Tíminn - 27.02.1993, Síða 9
Laugardagur 27. febrúar 1993
Tíminn 9
NISSAN
þeim gömlu frá. Reynt er að láta lýð-
ræði, þar sem aetlast er til í orði
kveðnu a.m.k. að hver hugsi fyrir sig,
taka við af alræði Flokks, sem sam-
kvæmt ríkishugsjón taldist hafa
grunnsannindi tilverunnar á hreinu
og hugsaði í samræmi við það fyrir al-
menning. Úr miðstýrðu tilskipana-
kerfi í efnahags- og atvinnumálum er
verið að reyna að gera kerfi markaðs
og einkaframtaks. Af almenningi er
þess jafnframt krafist að hann stilli sig
inn á nýtt hugarfar. Menntun gamla
kerfisins er að talsverðu leyti úrelt,
fellur ekki að nýjum aðstæðum. Fólk,
sem taldist vel menntað og naut út á
það virðingar og afkomuöryggis verð-
ur að reyna að koma sér á skólabekk á
ný. Það getur verið hægara sagt en
gert, ma. vegna þess að þeir sem
kunna nóg á nýja tímann til að geta
kennt hinum á hann eru ekki margir.
Bylting hring-
borösins
Tálsverðum hluta yfirstéttar gamla
tímans, nómenklatúrunnar, tókst að
komast klakklítið yfir umskiptin. í
mörgum fyrrverandi sovétlýðvelda
eru valdhafamir enn einkum úr
hennar röðum. í fylgiríkjunum fyrr-
verandi og Eystrasaltslöndum er al-
gengast að nýir forustumenn og
menn gamla kerfisins séu í bland í
efsta laginu. Framlag Austur-Evrópu
til stjómmálamenningar 20. aldar er
bylting, ,sem setur sjálfri sér tak-
markanir," segir Jadwiga Staniszki,
pólskur stjómmálafræðingur. Fólk
þar eystra líti svo á að það að steypa af
stóli „ríkjandi stétt" sé úrelL Tálað er
um ,Jiringborð“ í því sambandi og þá
vísað til þess að pólskir Samstöðu-
menn settust við borð sem þannig var
í laginu í höll í Varsjá með ráðamönn-
um hers og Flokks og komust að sam-
komulagi við þá um kerfisbreytingu.
Um upplausnina og beina neyð fyrir
marga, sem af henni hefur leitt, er
stundum kennt því að of geyst hafi
verið farið í einkavæðingu. Á þá leið
segja margir þar eystra, einnig þeir
sem síst af öllu vilja frá gamla kerfið
aftur. Þekkingarleysi á nýjum háttum
í þjóðarbúskap, sem verið er að reyna
að innleiða eftir vestrænum fyrir-
myndum, á mikinn þátt í því að svo
hefur víða gengið til, auk spillingar
sem kemur fram í því að hinir og þess-
ir óhlutvandir aðilar notfæra sér um-
skiptin dl að skara eld að eigin köku.
Blandað hagkerfi í
Belarús
í Hvíta-Rússlandi, sem virðist hafa
orðið sjálfstætt einna helst af því að
það gat ekki annað þegar Sovétríkin
voru leyst upp, segjast ráðamenn leit-
ast við að fara að öllu með gát og
koma á blönduðu hagkerfi. Vestrænir
fféttaskýrendur segja land þetta, sem
á eigin tungu heitír nú Belarús,
standa sig betur í efnahagsmálum en
flest önnur fyrrverandi sovétlýðveldi.
Úr framleiðslu dró þar í fyrra um 9%,
en það þykir gott hjá 20% fram-
leiðsluhruni í Rússlandi og helmings
minnkun iðnaðarffamleiðslu í Lithá-
en sama ár. Halli á fjárlögum Hvít-
Rússa varð og lítíll s.l. ár.
Markaðshyggja hefúr verið í tísku
undanfarið og í samræmi við það vilja
margir, ekki síst á Vesturlöndum,
meina að ringulreið sú og hörmungar
er fyrrverandi austantjaldsmenn nú
verða að þola sé óhjákvæmilegur
hreinsunareldur er þeir verði að
ganga í gegnum inn í ,fullkomið“
markaðssamfélag. Aðrir af því tagi
kenna kannski vandræðin þar eystra
því að einkavæðingin hafi ekki verið
framkvæmd nógu eindregið og af-
dráttarlaust Þeir kalla stjómendur
Hvíta-Rússlands „popúlista“, telja þá
ganga of langt til móts við kröfúr al-
mennings og muni þeir fara flatt á því.
Almennt er raunar talið að Hvít-Rúss-
ar, mjög háðir hráefnum ffá Rússlandi
(olíu sína fá þeir alla þaðan) er sfa'ga
ört í verði, muni eiga íúllt í fengi með
að forðast óðaverðbólgu. Hvað sem
því líður mun hvítrússneska fordæm-
ið hafa átt einhvem þátt í kosninga-
sigmm teknókratans Brazauskas á
tónlistarmanninum Landsbergis í Lit-
háen. Litháar og Hvít-Rússar hafa
mikið saman sældað frá fomu fari.
