Tíminn - 20.02.1993, Page 12
12 Tíminn
Laugardagur 20. febrúar 1993
Úrslit í Söngvakeppni Sjónvarpsins ráðast í kvöld:
Stóra
stundin
nálgast
í kvöld rennur hin stóra stund upp
er lagið sem íslendingar senda í
Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stööva í Millstreet Town á írlandi
þann 15. maí nk. verður valið í
beinni útsendingu í Ríkissjónvarp-
inu. í útsendingunni verða öll lögin
tíu flutt og vonandi hafa áhorfendur
flestir fengið færi á að hlýða á þau
og mynda sér skoðun um hvert
þeirra sé líklegast tii að efla hróður
landans meðal stórþjóðanna.
Auk ferðarinnar til írlands munu
sigurvegararnir hljóta vegleg verð-
laun. í sjónvarpssal mun sitja sjö
manna sérnefnd sem mun veita einu
lagi atkvæði og verður gaman að vita
hvort nefndinni ber saman við þær
átta dómnefndir sem skipaðar hafa
verið um allt land og munu hringja
inn atkvæði sín meðan á útsendingu
stendur.
Við áttum stutt spjall við aðila sem
tengjast keppninni og standa — eða
hafa staðið — í eldlínunni og spurð-
um hvernig þeim væri innanbrjósts.
Keppnin hvetjandi
fyrir músíkbransann
— segir Þórir Baldursson, höfundur lagsins „Ö, hve ijúft er að lifa“
„í heild sinni finnst mér lög-
in að þessu sinni mjög góð,“
segir Þórir Baldursson tón-
skáld, en hann á eitt laganna tíu
í keppninni — „Ó, hve ljúft er
að 1 jfa" sem Margrét Eir flytur.
„Ég á auðvitað erfítt með að
tjá mig um hvaða lag er sigur-
stranglegast vegna þess hve ég
er skyldur málinu. En mér hef-
ur annars þótt lagaúrvalið gott í
gegnum tíðina þótt mörg ágæt
lög hafí fallið í gleymsku eins
og gengur. Það bætist upp með
þvf að alltaf eru einhver sem lifa
áfram eins og við þekkjum.
Hvað keppnina nú snertlr
fínnst mér það miður og aftur-
för að hætt er að láta Wjóm- cu c* uwuu eiu uu svuya au-
sveitlr vera til staðar f sjón- Ponr Baldursson eins tll þess að semja lag. í
varpssal eins og í upphafi var ist því að hér er í vaxandi mæli rauninni er aldrei hægt að setja
gert. Núverandi form er síst verið að gera þetta að keppni tónlist upp í keppnisform svo
kostnaðarminna. En þetta teng- um „pródúksjónina" fremur en vel sé fremur en nokkra aðra
um hver skapar besta laglð. Ég
álft að komið hafí fyrir að við
höfum sent lög utan einungis
vegna þess að þau þóttu vera
góð f sjónvarpinu. Þama ætti að
fara gætilegar í sakimar.
En annað hefur tekið framför-
um svo sem útsetningamar.
Tónlistarskólamir hafa sldlað
okkur nýrri kynslóð tónlista-
manna sem eru mjög vel
menntaðir og kunna tii verka.
Reglur f keppni sem þessari
setja þeim og höfundunum þó
sínar skorður. Hvert lag má
ekki taka lengri tíma en þtjár
mfnútur og því verða menn að
nálgast viðfangsefnið öðru vísi
____C__________-1____-I- 1.'J. .1
,JVJig hafði Iengi langað til að
taka þátt í þessari keppni og nú
fékk ég tækifærið," sagði Anna
Mjöll Olafsdóttir í spjalli við okk-
ur í gærmorgun. Hún flytur okk-
ur lagið „Eins og skot“ í Söngva-
keppninni í kvöld. Höfundur er
„Fuglinn fljúgandi**.
„Mér finnst lagið mitt mjög gott
og meina það þótt auðvitað sé
ekki hægt að búast við að ég segði
annað. Þú spyrð hvort faðir minn
Ólafur Gaukur sé eitthvað með í
þessu og ég get hvorki játað þvf
né neitað.
sé „leyndó"!
Ég hef verið á kafi við undirbún-
ing og æfingar og það er aðalæf-
ing nú á eftir og svo aftur á morg-
un, laugardag. Ég er raunar að
máta búninginn enn einu sinni
núna, en hann er keyptur erlend-
is og ég þarf að venjast honum
sem best.
Það eru bráðum fimm ár frá því
ég kom fyrst fram í sjónvarpi en
það var í keppnini um Látúns-
barkann ‘88. Næsta eldraunin var
svo keppnin um „Landslagið ‘91.“
Þetta er ósköp svipað núna og
undirbúningurinn ‘91. Ég get
ekki sagt að ég hafi sviðsskrekk,
miklu fremur að ég sé spennt.
Og ég vildi ekki vera án spenn-
unnar. Hún verður að vera því
annars er ekkert gaman að þessu.
