Tíminn - 27.02.1993, Page 17
iaugardagur 27. febrúar 1993
Tíminn 17
NETSLA NEYSLA NEYSLA NEYSLA NEYSLA NEYSLA
ert gert til að koma í veg fyrir að
þeir haldi áfram að féfletta sak-
laust fólk,“ sagði bóndinn í sam-
tali við Tímann.
Fólk á ekki að taka
við víxlum nema að
hafa fyrst „tékkað
á“ mönnum
Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna, var
spurður hvað fólk gæti gert í
svona málum.
„Fólk á ekki að taka þátt í slík-
um viðskiptum, nema því aðeins
að upp á slíka víxla skrifi aðilar
sem eru það sem kalla má pott-
þéttir menn, þ.e. sem eiga eitt-
hvað, fasteignir eða eitthvað
annað. Að öðrum kosti á fólk
ekki að samþykkja víxla eða
skuldabréf sem greiðslu. Það er
mjög einfalt.
Þegar fyrir liggur tilboð og það
á að greiðast með víxli eða
skuldabréfi, þá á fólk að taka sér
tíma í að skoða pappírana. Fólk
getur t.d. farið með þá í sinn við-
skiptabanka og beðið hann um
mat á þeim sem undirrita papp-
írana. Ég reikna með að flestir
viðskiptabankar hjálpi sínum
viðskiptamönnum með slíkt,"
sagði Jóhannes.
Jóhannes sagði að fólk geti far-
ið fram á riftun kaupsamnings ef
ekki er staðið í skilum, en í
mörgum tilvikum sé það þýðing-
arlaust vegna þess að búið sé að
selja hlutinn öðrum.
„Fólk er varnarlaust þegar ekk-
ert er hægt að hafa af viðkom-
andi aðila. Það hefur þá ekkert
upp úr tilraunum til að rukka
viðkomandi nema ergelsi og
leiðindi. Og ef skuldin er sett í
lögfræðilega innheimtu, þá er
hætt við að út úr því komi ekk-
ert nema kostnaður fyrir selj-
andann. Lögfræðingurinn þarf
að fá greitt fyrir þá vinnu sem
hann leggur fram, óháð því
hvort árangur verður af inn-
heimtutilraunum. Oft hefur því
fólk ekkert út úr lögfræðilegri
innheimtu, en þarf að borga fyr-
ir hana,“ sagði Jóhannes.
Til eru menn sem
hafa það að lifibrauði
að féfletta fólk
Jóhannes sagði að nokkuð sé
um að fólk, sem lent hafi í svona
málum, spyrjist fyrir um það hjá
Neytendasamtökunum hvað það
geti gert. Jóhannes sagði að
Neytendasamtökin geti í raun-
inni ekki sagt annað við það fólk,
sem fallið hefur í þá gryfju að
taka víxla upp í greiðslu þar sem
greiðendur eða ábyrgðarmenn
eru eignalausir og ekki borgun-
avmenn fyrir skuldinni, en að
gleyma málinu.
„Því miður eru menn úti í þjóð-
félaginu, sem virðast hafa það
helst að lifíbrauði að féfletta
aðra. Þessir menn vita alveg
hvað þeir geta gengið langt án
þess að brjóta beinlínis lög. Ef
um eignalausa menn er að ræða,
þá vita þeir að þeir eru með pál-
mann í höndunum ef þeir fá ein-
hvern til að undirrita víxil eða
skuldabréf. f mörgum tilfellum
ætla þeir sér ekki að borga
krónu og reyna með eilífum lof-
orðum um að borga að þreyta
fólk. Fólk gefst á endanum upp
og reynir að sætta sig við að hafa
tapað bílnum eða hestinum sem
seldur var,“ sagði Jóhannes.
Jóhannes nefndi sem dæmi um
hvað fólk er varnarlaust í svona
málum að ef því berst vitneskja,
fljótlega eftir að gengið hefur
verið frá kaupum, um að selj-
andinn muni nær örugglega
ekki standa í skilum með
greiðslu, þá geti það ekkert gert
fyrr en á þeim degi sem greiðsla
á að fara fram, en algengt er að
fyrsta greiðsla af skuldabréfi sé
eftir einn til þrjá mánuði frá
undirritun kaupsamnings. Á
þeim tíma getur kaupandinn
síðan selt hlutinn og þá er þeim,
sem seldi hann, allar bjargir
bannaðar.
