Tíminn - 27.03.1993, Síða 4

Tíminn - 27.03.1993, Síða 4
4 Tíminn Laugardagur 27. mars 1993 Tímiim MALSVARI FRJALSLYNDIS, SAMVINNU OG FELAGSHYGGJU Útgefandi: Timinn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guömundsson Stefán Ásgrímsson Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason Skrifstofur: Lynghálsi 9. 110 Reykjavfk Sími: 686300. Auglýsingasfmi: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1200,-, verð I lausasölu kr. 110,- Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Skólaganga án menntunar Mikil umræða stendur nú yfir um menntun og skólake'rfi, og er greinilegt að þar er uppstokkunar þörf á mörgum sviðum. Lengi hefur það verið ríkjandi skoðun að menntun sé besta fjárfestingin, að hún sé aldrei of mikil og að fjölgun námsgreina og lenging skólagöngu sé undirstaða allra framfara og velmegunar einstaklinga sem þjóða. Þessi skoðun á enn fullan rétt á sér, en margt bendir til að skólakerfin og fræðslan sé ekki einhlítur mælikvarði á hvort menntun og menning standa undir þeim væntingum og kröfum sem til skólagöngunnar eru gerðar. Ólæsi og þekkingarskortur er ótrúlega algengt meðal þeirra sem lokið hafa grunnskólanámi og þegar það er upp- lýst eru viðbrögðin ekki önnur en þau að sumir verða hissa. Lítil viðbrögð urðu við útkomu bókar Helgu Sigurjóns- dóttur námsráðgjafa, Skóli í kreppu, þar sem hún metur ís- lenska skólakerfið og finnur það léttvægt, þar sem fjórði hver nemandi fellur í grunnskóla og framhaldsskólar gefa steina fyrir brauð. Síðan hefur Helga haldið áfram ótrauð að sýna fram á alvarlegar veilur í íslenska skólakerfinu, í þeirri von að úr verði bætt. Þögnin um vond mistök yfirvalda og skólamanna, sem gleyptu möglunarlaust við erlendri hjáfræði óvísindalegrar uppeldisfræði, er kannski enn alvarlegri en sá skaði, sem einstaklingar og skólakerfi hafa orðið fyrir vegna þess að menntunin var látin víkja fyrir innrætingu. Langt er síðan farið var að hvísla um það í kennarastofum Háskólans, að stúdentar kæmu illa undirbúnir úr fram- haldsskólum til að takast á við háskólanám. Lengi hefur þetta þó kvisast og þar sem ástandið fer versnandi, var farið að tala upphátt um menntunarskortinn og getuleysið. En aldrei er á þetta minnst nema mjög varfærnislega og af miklum skilningi og samúð með þeim menntastofnunum, sem útskrifa stúdenta sem ekki eru færir um að halda áfram námi vegna þekkingarskorts. Nú er málið að komast upp á yfirborðið og búið er að leggja fram frumvarp um fjöldatakmarkanir við einstakar deildir Háskólans. Þær hafa viðgengist í tilteknum deildum um langt skeið, en aldrei verið kallaðar réttum nöfnum, fremur en skólaganga án menntunar. Með því að krefjast strangra skilyrða og inntökuprófa til að fá að stunda nám við háskóladeildir, er í raun verið að af- nema stúdentsprófið sem hæfnisvottorð. Þegar svo er kom- ið, er bágt að sjá til hvers á að viðhalda úreltu framhalds- skólakerfi með stórskrýtnum punktakerfum og litríkum ávöxtum nýjungagimi byltingarsinnaðra uppeldisfræðinga. Hér þarf að gera bragarbót. Það er út í hött að mennta stúdentsefni og útskrifa, ef prófskírteini þeirra er marklaust plagg sem hvergi er tekið mark á. Þá hefur