Tíminn - 20.02.1993, Page 7
Laugardagur 20. febrúar 1993
Tíminn 7
gerð með ákvörðun um gengisfell-
ingu. í framhaldi af því eru teknar
ákvarðanir sem draga enn frekar
úr kaupmætti og jafnframt er
horft fram á enn meiri skerðingu
kaupmáttar. Ef forsætisráðherra
skilur ekki að tekist sé á um slíka
hluti þá er hann á einhverju allt
öðru róli,“ segir Svanhildur.
Kjarabarátta kennara
forsenda farsæls
skólastarfs
Nú hafa verkföll kennara í HÍK
verið tíð undafarinn áratug og
komið kannski harðast niður á
nemendum í efri bekkjum grunn-
og framhaldsskóla. Hafa þessar að-
gerðir nokkru skilað nema
óánægðum nemendum og foreldr-
um?
„Kennarar eiga að tryggja gott
skólastarf og bera á því ábyrgð.
Það er ekki hægt að slíta það frá
kjörum þeirra sem vinna innan
skólanna. Það verður aldrei góður
skóli sem hefur ekki vel menntað
starfsfólk sem býr við sæmilegt ör-
yggi í starfi sínu. Það hvernig
kjaramálum er komið núna og í
hvern farveg þau hafa verið að fara
á undanförnum árum er ekki til
þess fallið að bæta skólastarfið í
landinu. Þess vegna get ég alveg
eins séð það sem stuðning við
markmið um farsælt skólastarf að
kennarar séu sterkir í kjarabaráttu
sinni."
Vonum að ekkí komi
til verkfalls
Eru kennarar tilbúnir í langt
verkfall og eigið þið digran verk-
fallssjóð?
.Auðvitað vonum við að við þurf-
um ekki að fara í verkfall og náum
samningi áður en til þess kemur.
Kennarasambandið á góðan verk-
fallssjóð sem við höfum verið lengi
að safna í en hann er hins vegar
ekki ótæmandi frekar en aðrir
sjóðir og það er erfitt að segja til
um hversu lengi sjóðurinn dugar.
Það veitir okkur samt sannarlega
mikinn stuðning að vita af honum
og geta stutt félagsmenn okkar.
Markmiðið er að ná samningi en
ekki að fara í verkfall. Mér finnst
umræðan fara nokkuð í þann far-
veg eins og markmiðið sé verkfall
en það er auðvitað alrangt. Samn-
ingurinn er auðvitað aðalatriðið.
Þá vil ég taka fram að það er ver-
ið að undirbúa alsherjaratkvæða-
greiðslu. Við búum eins og aðrir
opinberir starfsmenn við mjög
þröng lög. Það eru mjög þröng
ákvæði um það hvemig á að taka
ákvörðun um svona stórmál eins
og verkfall og boðun þess. Það þarf
minnst helmingur félagsmanna að
taka þátt og minnst helmingur
þeirra verður að segja já. Við erum
ekki búin að sjá það fyrir því at-
kvæðagreiðslan fer fram í næstu
viku,“ segir Svanhildur.
Aðeins tveir
kostir til
Nú átt þú fundi vítt og breitt um
landið með félögum þínum.
Hvemig finnst þér stemmningin
vera ?
„Það er mikil samstaða um að ná
fram kröfunum. Við leggjum
áherslu á að það sé alvarleg
ákvörðun að fara í verkfall og fé-
lagsmenn verði að ígmnda mjög
vandlega hvað þeir vilji gera. Við
höfum gert fólki skýra grein fyrir
því hverjir kostirnir séu og þeir
eru ekki nema tveir.
Þeir sem segja nei við því að fara
í verkfall eru þar með að segja að
þeir ætli ekki frekar að hafa af-
skipti af kjörum sínum, starfsað-
stæðum eða umhverfi. Jafnframt
eru þeir að segja að þeir séu til-
búnir til að láta skammta sér laun.
Þeir sem segja já við verkfalli eru
hins vegar ekki tilbúnir að búa við
sífellt lakari lífskjör og verri af-
komu,“ segir Svanhildur. Hún
bætir við að forysta Kennarasam-
bandsins sé mjög samstíga og
bendir á að ákvörðun um atkvæða-
greiðslu vegna verkfallsboðunar
hafi verið samþykkt í fulltrúaráði
með 95 af hundraði greiddra at-
kvæða.
Kennurum kennt um
allt sem aflaga fer
Það hefúr verið rætt um að nem-
endur komi illa undirbúnir til
náms í framhaldsskóla. Meðal
annars hefur verið bent á að ólæsi
færist í vöxt og fjórðungur nem-
enda hætti námi að grunnskóla
loknum. Eru íslenskir kennarar
slakir?
„íslenskir kennarar eru náttúru-
lega bara fólk og misjafnir eins og
aðrir. Ég ætla ekki að segja að allir
af um 4.000 félagsmönnum séu
fullkomnir kennarar. Það eru ekki
heldur allir fúllkomnir í öðrum
stéttum. Við eigum samt mjög
góða og vel menntaða kennara
sem vilja sinna starfi sínu mjög vel
og gera allt sem þeir geta til þess.
