinum aðilanum, og kristallast þetta í persónu Judy Davis, sem hún túlk- ar frábærlega. Carlo di Palma stjóm- ar tökuvélinni af fagmennsku, en sum atriðin em talsvert löng og óklippt og stíllinn er svipaður og í heimildarmynd. Engin tónlist heyr- ist í myndinni, nema við upphaf og endi á meðan titiarnir sjást, ekki einu sinni ein jassfluga, sem oft V._______________________________________/ heyrast í myndum Allens. Fyrri hluti myndarinnar er frábær, með fullt af fyndnum samtölum, en henni fatast aðeins flugið í seinni hlutanum, samt ekki svo mikið að gæðin rýrni að ráði. Ég tel að sómablöðin í Bandaríkj- unum hafi nú ýkt fullmikið sam- bandið milli einkalífs Allens og myndarinnar, en myndir hans hafa þó oft verið allpersónulegar. Leikararnir inna starf sitt fagmann- lega af hendi, enda þarf Woody Allen ekki að biðja góða leikara oft um að leika í myndum sínum, því þeir eru allir meira en lítið fúsir til að vinna með honum. Þótt allir standi þeir sig vel, skyggir Judy Davis á þá alla. Hún túlkar taugaveiklaða og skap- stirða persónu sína frábærlega og erfitt verður að ganga fram hjá henni, þegar Oskarsverðlaunin verða afhent fyrir bestan leik í auka- hlutverki, en hún hefur fengið ýmis verðlaun nú þegar fyrir leik sinn í þessari mynd. Woody Allen er mikill listamaður og Hjónabandssæla er tvímælalaust með verkum hans. Að venju er fag- mennskan í fyrirrúmi og handritið skemmtilegt, sérstaklega fyrri hlut- inn, og Judy Davis vinnur eftir- minnilegan leiksigur. Örn Markússon íIlaðírávántaPi I YMIS HVERFI Lynghálsi 9. Sími 686300 BÚFJÁRKLIPPUR .... Frábær rúningsvél, sem fer vel í hendi. LISCOP EINNIG FYRIR KÝROG HROSS. EIIílllI VÉLAR& ÞJÓNUSTAHF Sfmi 91 - 68 32 66 r---------------------------------------------------á Útboð Breiðholtsbraut, Elliðavatns- vegur-Jaðarsel Vegagerð rikisins óskar eftir tilboöum i lagningu um 2ja km kafla á Breiðholtsbraut milli Elliða- vatnsvegar og Jaðarsels. Helstu magntölur: Fylling og buröarlög 78.000 m3, skering í laus jarölög 57.000 m3, skering i berg 13.000 m3, malbik 23.000 m2, umferöareyj- ar 1.700 m2 og steinsteypa 170 m3. Verki skal lokiö 10. september 1993. Útboösgögn verða afhent hjá Vegagerð rikisins, Borgartúni 5, Reykjavik (aöalgjaldkera), frá og meö 22. febrúar n.k. Skila skal tilboöum á sama staö fyrir kl. 14:00 þann 8. mars 1993. Vegamálastjóri __________________________________J Innkaupastofnun Reykjavikurborgar, f.h. byggingadeildar borg- arverkfræðings, óskar eftir tilboðum i smíði á leiktækjum og ýmsum búnaði fyrir Fjölskyldugarö i Laugardal. Um er að ræða smiöi og uppsetningu leiktækja úr tré ásamt merkingum og uppsetningu á leiktækjum og frágangi við leik- svæði. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3, Reykjavik, frá og með þriöjudeginum 23. febrúar, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuö á sama stað miövikudaginn 10. mars 1993, kl. 11,00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkiuveqi 3 - Simi 25800

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.