framhaldsskól- inn lítið að gera við nýnema, sem koma ólæsir og óskrifandi upp úr grunnskólanum. Og fyrir þá nemendur er ekkert fremur rúm í verknámsskólum en þeim sem kenna sig við bókaramennt. Virkt skólakerfi, sem veitir staðgóða menntun, er að sönnu undirstaða framfara og góðra lífskjara, að ógleymdu því að sönn menntun er í sjálfri sér lífsgæði þeirra sem hennar njóta. En lélegir skólar, fálmandi kennarar og prófgráður án menntunar er ávísun á hrakandi hag einstaklinga og þjóð- arheildar. Endurmat á fræðslu og menntakerfi á sér nú víða stað um hinn menntaða heim og sá ómur berst norður á Frón að lestur, skrift og reikningur séu að öðlast foma frægð sem höfuðkennslugreinar, sem öll önnur menntun byggist á. r A leiðum ráðdeildarinnar Atli Magnússon skrifar Þær fréttir að fjárlagahallinn stefni í tíu milljarða hressa enn all nokk- uð upp á þá tilfinningu sem annars hefur verið brött að undanförnu að dagar ofneyslunnar séu að baki — í það minnsta hvað allan fjöldann snertir. Sumir ala þó með sér hóf- lega bjartsýni og trúa að við séum í einu þessara dalverpa í efnahags- Iandslaginu sem ekki verði komist hjá að fara um af og til — svo muni leiðin liggja upp á hásléttuna þar sem sólin speglast í gullpeningum við hvert fótmál. Svartsýnissálimar spá aftur á móti að nú séu þjóðimar komnar ofan í slíkan Langadal, að kraftamir verði svo gott sem upp- umir þegar hann loks verði á enda genginn. Þótt margir verði til að sveia þeim svartsýnu fyrir bölmóðinn er að sjá að nógu margir leggi eym við víli þeirra og það má sjá í svip og fasi margra, sem finnst þeir vera að sli- gast undir vaxandi byrðum sem daglega lífið leggur þeim á herðar. Eftirspum fer vaxandi eftir hver- skyns sállækningum, handayfir- lagningum og ýmsu yfirskilvitlegu sem færa á huggun, þótt með illút- skýranlegu móti sé. En vissulega er allt gott og blessað sem verður til að auka lífstrúna í öllu volinu. Ó, góða gamla tíð... Meira að segja miklar og voldugar þjóðir, eins og Bandaríkjamenn, mega hafa mikið fyrir því að telja í sig kjarkinn á viðsjárverðri tíð. Einnig þar hefur ástandið borið merki vaxandi öngþveitis. Þeir horfa með söknuði aftur í tímann og þrá dagana þegar djúkboxin glumdu í hverri „Ice Cream Soda“- sjoppu og pilsin styttust og styttust. Þetta voru þeir dagar þegar EIvis Pres-ley og James Dean voru goð snoðklipptrar, ævintýraþyrstrar æsku sem ók á risavöxnum Ford eða Chevrolet með bensíntank á stærð við garðsundlaug. Nú hafa bflpútur frá Japan bægt þessum drekum fyrri tíðar til hliðar, því menn hafa orðið að fara að nurla með eldsneytið eftir olíukreppuna. Æ ofan í æ liggur við styrjöld, svo lítt útreiknalegar og svikóttar Ar- abaþjóðir fáist til að láta hið svarta 1 f * ■ liíiHÍSÍSS ||f ***' *•'* I 9M 1111 |L ÉM ***** -1 gull sitt af hendi. Þanþol kærleikans Sé horft austur um haf sést að vel- ferðarþjóðfélögin á Norðurlöndun- um, sem tóku í faðm síns alltum- lykjandi almannatryggingakerfis hvem þann sem halloka fór í tilver- unni, eru tekin að núa á sér hökuna í þungum þönkum. Margt hefur borið að höndum sem veldur því að minna er til ráðstöfunar en fyrr. Þegar best áraði fundu menn, og þá ekki síst Svíar, til