Það hefur samt verið landlægt og
fljótlegt mjög lengi að kenna
grunnskólanum um allt sem af-
laga fer í þjóðfélaginu. Mönnum
hættir til að líta á grunnskólann
sem eitthvert einangrað fyrirbæri
en það er hann ekki. Hann er hluti
af því samfélagi sem við búum í.
Þeir sem hafa stjórnað samfélag-
inu hafa komið kjörum fólks svo
fyrir að það þarf minnst tvær fyrir-
vinnur með hverri fjölskyldu.
Vinnuálag á íslandi er gífurlega
mikið og vinnutíminn mjög lang-
ur. Skóladagurinn er ekki sam-
felldur.
Margt þess háttar spilar saman og
gerir að verkum að böm og ung-
lingar nú fá allt aðra umhirðu og
viðmót heima hjá sér en þeir
gerðu fyrir 20 ámm síðan. Við
þetta bætist tæknibylting, fjöl-
miðlar og önnur áhrif.
Allt þetta verður til þess að það er
ekki lengur dægradvöl venjulegs
fólks að setjast niður með bók í
hönd. Það er ekkert síður það sem
veldur því að lestrarkunnáttu
kann að vera ábótavant.
Þegar börn alast ekki upp við það
að njóta þess að lesa og ekki er les-
ið fyrir þau heima fyrir þá em
minni líkur á að þau tileinki sér
þessa iðju.
Með þessu er ég að segja að það
megi ekki leggja alla ábyrgð á skól-
ann eða skólakerfið. Þetta er sam-
eiginleg ábyrgð okkar allra í sam-
félaginu. Það er ekkert síður
ábyrgð foreldranna. Ég held hins
vegar að góður skóli þar sem
starfsmenn búa við sæmilegt ör-
yggi geti orðið til stuðnings í
þessu. Það er ekki hægt að einfald-
lega fría alla aðra,“ segir Svanhild-
ur.
Styrkinn
vantar
Nú hafa kennarar talað mikið um
faglega vitund, endurmenntun,
starfsleikninám og þess háttar.
Hefur þetta nokkuð skilað sér inn í
skólana? Em kennarar á réttri
leið?
„f sambandi við þetta ætla ég að
benda á tillögur sem hafa komið
frá nefnd um mótun mennta-
stefnu. Þar er talað um tímamóta-
tillögur en engin einasta gmnd-
vallarbreyting á gmnnskólanum
er lögð fram önnur en sú að flytja
kostnaðinn af honum yfir á sveita-
félögin þar sem ríkið vill losna við
þann kostnað.
Það hefur ríkt mjög mikil sátt um
skólastarfið eins og það hefur ver-
ið. Það hafa allir verið sammála
um að til þess að geta komið til
móts við kröfur samfélagsins um
breytingar á skólastarfinu þurfi
fyrst og fremst meiri peninga.
Það hefur engin ríkisstjórn né
menntamálaráðherra haft þann
styrk né bolmagn að geta veitt
þessu fjármagni inn í skólana. Ég
held því að það sé sátt um skóla-
starfið í grunnskólanum og ein-
mitt þess vegna tel ég að hann sé
ekki lélegur skóli heldur þvert á
móti góður skóli,“ segir Svanhild-
ur.
Gleymast börnin í
karpi um kaup og
kjör?
Leggja kennarar of mikla áherslu
á kaup og kjör en huga minna að
börnunum sem þeim er ætla að
sinna?
„Ég vísa því alveg á bug. Kennsla
er skemmtilegt starf og fagleg um-
ræða er mikilvæg. Þetta gefur
samt ekki saltið í grautinn og
kennarar eru launafólk eins og
annað fólk. Þeir geta ekki sjálfs
síns vegna og samfélagsins leyft
sér að vera á sífelldu faglegu
„flippi". Þeir verða náttúrulega
líka að sjá til þess að þeir geti séð
sér og sínum farborða því kennsla
er vinna þótt hún sé skemmtileg,
gefandi og mikilvæg vinna. Þetta
er ævistarf þess fólks sem hefur
valið sér það. Þetta fólk verður
eins og annað fólk að geta lifað af
launum sínum."
Neikvæðar raddir
eru áberandi
Kanntu skýringar á því hvers
vegna umræða um kennara virðist
vera neikvæð?
„Ég hef það alls ekki á tilfinning-
unni að umræða um kennara sé
almennt neikvæð. Það eru hins
vegar áberandi háværar neikvæðar
raddir. Það bylur hátt í þeim sem
eru neikvæðir og á móti hverju
sem er. Hins vegar heyrist miklu
minna frá þeim sem eru jákvæðir
og styðjandi," segir Svanhildur.
Hún bendir máli sfnu til stuðn-
ings á umræður sem urðu í fyrra í
kjölfar á niðurskurði til mennta-
mála. „Þá var ekki neikvæð um-
ræða um skólann. Þá studdu for-
eldrar feykilega mikið við baráttu
kennara og þessir aðilar tóku
höndum saman til að reyna að
koma í veg fyrir að fjármagn til
skólans yrði skert. Þá var ekki ver-
ið að tala neikvætt um skólastarfið
heldur þveröfugt var umræðan
mjög jákvæð.
