Tíminn - 27.02.1993, Page 20

Tíminn - 27.02.1993, Page 20
20 Tíminn Laugardagur 27. febrúar 1993 NEYSLA NEYSLA NEYSLA NEYSLA NEYSLA Efniö í þessar 30 vatnsdeigsboll- ur ófylltar kostaöi 305 krónur en meö sultu og rjóma hækkaöi þaö I 769 kr. í næsta bakaríi þurfti að borga 2.250 kr. fyrir 30 ófylltar samsvarandi bollur sem hækk- aöi í 4.500 kr. þegar þær voru fylltar meö rjóma. Verömunurinn er sex- til sjöfaldur. Hvað skyldi stykkið kosta af þessum bollum? Þessari spumingu skaut óvart upp í huga Tímamanns um leið og hann dró plötu með ilmandi vatnsdeigsbollum út úr ofninum um síðustu helgi. Og undrunin varð ekki lítil þegar í ijós kom að hann veit ekki til að hafa nokkru sinni haft hærra tímakaup heldur en þá tvo tíma sem hann dundaði sér við að baka 30 bollur með kaffinu. Framtakið samsvaraði 1.850 króna tímakaupi sem sam- svarar 320 þús.kr. mánaðartekjum eða u.þ.b. ráðherra- launum. Heimabakstur á 30 boll- um skilaði 3.700 kr. sparnaði — en getur um leið haft ótrúlegustu áhrif á efnahagslíf þjóðarinar: Sú niðurstaða kom þó enn meira á óvart, að maður á 13 ára taxta Blaða- mannafélags íslands hefði sloppið nánast á sléttu, mælt í ráðstöfunar- tekjum, þótt hann hefði tekið sér tveggja daga frí frá vinnu til að baka bollumar í stað þess að kaupa þær í næsta bakaríi. Sú ótrúlega niðurstaða kom í ljós, að hráefni í 30 vatnsdeigsbollur kostaði ekki nema um 770 kr. með öllu saman, eins og hér er sundur- liðað: Efni í 30 ijómabollur 8 stk. egg 176 kr. 250 gr. smjörlíki 45 kr. 250 gr. hveiti 8 kr. 5 dl. vatn Okr. 150 gr. flórsykur 11 kr. 100 gr. suðusúkkulaði 57 kr. 1 msk. smjörvi 8 kr. Alls ófylltar: 305 kr. 3 pelar rjómi 384 kr. 450 gr. jarðarb.sulta 80 kr. Heildarverð 769 kr. Hárefni í hverja bollu ófyllta kost- aði ekki nema rétt rúmlega 10 krón- ur en fór í tæplega 26 krónur þegar hún hafði verið fyllt með sultu og rjóma. Samsvarandi bollur (að vísu ekki alveg eins góðar) kostuðu 75 kr. ófylltar í næsta bakaríi, þ.e. rúmlega sjö sinnum meira en hráefni í þær kostar í smásöluverslun. En fylltar með rjóma kostuðu þær 150 kr. sem gerir tæplega sexfaldan verðmun. Þrjátíu vatnsdeigsbollur með rjóma kostuðu 4.500 krónur í bakaríinu (hjá einum umsvifamesta bakara borgarinnar). Bollurnar staðfestu þannig það sem Ögmundur Jónasson sagði í sjónvarpinu þessa sömu helgi. Að kjör fólks ráðist ekki bara af tekjun- um heldur líka af útgjöldunum. „Ráðherralaun" fyrir bolludagsboll- ur bjóðast bara einu sinni á ári. En skyldu ekki finnast fleiri möguleikar á „forstjóralaunum" í hátæknivædd- um kokkhúsum landsmanna ef grannt væri að gáð? Gæti t.d. ekki verið gaman að reikna út „gróða- möguleika" í bollum og brauðum sem flestir borða hina 364 daga árs- ins? Leynist kannski líka þama hluti af svarinu við spurningu sem svo margir spyrja en fáir svara: „Hvernig komust fjölskyldur (jafnvel 6-10 manna) af í gamla daga með eina fyrirvinnu?“ Gleymist þá ekki „hin fyrirvinnan" sem vann heima, m.a. við að baka brauð alla daga ársins? Blaðamann, á 13 ára taxta, rak líka í rogastans þegar í Ijós kom að hann hefði u.