verulegrar skömmustu vegna velsældar sinnar og vildu víst helst taka allan þriðja heiminn á „sósíalinn" hjá sér. Þetta var fallega hugsað og margan urðu þeir ásamt frændum sínum í Dan- mörku og Noregi til að taka undir verndarvæg sinn, fólk sem flúði neyðarkjör og óstjóm í suðlægum heimahögum. En „heimur versnandi fer“ og í þetta skiptið er það ekki aðeins tuldur geðvondra gamalmenna, heldur bláber staðreynd. Stríðsæs- ingar, yfirgangur og þrætur magn- ast hvert sem Iitið er. Og þá kemur í Ijós að einnig þanþol skandínavísks kærleika á sér takmörk. Kannske var „tamfla- skandallinn" sem kom Páli Schlúter á kné ein fyrsta vís- bending þess að Dönum væri tekið að bjóða í gmn að ástandið mundi ekki lengur svo „trygt og godt“ og mál til komið að stilla gestrisninni í hóf. Áþekk tilfinning býr um sig meðal Þjóðverja, sem meira að segja komplexinn vegna fortíðar- innar nægir ekki til að dylja eða halda í skefjum. Vísast á stórsigur hægri aflanna í Frakklandi á dögun- um rætur að rekja til þessa sama — að nú verði hver sem betur getur að bjarga eigin skinni. Bróðurkærleik- anum er pakkað inn og stungið í frysti til geymslu um ófyrirsjáan- legan tíma. Hamingjan má vita hve- nær ísinn verður barinn utan af honum aftur. Beðið upprísunnar Og fyrst hér er farið að tala um „kælitækni" kemur upp í hugann frétt í Tímanum frá sl. þriðjudegi. Þar sagði frá konu sem var orðin svo mædd vegna eyðslugiminnar sem greiðslukortið ól á hjá henni, að hún stakk því ofan í tóma mjólk- urfernu, fyllti hana af vatni og lét í frystikistuna. Þar bíður kortið nú upprisu sinnar, eða þess dags þegar sól efnahagsbatans tekur að skína og bræðir af því klakahjúpinn. Er þannig eins fyrir því komið og Walt Disney (heitnum?) sem bíður djúp- frystur eftir að undur læknavísind- anna veki hann til lífs á ný. En kannske er þetta meðfram af því góða og enn ein sönnun þess að fátt er svo illt að ekki boði nokkuð gott. Peningaþrengingar geta orðið til að auka ráðdeildarsemi og þeim er sækja námskeið til að bægja frá innri óróa og hrellingum vegna skuldabyrða, býðst nú sá kostur í staðinn að fara á námskeið í nurli — þ.e. Iistinni að lifa spart. Sú dyggð hefur alltaf þótt eftirsóknar- verð, þótt þeir hafi verið færri á góðu árunum sem tömdu sér hana. Ágæt byrjun getur verið að fara að dæmi konunnar sem frysti kortið og búa sig að því búnu undir að gera bróðurkærleikanum sömu skil. Enn er sá vandi ekki teljandi á íslandi sem stafar af straumi alls- leysingja frá Ceylon eða A-Evrópu. En margir verða fyrir búsifjum vegna kunningja sem berja upp á og búast við trakteringum eins og kök- um og kaffi. Hér er ágæt leið til þess að hefja spamað. Draga ber úr gest- risninni smátt og smátt, t.d. með því að bera fram beinakex í stað tertu eða eplaköku og láta kexið svo hverfa í fyllingu tímans. Þá er að- eins kaffið eftir sem smám saman má hafa þynnra og þynnra og loks þynnist kunningjahópurinn. Meðal annars með þessu móti má þreyja lengur á vegferðinni um Langadal efnhagslægðarinnar og temja sér jafnframt eina þeirra dyggða sem siðfræðingar allra tíma og trúarbragða hafa talið slíks gulls ígildi.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.