Án spennu held ég líka að
frammistaðan yrði ekki eins góð
og annars.
Ef ég sigraði? Nei, ég yrði ekkert
kvíðin samt.
Ég mundi halda áfram að gera
mitt besta alveg eins og ég hef
gert fram til þessa.“
Anna Mjöll Ólafsdóttir
list. Það kann að vera að þetta
valdi nokkru um það ef ein-
hverjum þykir tónsmíðamar
taka á sig visst svipmót —
„Evróvisjónstfll“ hefúr það ver-
íð kallað.
En þótt auðvitað sé þetta
ákveðið markaðstorg og húll-
umhæ held ég að allt sé þetta af
því góða samt og hvetjandi fyrir
músíkbransann hjá okkur. Ég
er annars ekld kvíðinn fyrir
mína hönd vegna úrslitanna,
tek þessu ekld þannig. Þetta er
satt að segja mildl vinna og iyr-
irhöfn fyrir þá sem lenda í úr-
slitunum og (þetta má ekki
prenta..!) það liggur við að
menn óski þess að tagið fari
ekki lengra vegna alls þess
amsturs sem það hlyti að
kosta...“
„Vildi ekki vera án spennunnai*
— segir Anna Mjöll Ólafsdóttir sem flytur lagið „Eins og skot“ í Söngva-
keppni Sjónvarpsins í kvöld
Eigum við ekki að segja að það
Valgeir Guðjónsson er að skrifa skáldsögu og
sinnir tónsmíðum því minna í bili:
„Ekki búinn að afskrifa
söngvakeppnina11
„Ég á mjög erfitt með aö tjá mig
um lögin að þessu sinni vegna
þess að ég er ekki búinn að heyra
nema helminginn af þeim,“ segir
Valgeir Guðjónsson tónlistarmað-
ur, höfundur sigurlagsins 1987
og 1989. „Ég vil ekki einu sinni
segja neitt um þau sem ég hef
heyrt vegna þess að lög geta svo
oft unniö á þegar menn heyra þau
oftar.
Ég vona að menn telji þetta eng-
an hofmóð af minni hálfu — ég hef
bara haft svo mikið að gera að
keppnin núna hefur að mestu farið
fram hjá mér. Þetta er svona eins
og tilviljanirnar verða í lífinu. Ég
get ekki einu sinni fylgst með út-
sendingunni á laugardagskvöldið
því þá vill svo til að ég verð í óper-
unni.
Nei, ég sendi ekkert lag inn að
þessu sinni, en það þýðir ekki að ég
kunni ekki að gera það seinna. Ég
er ekki búinn að afskrifa Söngva-
keppnina, þótt reynsla mín af
henni hafi verið svona „súrsæt“ ef
ég má orða það svo. Þetta sæta ber
þrátt fyrir allt hærra en það súra.
Og Söngvakeppnin hefur sér það
til ágætis að svona „smá-sirkus“
eins og hún er verður okkur ágæt
tilbreyting í skammdeginu. Hún
ber þess þó merki að okkur vantar
hér á landi hefð í þessu formi,
„chanson-forminu“, þ.e. söng með
Valgeir Guöjónsson
stórsveit. Fyrir vikið eru lögin svo
ólík innbyrðis að það orkar tví-
mælis að steypa þeim svona í einn
og sama pottinn.
Annir mínar að undanfömu hafa
tengst vinnu vegna Tónlistarhúss-
ins en málefni þess tel ég að séu nú
að snúast inn á mjög hagstæða
braut, m.a. vegna nýrrar lóðar sem
allir eru geysiánægðir með.
Svo hef ég verið að skrifa skáld-
sögu og af þessum sökum er eðli-
legt að ég helgi tónsmíðunum
minni tíma en oft áður.“
STIGATAFLA SÖNGVAKEPPNI SJÓNVARPS
LÖG Reykja- nes Vestur- land Vest- firðir Noröuri- vestra Norðuri. eystra Austur- land Suður- land Reykja- vik Sér- nefnd 7 Samtals
Þá veistu svarið höf. Kling og Klang flytj. Ingibjörg Stefánsdóttir
Ó, hve Ijúft er að lifa höf. Vinir flytj. Margrét Eir
Samba höf. Samba og Sambó flytj. Katla María Hausmann
Bless, bless höf. Nætur-galinn flytj. Guðlaug Ólafsdóttir
Ég bý hér enn höf. Lilli klifurmús flytj. Ingunn Gylfadóttir
Hopp - abla - ha höf. Eróbikkjan flytj. Eróbikkjan
Himinn, jörð og haf höf. Menn með mönnum flytj. Júlíus Guðmundsson
Eins og skot höf. Fuglinn fljúgandi flytj. Anna Mjöll Ólafsdóttir
í roki og regni höf. Rudolf og Runbolt flytj. Haukur Hauksson
Brenndar brýr höf. Garpur flytj. Ingunn Gylfadóttir