„Þeir hæfustu
lifaaf*
Margnefndur Schlögel telur, að líkleg
skýring á því hve umrædd umskiptí
hafa víðast gengið tíltölulega friðsam-
lega fyrir sig sé einskonar óformlegt
allsherjarsamkomulag um að sætta
sig við erfiðleikana sem þeim fylgja,
hversu óskaplegir sem þeir séu. Til of-
beldis hafi komið þar sem vilji fyrir
slíkri allsherjarsátt var takmarkaður.
Það gerðist þar sem þjóðemi, trúar-
brögð og ættbálkar höfóu meira vægi
enannað.
En ofbeldið er einnig þar sem um-
rætt samkomulag tókst, í formi ört
rísandi glæpaöldu. Þar valda miklu
um mafi'ur, sem vom liðnar að vissu
marki í gamla kerfinu en haldið niðri.
í yfirstandandi upplausn hafa þær
magnast svo óðfluga að á fréttum er
svo að heyra að þær stjómi frekar hin-
um og þessum borgum og landshlut-
um en stjóm- og yfirvöld. Fátækt, at-
vinnu- og öryggisleysi er önnur
ástæða tíl hraðrar fjölgunar glæpa.
Það sem kalla mættí siðrof veldur hér
að líkindum miklu um. Kommúnism-
inn, er giltí sem einskonar trúar-
brögð, er hmninn og því hmni fylgdi
almenn vantrú á öllu af hugsjónatagi
úr stjómmálum og trúarbrögðum.
Það hefur í framkvæmd leitt tíl ein-
staklingshyggju með mesta mótí og
félagslegrar ábyrgðartílfinningar f
minnsta lagi. Sá sem þetta ritar heyrði
Hættan mesta
Einhver hefur líkt austurblökkinni
fyrrverandi við fortíðarmeginland,
sem spmngur myndist í og brot losni
utan úr. Istanbúl er aftur orðin Býsans
eða Konstantínópel, segir Schlögel
skáldlega, það er að segja miðstöð nýs
viðskiptasvæðis Svartahafslanda.
Eystrasaltslönd vilja fyrir hvem mun
komast í sem mest sambönd við Vest-
urlönd, sérstaklega Norðurlönd sem
em þeim nákomin í menningarefn-
um. Tékkar, Mið-Evrópumenn í húð
og hár, em óðum að renna saman við
þann heimshluta á ný og því heyrist
spáð að Prag verði fyrr en vari orðin
höfuðborg Mið-Evrópu í viðskiptum.
Schlögel og fleiri Iáta í ljós að mesta
hættan viðvíkjandi sovétblökkinni
fyrrverandi sé að erfiðleikar og örygg-
isleysi vaxi svo mörgum yfir höfúð að
siðræna upplausnin nái yfirhöndinni
að fullu. Við slík skilyrði myndu aðilar
af óhlutvandara taginu fa stóraukin
tækifæri, td. „rauð“ eða „brún“ (eða
hvorttveggja) samtök sem talsverð
fyrirferð er á í Rússlandi. En lúti von-
leysið í lægra haldi fyrir voninni um
sigur á erfiðleikunum, eins og Schlö-
gel telur þrátt fyrir allt nokkrar horfur
á, þá lýkur loksins, segir hann, þeim
kafla Evrópusögunnar sem hófst er
heimsstyrjöldin fyrri braust út 1914.
Hermenn eöa stigamenn (I Kákasus): siðræn upplausn mesta ógn-
in.
í sumar í Eistlandi og Lettlandi ósjald-
an sagt eitthvað á þessa leið: Nú vill
enginn framleiða, allir vilja vera í
bisniss í von um að græða. Margir
svífast einskis tíl að svo megi verða.
Gamalkunnan orðskvið frá þeim
Darwin og Spencer, „þeir hæfústu lifa
af‘, ber hátt í austrinu sem einu sinni
var og ófáir túlka hann eftir eigin
hentugleikum.
„Örvæntíng" og „lífsþróttur" em
áberandi í heildarsvip sovétblakkar-
innar fyrrverandi, að sögn Schlögels.
Hann og fleiri telja sig merkja að á
móti erfiðleikum, sem margir kikna
undir að fullu, vegi bjartsýni og kjark-
ur til að takast á við vandamálin. Það
sýni sig í mörgu. Borgarbúar flytji að
nokkm eða öllu út í sveit gjaman í
samvinnu við þarbúandi ættingja, til
að framleiða handa sjálfúm sér í mat-
inn og að selja afganginn. Torg borg-
anna ólga af sölumennsku, einkum
stærri borga og þeirra sem Iiggja vel
við samgöngum við betur stæð ríki.
Að sumra sögn fer fjölgandi þeim,
sem komið hafa sér það vel fyrir í nýja
kerfinu (eða kerfisleysinu) að kaup-
máttur þeirra hefúr undan verðhækk-
unum.
NISSAN PRIMERA
SKUTBÍLL
er ótrúlega rúmgóður og bjartur
fjölskyldubíll. Hann er hlaðinn aukahlutum
til þæginda fyrir ökumann og farþega.
Komið og skoðið verðlaunaðasta bíl
samtímans í útfærslu skutbíls.
Primera er fáanleg með bensínvél
og bein- eða sjálfskipt eða með
díselvél beinskipt.
Syning um heigina að Sævarhöfða 2 og
BG Bíiakringlunni Kefiavík
frá kl. 14-17
Verð kr. 1.611.000.-
t ingvar
^=§:-. i i Helgason hff.
Sævarhöföa 2
síma 91-674000