Tíminn - 27.02.1993, Side 2

Tíminn - 27.02.1993, Side 2
2 Tíminn Laugardagur 27. febrúar 1993 Nefnd sem leitar leiða til að bæta sveitarfélögum upp missi aðstöðugjaldsins jeggur fram tillögur á fulltrúaráðsfundi Sambands íslenskra sveitarfélaga: Utsvar hækki í 9% og fasteignagjöld hækki Nefnd sem vinnur að því að fínna tekjustofna fyrir sveit- arfélögin í stað aðstöðugjaldsins hefur á borði sínu til- lögu um að hækka útsvar upp í 9% og hækka fasteigna- gjöld á fyrirtæki. Hækkun útsvars á að skila sveitarfélög- unum um 3.000 milljónum og hækkun fasteignagjalda 900 milljónum. Nefndin hefur rætt þann möguleika að samræma útsvar á landinu þannig að öll sveitarfélög innheimti 9% útsvar en ágreiningur er um þetta atriði. Ágreiningur er meðal sveitarstjórn- armanna um hvort rétt sé að leggja til að útsvar verði ákveðið 9% alls staðar á landinu. í dag ráða sveitar- félög því hvað þau innheimta háa prósentutölu en hún má þó ekki vera hærri en 7,5%. Reykjavík hefur innheimt lægra útsvar en ýmsir halda því fram að það hafi borgin getað gert vegna þess hvað hún hef- ur haft miklar tekjur af aðstöðu- gjaldi. Eins og kunnugt er var aðstöðu- gjald afnumið um síðustu áramót. Ekki vannst tími til að ná samkomu- lagi um hvemig sveitarfélögunum yrði bættur upp þessi tekjumissir. Sjö manna nefnd var falið að gera tillögur um þetta. Nefndin hefur rætt ýmsar leiðir en flest bendir til að hún leggi til hækkun útsvars og hækkun fasteignagjalda. Nefndin kynnti tillögur sínar á fulltrúaráðs- fundi Sambands íslenskra sveitarfé- laga sem haldinn var í Keflavík í gær. í ræðu formanns sambandsins, Vil- hjálms Þ. Vilhjálmssonar, kom fram að þrjú höfuðverkefni blöstu við sveitarfélögunum, þ.e. sameining sveitarfélaga og verkaskipting, tekjustofnamál, vaxandi atvinnu- Halldór Asgrímsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir ýmis- legt geta komið í veg fyrir gildistöku EES-samningsins 1. júlí: VERÐUM AÐ HUGA AÐ ÞVÍ SEM TEK- UR VIÐ AF EES Halldór Ásgrímsson, varaformaður Framsóknarflokksins, telur mikil- vægt að nú þegar hefji íslensk stjóm- völd undirbúning að viðræðum við Evrópubandalagið um gerð tvíhliða- samnings. öll hin aðildarlönd EFTA séu á fullu að huga að framtíðar- tengslum við EB þegar EES hefur liðið undir lok. Það sama eigum við að gera. Halldór sagði of snemmt að segja til um hvort það samkomulag sem samningamenn EB og EFTA hafa náð um breytingar á EES- samningnum myndi leiða til þess að samningurinn tæki gildi 1. júlí. Halldór sagði að reynslan kenndi sér að margt gæti enn orðið til að tefja gildistöku EES-samningsins. Samn- ingurinn ætti eftir að fara fyrir þjóð- þingin og fá afgreiðslu hjá EB. Hann sagði því of snemmt að segja til um hvenær samningurinn tæki gildi. „Mér finnst mikilvægast nú að menn hugi að því við hvað við eigum að búa í framtíðinni. Allar hinar EFTA- þjóð- imar stefna á aðild að EB. Mér finnst mikilvægt að við biðjum nú þegar um viðræður um okkar stöðu með það í huga að ná tvíhliðasamningi við EB. Það er alveg sama hvað menn segja um EES, allir eru sammála um að lík- lega muni það