þ.b. sloppið á sléttu í nettó- tekjum þótt hann hefði tekið sér tveggja daga Iaunalaust frí frá vinnu til að baka 30 rjómabollur í stað þess að kaupa þær í næsta bakaríi. Þótt brúttólaunin lækkuðu um tæpar 8.400 kr. þá minnkaði sá munur um hátt í helming að frádeginni stað- greiðslu og iðgjöldum til lífeyris- sjóðs og stéttarfélags og sléttaðist síðan síðan hér um bil út eftir kaup á bollum annars vegar en efninu í þær hins vegar. Ahríf 2ja frídaga og 30 bolla nettó Mán.laun 83.849 kr. 75.465 kr. Staðgr. - 11.052,,- 7.585 „ Iðgjöld - 4.402 „ - 3.962 „ Útborgað: 68.395 kr. 63.918 kr. Bollur - 4.500 „- 769 „ Nettó: 63.895 kr. 63.149 kr. Með 20 þús.kr. lægri mánaðarlaun hefði niðurstaðan orðið nokkur hundruð króna nettóhagnaður af „bolIufríinu“. Svo hefði einnig orðið hjá Tímamanni hefði hann þurft 40 en ekki bara 30 bollur. Hvar bollurnar em bakaðar er heldur ekki mál bakara og heima- bakara einna. Við það eitt að baka þessar 30 bollur heima í eldhúsi missti ríkissjóður 705 kr. tekjur af virðisaukaskatti. Við frídagana tvo hefðu ríkissjóður og Reykjavíkur- borg misst hálft fjórða þúsund í staðgreiðslusköttum til viðbótar. Skatttekjur ríkis og borgar geta þannig rýrnað um 4.170 krónur við það eitt að einhver ákveði að taka sér frí og baka 30 bollur með kaffinu. Ríki og borg gætu þannig orðið af 100 milljóna króna skatttekjum ef þetta væri gert á fjórða hverju heim- ili í landinu. Bollurnar fara heldur ekki framhjá skýrslum Þjóðhagsstofnunar og Seðlabanka. Með því að baka boll- umar 30 heima, í stað þess að kaupa þær í bakaríi, minnkaði þjóðarfram- leiðslan um þúsundir króna. Það haft þannig alvarleg áhrif á hagvöxt- inn ef margir tækju upp á slíku at- hæfi. Því í þjóðarframleiðslunni telj- ast þær bollur einar með sem bakað- ar eru í bakaríi. í fréttum sjónvarpsstöðvanna af bollusölu bakaríanna munaði að vísu „litlum" 500.000 bollum. Með því að slá á milliveginn, 750.000 seldar bollur, má ætla að landsmenn hafi snarað út allt að 100 milljónum kr. fyrir bakarísbollur um síðustu helgi. Þótt aðeins helmingurinn af þessum bollubakstri hefði verið færður heim í hin hátæknivæddu eldhús íslendinga hefði það getað sparað heimilunum allt að 40 millj- óna kr. í útgjöld — eða upphæð sem t.d. svarar til atvinnuleysisbóta í 20.000 daga. Að lokum er rétt að taka fram að þessir verðútreikningar höfðu ekki verið áformaðir fyrirfram. Hug- myndin kviknaði ekki fyrr en boll- umar komu úr ofninum. „Ráðherra- launirí' komu því alveg óvænt í ljós eftirá. Verðmunurinn hefði m.a.s. getað orðið ennþá meiri. Því þótt hráefnið (að undanskildum rjóman- um sem var á tilboðsverði sl. helgi) væri allt keypt í Bónusi, fengust þar einnig enn ódýrari tegundir af hveiti, smjörlíki og jarðarbe jasultu. Með súkkulíki í glassúrinn (að ekki sé nú talað um kakói), f staðinn fyr- ir ekta suðusúkkulaði mætti líka spara meira. - HEI Bollan á litia diskinum kostaöi 75 krónur I bakaríi en efniö f hinar aöeins rúmlega 10 kr. í hverja og 61 kr. Iþær allar sex. Bæöi bakarísbollan og þær heimabökuöu voru kringum 40 gr. Verömunurinn var þvl meira en sjö- faldur. Kannski lýsandi dæmi um lltinn kaupmátt landans aö allar rjómabollurnar voru búnar f bakaríinu 15 mínútum fyrir lokun en töluvert ennþá tii afófylltum?

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.