Tíminn - 27.02.1993, Side 16
16 Tíminn
Laugardagur 27. febrúar 1993
NEYSLA NEYSLA NEYSLA NEYSLA NEYSLA NEYSLA
Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að menn taki mikla áhættu
þegar þeir taka víxla og skuldabréf upp í greiðslu:
Til eru menn sem hafa að
lifibrauði að féfletta fólk
hvort greiðandi og ábyrgðar-
menn eigi fasteignir og séu lík-
Iegir til að geta staðið í skilum.
Jóhannes segir að fólk sé gjör-
samlega varnarlaust ef það fellur
í þá gryfju að taka við víxlum af
mönnum sem eiga ekkert eða
hafa verið lýstir gjaldþrota.
Bóndi tapar tveimur
hestum í viðskiptum
við braskara
Mörg dæmi eru til þar sem
menn hafa farið flatt á viðskipt-
um við óheiðarlegt fólk. Síðast-
liðið haust auglýsti t.d. bóndi á
Vesturlandi tvo hesta til sölu í
DV. Um var að ræða vindóttan
fjögurra vetra klár og leirljósan
sex vetra klár. Maður að nafni
Kristinn Jónsson (fæddur 25.3.
1958) hafði samband og lýsti sig
fúsan til að kaupa hestana.
Kaupverð var ákveðið 300 þús-
und krónur. Frá kaupsamningi
var gengið og féllst bóndinn á að
hestarnir yrðu greiddir með
tveimur víxlum sem yrðu borg-
aðir 1. nóvember og 1. desem-
ber. Ábyrgðarmaður var Jóhann
Stefánsson (fæddur 7.8. 1935),
tengdafaðir Kristins.
Ekki var staðið við greiðslu á
tilskildum tíma. Við eftir-
grennslan hjá Kristni kom fram
að afar illa stóð á hjá honum, en
greiðslur myndu berast mjög
fljótlega. Þetta sama svar, með
tilbrigðum þó, fékk bóndinn
viku eftir viku. Þar kom að hann
fór að grennslast fyrir um Krist-
inn og Jóhann og kom þá í ljós
að Jóhann hafði tvívegis orðið
gjaldþrota og er allvel þekktur
meðal lögfræðinga sem sinna
innheimtu. Kristinn hefur tví-
vegis fengið á sig nauðungar-
söludóma. Eiginkonur beggja
háfa verið lýstar gjaldþrota. Eng-
ar fasteignir eða bílar eru skráð-
ir á Jóhann eða Kristinn.
Eftir að reynt hafði verið að
rukka Kristin í fleiri vikur féllst
hann á láta bóndann hafa gaml-
an bíl sem greiðslu upp í hluta af
skuldinni. Þegar til átti að taka
reyndist bremsubúnaður bílsins
ónýtur og bílinn því verðlítill.
Bóndinn sagði í samtali við
Tímann að hann væri ekki í
nokkrum vafa um að Kristinn og
Jóhann hafi aldrei ætlað sér að
borga hestana. Hann sagðist
hafa haft spurnir af því að þeir
hafi leikið þennan leik við fleiri
bændur.
Bóndinn sagðist hafa átt við þá
fleiri tugi símtala, sem engum
árangri hafi skilað. Hann hafi
verið dreginn á asnaeyrunum
með lygum og eilífum loforðum
um borgun, loforðum sem öll
hafi verið svikin. Hann sagðist
hafa farið fram á að kaupsamn-
ingi yrði rift, en sú leið hafi ver-
ið ófær, þar sem Kristinn hafi
selt hestana fljótlega eftir að
hann keypti þá. Kristinn hefði
hins vegar verið ófáanlegur til að
gefa skýr svör um hver hefði
keypt hestana.
„Það er eitt út af fyrir sig að
þurfa að sætta sig við að tapa
þessum fjármunum, fjármunum
sem ég þurfti nauðsynlega á að
halda. Hitt þykir mér verra að
finna hversu varnarlaus maður
er gagnvart svona mönnum og
eins að vita að maður getur ekk-
Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að Hann segir að fólk eigi alls ekki
____________________________ í þjóðfélaginu sé til hópur manna sem hafi það að lifibrauði að að skrifa undir víxla eða skulda-
Jóhannes Gunnarsson. féfletta fólk. bréf nema hafa athugað áður
„STJÖRNUBÓKIN
HITTIR BEINT í MARK!“
Me5 spariáskrift að Stjörnubók er unnt að losa alla innstœðuna á sama tíma.
Eyjólfur Sverrisson, knattspymumaður
BUNAÐARBANKINN
Traustur banki
STJÖRNUBOH
BÚNAÐARBANKANS
<4 Verðtrygging og háir raunvextir.
<@< Vextir bókfærðir tvisvar á ári.
Lausir til útborgunar eftir það.
<»< Hver innborgun bundin í 30 mánuði.’
Eftir það er hún alltaf laus til útborgunar.
<f Spariáskrift - allar innborganir lausar á sama tíma.
<#< Lántökuréttur til húsnæðiskaupa.
Lánsupphæð hámark 2,5 milljónir til allt að 10 ára.
* Ef nauðsyn ber til getur reikningseigandi sótt um heimild til
úttektar á bundinni fjárhæð gegn innlausnargjaldi.