leysast upp eftir nokkur ár. Menn þurfa því að gera sér grein fyrir því sem tekur þá við,“ sagði Hall- leysi og möguleikar sveitarfélaganna til að takast á við það. Vilhjálmur gagnrýndi aðgerðir rík- isstjórnarinnar gagnvart sveitarfé- lögunum í ræðu sinni er hann gerði grein fyrir liðnu ári. Hann sagði að- gerðimar hafa verið illa undirbúnar og samráð hefði skort. Starf at- vinnumálanefndar forsætisráðu- neytisins hefði verið ómarkvisst og einkennst af viðleitni samtaka at- vinnurekenda til að fá aðstöðugjald- ið lagt af. Skýrsla sveitarfélaganefndar um sameiningarmál sveitarfélaga var til sérstakrar umræðu á fundinum og virðist svo sem skoðanir sveitar- stjórnarmanna séu mjög skiptar um ágæti tillagna nefndarinnar. Þó eru menn sammála um að hafna alger- lega lögþvingaðri sameiningu sveit- arfélaga. Þá em margir þeirrar skoð- unar að engin ein leið henti fyrir öll sveitarfélög. í framsöguræðu Guð- mundar H. Ingólfssonar, fram- kvæmdastjóra Héraðsnefndar N-ísa- fjarðarsýslu, kom fram að aðgerða- leysi sveitarstjórna í sameiningar- málum gæti leitt til lagasetningar. Framsögumenn í málinu vom sam- mála um að þessi fundur væri ör- lagaríkur fyrir framgang málsins. Þeir vom einnig sammála um að fmmkvæði í málinu ætti að koma frá sveitarfélögunum. Stefnt er að því fundurinn taki af- stöðu til skýrslu sveitarfélaganefnd- arinnar í lok fundarins, en honum lfkur í dag. -EÓ Fiskiðjan-Skagfirðingur á Sauðárkróki og Hofsósi: Mikil vinna Frá Guttormi Óskarssyni, fréttaritara Tlm- ans á Sauðárkröki. Á mánudag hófst vaktavinna í frystihúsi Fiskiðjunnar-Skagfirð- ings á Sauðárkróki. Auglýst var eft- ir fólki í allt að 30 ný störf í byrjun vaktanna. Ekki hefur enn verið ráð- ið í öll þessi störf þrátt fyrir mikla eftirspurn eftir vinnu víðsvegar að af landinu. Ástæðan er fyrst og fremst húsnæðisskortur á Sauðár- króki en hann kemur í veg fyrir að hægt sé að ráða aðkomufólk.+ Það fólk sem ráðið hefur verið nú er einkum frá Sauðárkróki og nær- sveitum. Þannig em 12 manns úr þessum hópi innan úr Lýtingsstaða- hreppi. Rúta fer á morgnana og sækir fólkið í sveitina. Unnið er á tveimur átta tíma vöktum frá kl. sex á morgnana til tvö síðdegis og frá tvö til átta á kvöldin. Hátt í 150 manns vinna hjá Fiskiðj- unni-Skagfirðingi á Sauðárkróki og Hofsósi enda er Fiskiðjan, sem er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga, stærsti atvinnurekandinn í Skaga- firði. Einar Svansson, framkvæmda- stjóri fyrirtækisins telur hráefnisöfl- un þess nokkuð ömgga á árinu. Fiskiðjan hefur samning um að fá fisk af bátum bæði af Suðurnesjum og Snæfellsnesi en getur einnig leit- að til fiskmarkaða. Togarar Fiskiðjunnar-Skagfirðings hafa mikið selt afla sinn erlendis í vetur og fengið mjög gott verð fyrir aflann. Þeir munu á næstunni veiða fyrir heimamarkað að undantekn- um Skagfirðingi. Hann er aðallega á karfaveiðum og mun landa aflanum á erlendum mörkuðum eins og hann hefur gert að undanförnu. Halldór Ásgrímsson alþingis- maður. dór. Halldór tók fram að hann hefði ekki séð það samkomulag sem samn- ingamenn náðu í Bmssel og því gæti hann ekki tjáð sig um það í einstökum atriðum. Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins, sagðist ekki treysta sér til að segja álit sitt á sam- komulaginu vegna þess að hann hefði ekki séð það. Samkomuiagið hefði ekki enn verið kynnt í utanríkismála- nefnd. -EÓ Góð loðnuveiði: Heildaraflinn um 500 þúsund tonn Mjög góð loðnuveiði hefur verið undanfama daga og í gær var heild- araflinn frá vertíðarbyrjun orðinn rúm 500 þúsund tonn af rúmlega 800 þúsund tonna heildarkvóta. Loðnuflotinn hefur verið á veiðum skammt frá Eyjum þar sem skipin hafa fyllt sig í nokkmm köstum. Þá hefur loðnufrysting gengið vel og búist er við að hrognataka hefjist eftir helgi. -grh Björgvin neitaði Alþýðuflokkurinn vandræðast þessa hannesar Nordals sem þeír telja merktan Jóni SígurðssynL Jón telur sig ekki Idáran í bankann, enda ekki kominn enn með nýtt áíver. Hann mun því hafa beðið Björgvin Vil- rennur út Björgvin þvemeitaði... Hvað með Bjöm? ...Eftir að Björgvin neitaði að verma NordalsstóHnn hafa Kratar lagt höf- uð sih t bleyti tíl að reyna að finna einhvem sem er tíl í að vera Seðla- bankastjóri þangað til Jón Sig. má vera að því. Hjá þeim er nú komin fram hugmynd um að fara fiam ávið Bjöm Tryggvason aðstoðatbanka- stjóra að gegna stöðunnl, enda er hann hvort sem er að fara á eftíriaun. Verði hann bankastjóri verða eftir- launin líka aðeins skárri... Ekkert samflot? Samstaða launþega virðist ekki of mikfl á þessum kreditkortatímum. Stjóm, trúnaðannannaráð og samn- inganefnd Sjúkraliðafélags ísiands kom saman í vikunni og fundarmenn voru sammála um að hafna samfloti með öðrum félögum innan BSRB. Margir tejja að sama eigi eftír að verða upp á teningnum i öðrum fé- lögum BSRB ogASÍ. Galli að svitann vantar , Af holdinu ernógog rakanum lflsa. öðru máJi gegnir kannski um svit- annsemi an fylgifisk eldheitra ástaleikja á heit- asta tima dagsins í hitabeltínu þar sem ekki eru önnur loftkælikerfi en viftuspaðar £ loftL Hlns vegar er varia svitadropa að sjá á nokkrum manni, Er það nokkur Ijóður á annars góðri kviionynd.'* (Úr kvikmyndadómi í DV í gær) Skildu ekki Bogdan pólska landstlðinu í handknattleik mættu fyrmrandi lærisveinum hans í íslenska landsliðinu á Ferð þeirra var eldd til fjár og var þeim hrcinlega rúllað upp t fyrri leiknum. Níu marka munur var í hálfieik og endaði leikurinn með fimmtán marka mun. Var það mái manna í Höllinni að það heföi verið eins gott að íslensku strákamir skildu ekki það mál sem Bogdan tal- aði þegar hann þjálfaði hér. Pólverj- amir skðja hann og árangurinn mætti glöggt sjá. Það er hætt við að árangur islenska fiðsins hefði verið með svipuðum hætti ef þeir hefðu skiliö hullið f Bogdan. Siggi Sveins og Bogdan Það var greinilegt í leikjunum að Siggi Sveins ætlaði að sýna . að nota aldrei Sigga, sem að mati Bogdans var svo vitlaus af því hann væri ólæröur. Siggi Sveins iék vel í leikjunum og augljóst var að Siggi hefði spflað þessa leikf þótt hann hefðl verið á hækjum. Hann hefðl ■-------------------------------■----------

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.