Tíminn - 27.02.1993, Síða 1

Tíminn - 27.02.1993, Síða 1
 Laugardagur 27. febrúar 1993 40. tbl. 77. árg. VERÐ í LAUSASÖLU ■ KR. 110.- Fjárþörf Atvinnutryggingardeildar 500 milljónum undir áætlun vegna betri innheimtu útistandandi lána en ætlað var við fjárlagagerð: n fortíðar- vandinn" mjög orðum aukinn? Fjárþörf Atvinnutryggingadeildar Byggðastofnunar reyndist nær þriðjungi eða 500 milljónum undir heimiidum fjárlaga og lánsQár- laga vegna betri innheimtu útistandandi lána heidur en fjárlaga- smiðir gerðu ráð fyrir. I fyrstu grein fjárlaga ársins 1992 var samþykkt 1.250 milljóna kr. lánveiting til Atvinnutrygginga- deildar. í skýrslu fjármálaráðu- neytisins um ríkisfjármál segir að vegna þess að horfúr voru á slæmri innheimtu afborgana og vaxta af lánum Atvinnutryggingadeildar hefði henni í lánsfjárlögum verði heimiluð 400 milljóna króna lán- taka umfram forsendur fjárlaga, samtals 1.650 milljónir á árinu. í lok ársins kemur síðan f ljós, að ekki aðeins lét Atvinnutrygginga- Tíminn í dag: FJARMAL HEIMILA Neysla, skuldir, sparnaður, ráðdeild, sóun, svikahrappar. Bls. 10-20 deild 400 milljóna heimildina í lánsfjárlögum ónýtta, heldur virð- ist hún hafa komist af með 100 milljón krónum minna en áætlað var í fjárlögum, þ.e. 1.150 milljón- um á árinu. í yfirliti um heildarlántökur opin- berra stofnana kemur fram að lán- tökur Byggðastofnunar og At- vinnutryggingadeildar stofnunar- innar urðu samtals 800 milljónum lægri en gert var ráð fyrir. Þetta er m.a. þakkað minni útlánum stofn- unarinnar. „Þess má einnig geta að greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði sjávarútvegsins á árinu 1992 urðu til þess að afborganir hjá Atvinnu- tryggingadeildinni innheimtust betur en áður var ætlað,“ segir í skýrslunni. Enn er algerlega óvíst hver tekur við af Jöhannesi Nordal í Seðlabanka: Jon Sig. vill ekkert segja Jón Sigurðsson viðskiptaráð- herra gefur ekld nein skýr svör utn það hvort hann hafi áhuga á að verða seðlabankastjórl þegar Jóhannes Nordal hætthr. Hann segir aöeins að það sé bankaráös Seðlabankans að gera tillögu um eftirmann Jóhannesar. Jón mælti í gær fyrir frumvarpi til laga um Seðlabanka íslands. „Það er bankaráðsins að gera tUIögu um bankastjóra í Seðla- banka til þess að leysa þá menn af hólmi sem láta þar af störf- um. Fyrr en það hefur mótast mun ég hvorki segja eítt né neltt um málið enda ekki við hæfi að ráðherrann sem ber ábyrgð á þessum málum sé að tjá sig um það í ótíma. Ég bendi á að það er hálft ár þangað til Jóhannes Nordal lætur af störfum og næstum því eitt ár þar til Tómas Ámason lætur af störfum. Það er því ágætur tími til að fjalla um þetta mál,“ sagði Jón. Jón sagði að sín persóna tengd- ist alls ekki frumvarpi til laga um Seðlabanka íslands. Drög að því hefðu verið lögð í tíð fyrri stjómar. Hann sagði fullkom- lega ómálefnalegt að tengja frumvarplð sinni persónu eins og td. Ólafur Ragnar Grimsson hefur gert Ólafur Ragnar hefur sagt að eldá sé hægt að ræða frumvarpið á þingi fyrr en fyrir liggi yfirlýsing frá Jóni um hvort hann sældst eftir að setjast f stól seðiabankastjóra. Jón sagði að með sömu rökum mætti segja að þingmenn væru ekki hæfir til að fjalla um breyt- ingar á kosningalögum vegna þess að þeir kynnu að sækjast eftir endurkjöri í kosningum. Jón vísaði á bankaráð Seðla- bankans þegar hann var spuröur um hvenær eftirmaður Jóhann- esar Nordals yrði ráðinn. Jón mælti í gær fyrir frumvarpi til nýrra Seðlabankalaga. Fum- varpið gerir ráð fyrir að sjálf- stæði bankans verði aukið og stjórntæki hans verði efld. Eftir framsöguræðu ráðherra lagði Halldór Ásgrímsson til fyrir hönd stjómarandstöðunnar að umræðum yrði frestað og efna- hags- og viðskiptanefnd fengi málið strax til umfjöllunar. Hall- dór sagði að nauðsynlegt væri fyrir nefndarmenn að kynna sér þetta stóra mál vel. Slík kynning í nefnd mundt greiða fyrir um- ræðum um málið á þingi. -EÓ Fullmikil bjartsýni í fjármálum íslendingar eru á stund- um einum of kaldir að slá lán. Sjá viðtal við Sigurð Geirsson hjá húsbréfadeild Húsnæð- isstofnunar. Bls. 10-11 Menn sem lifa af því að féfletta fólk Til eru siðvillingar sem lifa af því að svíkja pen- inga og lausafé af fólki sem á sér einskis ills von. Saga af „hrossa- kaupum". Bls. 16-17 Bollubakst- urinn ráð- herralaun Blaðamaður Tímans bakaði 30 bollur á bollu- dag í stað þess að kaupa þær í bakaríinu og gat reiknað sér 1.850 króna tímakaup fyrir ómakið. Bls. 20 Fjöldi fólks á köldum klaka Gamalt fólk og lágt settir fýrrverandi ríkisstarfsmenn eiga nú erfitt uppdráttar eftir hrun Sovétríkjanna. Baksvið heimsviðburðanna eftir Dag Þoríeifsson. Bls. 8-9 Ólafur G. Einarsson menntamálaráöherra, Salome Þorkelsdóttir forseti Alþingis og Guömundur Magnússon þjóöminjavörður skoða víkingasverð frá söguöld. Timamynd Ami Bjama Þjóðminjaþing haldið í 130 ára gömlu Þjóðminjasafni: Byggt verður við Þjóðminjasafnið Þjóðminjaþing var sett í gær að við- stöddu fjölmenni. Meðal gesta voru forseti íslands, forsætisráðherra og menntamálaráðherra. Þjóðminja- þing hefur ekki áður verið haldið en vonast er til að það verði árlegur viðburður í framtíðinni. Tilgangur þess er að ræða um ýmis mál sem snerta Þjóðminjasafnið og taka til umfjöllunar ýmis fræðileg viðfangs- efni sem fornleifafræðingar og safnamenn eru að fást við á hverjum tíma. Húsnæðismál Þjóðminjasafnsins voru meðal umljöllunarefna á þing- inu og gaf menntamálaráðherra þá yfirlýsingu að stefna sín væri að byggt yrði við núverandi safnahús við Suðurgötu. Á fjárlögum þessa árs munu renna 90 milljónir til þessa verkefnis en fyrir tveimur ár- um var áætlaður kostnaður við við- byggingu og endurbætur á Þjóð- minjasafnshúsinu nærri 700 millj- ónir. Þjóðminjaþingi líkur í dag. -EÓ /

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.