Ég held að menn verði að passa
sig á að grípa ekki einstakar nei-
kvæðar raddir né órökstuddar full-
yrðingar á lofti og láta sem svo að
það séu almenn viðhorf. Það er
auðvitað ýmislegt gagnrýnisvert
og nauðsynlegt að allir komi gagn-
rýni sinni á framfæri og ræði mál-
in og reyni að leysa ágreiningsmál.
Það sem menn hafa mest gagnrýnt
í skólastarfi er ekki starf kennar-
ans heldur miklu frekar aðbúnað-
ur skólanna," segir Svanhildur.
Þar bendir hún á einsetinn skóla
og samfelldan skóladag sem séu
mikið í deiglunni og mikið bar-
áttumál kennara.
Jafnframt bendir hún á að hag-
fræðideild Háskóla íslands hafi
rannsakað þjóðhagsleg áhrif sam-
fellds skóladags og getað sýnt fram
á auknar þjóðartekjur væri það
fyrirkomulag tekið upp.
„Gagnrýnisröddum sem beint er
að kennurum ætti í raun að beina
í allt aðra átt. Það er verið að búa
til blóraböggul með einhliða gagn-
rýni á stéttina," segir Svanhildur
að lokum.
TIL SÖLU
Fokhelt hús eða lengra komið (eftir samkormdagi) við Miðholt í HafnarfirðL
Stærð 242 m2 m/bílskúr, auk þess 120 m2 óuppfyllt rými. Húsið er
á tveimur hæðum og möguleiki á tveimur til þremur ibúðum.
6 millj. húsbréfaián og 2 millj. bankalán getur fylgt.
Verö 10.2 millj. fokhelt Ýmis skipti koma til greina, td. leiga á
veiðiá, jarðarpartur, litil fasteign, bill o.fl.
Frábær staðsetning og mjög gott utsýni.
Upplýsingar í síma 91-641771 og 985- 37007.
Tvær ómissandi bækur til ab
vibhalda beilsu og fegurb.
TOPPFORM! ANDLITS-PUNKTANUDD!
UMSAGNIR FÓLKS:
Gubrún Bergmann frkvstj. Betra Lífs: „Fró órinu 1985 hef
ég prófaö mig ófram meb ýmsar samsetningar í mataræbi til ab
baeta heilsu mína og auka þrek, en engin abferb hefur reynst
eins vel, ó jafn skömmiun tíma og sú sem kynnt er í Toppformi."
Hollgrímur Þ. Magnússon laeknir: „Punktanudd í andliti
hefur ekki abeins gób úhrif á vöbvana og húbina í andlitinu,
heldur d allan líkamann."
Kona sem ekki vill gefa upp nafn: „Vib erum tíu eldri
konur saman í leikfimihópi. Vib ljúkum nú hverjum tíma meb
punktanuddi eftir nýju bókinni. Arangur lætur ekki d sér standa,
okkur líbur betur. Ábur höfbum vib ekki hugmynd um þýbingu
andlitsvöbvanna."
FÁIÐ ÞÆR í PÓSTSENDINGU. KLIPPIÐ ÚT OG SENDIÐ.
■ BHi ■■■■■ BHI MBl ■■iHHI Ml ■■■■■■ ■■■■■ Mi ■
TIL FJÖLVA, NJÖRVASUND 15 A, 104 REYKJAVÍK
Eg óska ab fá senda í póstkröfu, en kostnabarlaust:
KROSSIÐ VIÐ:
I TOPPFORMI heildarverb kostnabarlaust kr. 1.280
PUNKTANUDD heildarverö kostnabarlaust kr. 1.980
Nafn...
Heimili.
Póstnr.
FÉLAG JÁRNIÐNAÐARMANNA
Aðalfundur
verður haldinn laugardaginn 27. febrúar 1993 kl. 13:30 að
Suðurlandsbraut 30, 4. hæð.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Ath. Reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofunni milli
kl. 15:00 og 18:00, miðvikudaginn 24. febr. og fimmtudag-
inn 25. febr. n.k.
*** Það verður eitthvað gott með kaffinu
Mætið stundvislega.
Stjórnin.
---------------------------------^
Útboð
Austurlandsvegur, Kvíá-
Hnappavellir
Vegagerð rlkisins óskar eftir tilboöum I lagningu
7,5 km kafia á Austurlandsvegi milli Kvíár og
Hnappavalla.
Helstu magntölur: Fyllingar 12.000 m3, neðra
burðarlag 20.000 m3, efra burðarlag 8.000 m3,
klæðingar 45.000 m3.
Verki skal að fullu lokiö 15. júlí 1993.
Útboösgögn veröa afhent hjá Vegagerð rikisins
á Reyðarfirði og I Borgartúni 5, Reykjavik (aðal-
gjaldkera), frá og með 23. febrúar n.k.
Skila skal tilboöum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00
þann 8. mars 1993.
Vegamálastjóri