Tíminn - 27.02.1993, Side 8

Tíminn - 27.02.1993, Side 8
8 Tíminn Laugardagur 27. febrúar 1993 * Inóvember 1989 var Berlín- armúr rofínn og í desember 1991 voru Sovétríkin leyst upp. Oft hefur veríð talað um tímamót í sögunni af minna tilefni. í stað austur- eða sov- étblakkar, er í næstum hálfa öld hafði veríð öflugasti heimshlutinn að Vesturlönd- um undanteknum og harður keppinautur þeirra um for- ustu í heiminum, var allt í einu komið það sem sumir kalla „valdatómarúm." Mat Vesturlandamanna á því, sem síðan hefur verið að ger- ast á þessu landflæmi frá Od- er til Beríngssunds, er nokk- uð á reiki. Þeim gengur stirð- lega að átta sig á því og spár þeirra um framvinduna eru eftir því af ýmsu tagi. Einhver segir kannski að það sé ekki nema eftir því sem verið hafí; Rússland hafí Iöngum dular- fullt verið í augum vestur- landamanna, hvort heldur þar ríktu keisarar eða kommún- istar. „Kyrrlátleg“ bylting í grein í þýska vikuritinu Der Spiegel reynir Karl Schlögel, sagn- og austur- evrópufræðingur við háskólann í Konstanz, að gera grein fyrir megin- dráttunum í gangi mála í fyrrverandi austurblökk. Hann er þegar öllu er á botninn hvolft fremur bjartsýnn en svartsýnn, þótt ekki muni miklu. Um- skiptin miklu síðustu ár kallar hann „kyrrlátlega" eða „friðsamlega" bylt- ingu. Schlögel og fleiri athugendur benda á stærð svæðisins, fjölbreyti- leika þess, skyndilegt hrun sovéska heimsveldisins, skipbrot kommún- ískrar hugmyndafræði og vandamál þau gífúrleg og margvísleg er risu jafnframt eða í íramhaldi af þessu. Af þeim vandamálum sé mest það gagn- gera rask sem orðið hefúr á faeinum árum á kringumstæðum þorra manna í risaveldinu fyrrverandi og fyrrverandi fylgiríkjum þess. Með hliðsjón af þessu öllu telur Schlögel að ofbeldið sem rótinu hefur fylgt (stríð í fyrrverandi Júgóslavíu, Kákas- us, Tádsjíkistan, glæpir) sé minna en búast hefði mátt við. (Júgóslavía sleit sig snemma frá sov- étblökkinni, en hafði áfram flokks- ræði hennar og hugmyndafræði. Fyrrverandi Júgóslavía er því stund- um talin með fyrrverandi austur- blökk.) Jtustur-Evrópa hefur gert krafta- verk. Þar hefúr verið um að ræða hreyfingu milljóna, sem ekki hefur orðið að stríði aJIra gegn öllum," skrif- ar Schlögel. Aldraðir á köldum klaka Hann segir ennfremur að „engin bylting sé róttækari en sú, sem leysir upp hefðbundið líf og starf hvunn- dagsins áður en hún hefur komið með nokkuð í staðinn." Hvað sem líður því ófáa sem leggja mátti gamla kerfinu til lasts tryggði það almenningi visst afkomuöryggi. Verðlag á því allra nauðsynlegasta, sem oft var af skom- um skammti og misjafnt að gæðum, var eigi að síður það sama ár eftir ár. Nú er afkomuöryggi líklega það sem síst af öllu er hægt að telja til gildis ,austri því sem ekki er lengur til,“ eins og Schlögel orðar það. Harðast kemur það að líkindum niður á gamla fólk- inu, sem eftirlaun þótt lág væm fyrir flesta tryggðu æm.k. lágmarksöryggi. Guöir sem brugöust: Marx og Engels (í Berlín). Austrið sem ekki er lengur til: Bjartsýni takast a Nú brenna eftirlaunin upp í óðaverð- bólgunni. Eitt einkenna götumyndar- innar í fyrrverandi Sovétríkjum er gamalt fólk sem raðað hefur á kassa eða fjöl hinu og þessu sem það reynir að selja fyrir mat, ekki síst munum sem fiölskyldan hefur átt Iengi og í augum nýríks fólks em því kannski það gamlir að ft'nt teljist að eiga þá. Opinberri þjónustu af ýmsu tagi hefur hrakað stómm. í þýskum blöðum seg- ir að rússnesk elliheimili séu mörg hver ekki að stómm mun heilsusam- legri en gúlagið var á sinni tíð. Gamla fólkið hefur flest möguleika í minnsta lagi á að gera veður út af sjálfu sér. Betur settir til þess em margir aðrir, Ld. námsmenn í vand- ræðum út af því að verðbólgan brenn- ir upp fyrir þeim námslaunin. Enn og siðrof ffekar á það við um þá óánægðu, hræddu og reiðu menn sem höfðu það gott eða með betra móti í gamla kerfinu og tókst ekki að koma sér klakklaust í gegnum umskiptin. Þetta er fólk úr stjómsýslukerfi, efri Iögum Flokksins gamla og hersins. Það naut áður forréttinda og virðingar en nú virðist enginn hafa not fyrir það leng- ur og sumt á það e.Lv. í erfiðleikum með að afla sér matar fyrir daginn. Fólkí ofaukið Álíka eða verr hefúr orðið úti annar hópur og stærri, fólk sem var neðan til í stjómsýslukerfúm ríkis og Flokks eða í einhverri opinberri þjónustu, Iaunalágt og án forréttinda en nokkuð ömggt með afkomu sína. Enn má Ld. nefna starfsfólk risavaxinna ríkisfyrir- tækja, ekki síst í tengslum við herinn, verið er að leggja niður eða draga saman. „Það úir og grúir í Austur-Evrópu af fólki sem er „ofaukið". Það er af öllum tröppum samfélagsstigans, leyniþjón- ustuforstjórar, fóstmr af dagheimil- um og allt þar á milli," skrifar Schlög- el. Þetta fólk hefur komist á meira eða minna kaldan klaka vegna upplausnar og ringulreiðar, sem fylgt hefur kerfis- breytingunni eða réttara sagt viðleitn- inni til hennar, spamaðarráðstafana og nýrra sjónarmiða sem mtt hafa „Enginn vill framleiöa, allir reyna aö græöa. “ Markaöur I Tsjernovtsy í Vestur-Úkraínu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.