Tíminn - 27.02.1993, Side 15
Laugardagur 27. febrúar 1993
Tíminn 15
SPARNAÐUR SPARNAÐUR SPARNAÐUR SPARNAÐUR
Edda Svavarsdóttir, markaðstjóri Búnaðarbanka íslands:
ALLFLESTIR
HAFA ÁHUGA
A AÐ SPARA
Launamaðurínn getur valið einn kost eða fleiri í Spariþjónustu
Búnaðarbankans. Spariáskrift að Stjörnubók hentar mjög vel í
þessu tilfelli.
Stjömubókin ber hæstu vextina og
spariáskriftin hefur þann kost áð öll
innistæða bókarínnar er laus á
sama tíma þegar spamaði lýkur, en
hann þarf að standa yfir í lágmark
30 mánuði. Auk þess hefur Stjömu-
bókin þann kost að þrátt fyrir bindi-
tíma er hægt að losa um bundna
innistæðu ef brýna nauðsyn ber til
en þá þarf að greiða innlausnar-
gjald.
Stjömubókinni fylgir lánsréttur til
húsnæðiskaupa. Lánsfjárhæð og
lánstími ræðst af spamaðarfjárhæð
og tímalengd sparnaðar. Lánið get-
ur verið til allt að 10 ára, að há-
marki 2,5 milljónir króna. í Spari-
þjónustu er hægt að velja um að
láta millifæra af launareikningi eða
fá sendan gíróseðil ákskrífenda að
kostnaðarlausu.
Bústólpi, húsnæðisreikningur
Búnaðarbankans, getur hentað
mjög vel, einkum ef ætlunin er að
festa kaup á íbúðarhúsnæði. Hann
ber sömu vexti og Stjörnubók en
veitir auk þess rétt á skattaafslætti.
Allflestir hafa áhuga á að spara en
mörgum finnst erfitt að byrja. Ein-
faldasta leiðin til að eignast sparifé
er að stofna til spariáskriftar, byrja á
einhverri lágmarksupphæð sem
síðan er hægt að hækka eftir því
sem efni standa til. Gott er að setja
sér markmið og líta á spamaðinn
sem hluta af útgjöldum heimilisins.
Starfsfólk bankans veitir einstak-
lingum ráðgjöf í fjármálum og að-
stoð við að finna þá leið sem best
hentar hverjum og einum.
Boðið er upp á sérstök fjármála-
námskeið fyrir unglinga. Þar er
kennt að halda einfalt bókhald yfir
fjármálin, gera fjárhagsáætlanir og
fleira. Þátttakendur fá vandaða fjár-
málahandbók. í bókinni em að-
gengilegar upplýsingar um fjár-
málahugtök, vaxtaútreikning, inn-
lán, útlán, ábyrgð vegna fjárhags-
legra skuldbindinga og margt fleira.
Val á spamaðarformi er mismun-
andi eftir aldri, aðstæðum og þörf-
um hvers og eins. Oft er heppilegt
að dreifa sparifé á tvö eða fleiri
spamaðarform. Taka þarf tillit til
þess hvort fólk vill binda spariféð,
getur nýtt skattaafslátt, þarf að
greiða skatt af innistæðunni, hvort
það vill taka áhættu og fleira.
Nýjasta spamaðarform Búnaðar-
bankans, Stjömubókin, er í raun
sniðin að þörfum flestra einstak-
linga, meðal annars vegna þess að
hún gefur háa ávöxtun en býður um
Edda Svavarsdóttir.
leið upp á ákveðinn sveigjanleika.
Þrátt fýrir binditíma sem er 30
mánuðir er hægt að losa um bund-
ið fé ef brýna nauðsyn ber til gegn
ákveðnu innlausnargjaldi. Auk þess
fylgir henni lántökuréttur og ein-
föld spariáskrift. Hún hentar þvf vel
þeim sem vilja safna í varasjóð eða
einskonar Iífeyrissjóð. Hún er til-
valin fyrir börn og unglinga, t.d. til
að ávaxta fermingarpeninga. Einnig
hentar hún þeim sem em að safna
fyrir húsnæði, námi eða hverju sem
er. Metbókin er einnig mjög góður
kostur en binditími hennar er 18
mánuðir. Fyrir skattgreiðendur er
Bústólpi mjög góður kostur, eink-
um ef þeir hyggjast festa kaup á
íbúðarhúsnæði. Reikningarnir gefa
báðir háa raunávöxtun og veita rétt
á láni til húsnæðiskaupa. Auk þess
veitir Búnaðarbankinn þjónustu
varðandi verðbréfaviðskipti. Náms-
mannalínan er sérhæfð þjónusta
fyrir námsmenn og Vaxtalínan fyrir
unglinga á aldrinum 13 til 18 ára.
miðað við efnahagshorfur!
LADA • LADA • LADA • LADA
SAFIR
Frá 418.000,- kr.
104.500,- kr. út
og 10.051,- kr.
í 36 mánuði
SKUTBILL
Frá 498.000,- kr.
124.500,- kr. út
og 11.974,- kr.
í 36 mánuði
SAMARA
Frá 523.000,- kr.
131.000,- kr. út
og 12.568,- kr.
í 36 mánuði
SPORT
Frá 798.000,-
200.000,- kr. út
og 19.172,- kr.
í 36 mánuði
Tökum notaða bíla sem greiðslu upp í nýja og bjóðum ýmsa aðra greiðslumöguleika.
Tekið hefiu verið tillit til vaxta í útreilmingi á mánaðargreiðslum.
BIFREIÐAR&
LANDBÚNAÐARVÉLAR HF.
ÁRMÚLA 13. SfMI: 68 12 00
BEINN SÍMI: 3 12 36