Lögreglan fæst ekki
við svona mál
Lögreglumaður hjá Rannsókn-
arlögreglu ríkisins, sem Tíminn
ræddi við, sagði að lögreglan
tæki ekki við málum af þeim
toga sem hér um ræðir. Hann
sagði að lögreglan gæti ekki
annað en bent fólki á að leita til
lögfræðinga, sem taka að sér
innheimtu skulda. Lögreglan
taki svona mál því aðeins inn á
borð til sín, ef kærandinn getur
sýnt fram á það að kaupandinn
hafi aldrei ætlað sér að borga.
Það gefi hins vegar auga leið að
það er mjög erfitt að sýna fram á
það.
Menn taka íbúðir á
leigu, borga einn
mánuð og síðan ekki
meir
Önnur hlið mála af þessu tagi
er fólk sem tekur íbúðir á leigu,
borgar einnar til tveggja mánaða
leigu fyrirfram, en síðan ekki
söguna meir.
Karl Axelsson, framkvæmda-
stjóri Húseigendafélagsins,
sagði engan vafa leika á að til sé
nokkur hópur manna sem leiki
þann leik að leigja sér íbúð,
borga einn eða tvo mánuði og
síðan ekkert meir. Karl sagði að
mikið sé um að sömu nöfnin
komi upp aftur og aftur og það
geti tæplega verið annað en að
þetta fólk taki íbúðirnar á leigu
beinlínis með það að markmiði
að borga einungis fyrstu mánuð-
ina.
Karl sagði að í mörgum tilvik-
um geti húseigendur lent í vand-
ræðum við að losna við þessa
leigjendur úr íbúðunum og því
hvetji hann sína húseigendur að
senda strax leiguáskorun þegar
vanskil fara að hlaðast upp.
Leiguáskorun sé forsenda þess
að hægt sé að fara fram á útburð,
en í þó nokkrum tilvikum gangi
mál svo langt.
Karl sagði að auðvitað geti
leigjendur átt erfitt með að
standa í skilum með leigu, ekki
síst ef tekjur fólks minnka eða
það missir vinnuna. Annað mál
sé þegar fólk taki íbúð á leigu
beinlínis með það að markmiði
að koma sér hjá því að borga
leigu. -EÓ
TNú liafa Þór og Björg
ixieð | >ví að hvort þeárr*a hefiir lagt fyrir mn 164 kr. á dag*
Hver hefði trúað því að hægi væri að safna jafn
miklu á tæplega fjórum árum með jafn auðveldum
hætti og áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs? Þór
og Björg gerðu sér í upphafi enga grein fyrir þessu,
en nú hafa þau fengið yfirlit yfir spamaðinn og ef
einhverjir flugeldar eru afgangs sfðan á gamlárskvöld
munu þau örugglega skjóta þeim upp núna.
Settu þig í spor þeirra Þórs og Bjargar. Með því einu
að hvort þeirra hefur lagt fyrir sem nemur um 164 kr.
á dag hefur spamaðurinn vaxið ört og er nú orðinn að
þessari dálaglegu fjárhæð.
Hringdu í Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa í síma
91-626040 (grænt númer 996699) eða Seðlabanka
íslands í síma 91-699600 og pantaðu áskrift.
Það þarf bara eitt símtal til að byrja að spara. Og svo
era vaxtakjör á spariskírteinum sérlega hagstæð fyrir
áskrifendur.
Komdu í hópinn meft þeim Þór og
Björgu og sparaðu markvisst með
áskrift að spariskírtcinum ríkissjóðs.
Ef þú gerist áskrifandi núna færðu
senda áskriftarmöppu sem inniheldur
m.a. eyðublöð fyrir greiðsluáætlun
og heimilisbókhald 1993. Með því að
nýta þau vel getur þú fylgst með
öllum útgjöldum og árangurinn
kemur strax í ljós: fjármálin verða
mun skipulagðari en áður.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6,2. hæb, simi 91- 62 60 40.
*Hjónin Þór og Björg gerðust áskrifendur að spariskírteinum í apríl 1989 og hafa síðan
keypt spariskírteini mánaðarlega fyrir um 5.000 kr. hvort. Þessi mánaðarlegi spamaður,
ásamt áföllnum vöxtum og verðbótum m.v. 1. febrúar 1993, gerir kr. 645.689.