Tíminn - 03.04.1993, Síða 9
Laugardagur 3. apríl 1993
Tíminn 9
fréttist annað. En það varð þar eins
og víða annarsstaðar í sovétheims-
veldinu, að þegar frelsið jókst tóku
menn að skiptast í fjandsamlegar
fylkingar eftir þjóðernum. Frétta-
menn að vestan, kunnugir í Tatarst-
an, segja að í augum Tartara séu
Rússar heimsvaldasinnuð herþjóð,
sem framið hafi „þjóðarmorð" á Tar-
törum. Líkt og í fyrrverandi Júgó-
slavíu er talað þar um atburði langt
úr fortíð eins og þeir hafi gerst í
gær. ívan grimmi er orðinn í augum
Tártara ímynd fortíðarsamskipta við
Rússa og þar með Rússlands.
„ívan grimmi er lykilpersóna í
stjórnmálum þeirra," segir Vladímír
Beljaev, einn talsmanna Rússa í Tat-
arstan. „Hefnd er það sem þeir
vilja."
Endurreisn Gullna
skarans?
Tatarstan neitaði að undirrita sátt-
mála við Rússlandsstjórn, sem átti
að tryggja að lýðveldið yrði áfram
hluti rússneska sambandslýðveldis-
ins (hið sama gerðu Tjetjenar í Kák-
asuslöndum, þjóðbræður Khasbúl-
atovs höfuðandstæðings Jeltsíns). í
þjóðaratkvæðagreiðslu, sem fór
fram þótt Jeltsín bannaði hana,
greiddi meirihluti íbúa Tátarstans
Rútskoj: talsmaður „Rússa næst-
um erlendis".
atkvæði með „sjálfstjórn" og í fram-
haldi af því lýsti lýðveldið sig „full-
valda ríki" s.l. ár. Ekki er alveg ljóst
hvað nákvæmlega er meint með því,
en varla er fjarri lagi að ætla að með
þeirri yfirlýsingu hafi Tatarstan-
Tartarar gefið til kynna að þeir vilji
verða sjálfstæðir í raun. Þeir hafa
þegar eigið þjóðþing í Kasan.
Þeir róttækari meðal þjóðernis-
sinna þar vilja ganga lengra. Að
sögn bresks fréttamanns, Matthews
Campbell við Sunday Times, láta
þeir sig dreyma um „sambandsríki
Úral- og Volguhéraða". Þar verði ís-
lam ríkjandi trú og Tartarar áhrifa-
þjóð með meira móti. Miðað við fyr-
irhugaða stærð þessa framtíðarríkis
og svæði þau, er því er ætlað að ná
yfir, má gera ráð fyrir að hér séu að
baki draumar um endurreisn ríkis
Gullna skarans.
Rússar í Tatarstan, uggandi um
sinn hag út af sífelldum brennum á
myndum af ívani og annarri tján-
ingu tartarskrar þjóðernishyggju,
bregðast sumir við því með því að
gerast þjóðernissinnar fyrir sitt
leyti. Þessir kalla Jeltsín gjarnan
svikara og glæpamann fyrir að taka
ekki í lurginn á þjóðernissinnum
þjóðernisminnihluta. Aðrir Rússar í
Kasan og nágrenni reyna að aðlag-
ast breyttum kringumstæðum eftir
bestu getu. Þeir eru orðnir svo
þreyttir á hörmungarástandinu í
efnahagsmálum að sumir þeirra
segjast reiðubúnir að sætta sig við
sjálfstætt Tatarstan eða allt að því,
ef því mætti fylgja efnahagsbati þar,
og jafnvel gera það til geðs tartörsk-
um sambýlingum sínum að læra
mál þeirra. Virðist svo sem mörgum
Rússum þyki það síðasttalda einkar
ömurlegur kostur. Meðal Rússa í
Tátarstan, bæði þjóðernis- og aðlög-
unarsinna, er ofarlega kvíði út af því
að til, ofbeldisbeitingar kunni að
koma í samskiptum þjóða þar sem
víðar.
Rútskoj og ívan
Að sögn áminnsts Campbells „er
Jeltsín hrjáður af ótta um“ að þróun
sú, sem komin er hvað lengst á veg í
Tátarstan, leiði til þess að molna
muni utan úr Rússlandi þangað til
ekkert verði eftir af því annað en
nokkurnveginn það svæði, sem var
furstadæmið Moskva áður en ívan
grimmi lagði upp í ferðina til Kasan.
Jeltsín hefur hvað eftir annað, einn-
ig í valdabaráttunni nú síðustu vik-
urnar, sagt að Rússland kunni að
splundrast í óteljandi dvergríki sem
eigist illt við um ófyrirsjáanlega
framtíð. Ekki þarf þetta eingöngu að
vera hræðsluáróður hjá Jeltsín, því
að sumir af gleggri Austurevrópu-
fræðingum Vesturlanda telja líkleg-
ast að svo muni fara.
Fréttamenn að vestan staddir í
Rússlandi telja sig hinsvegar merkja
að ýmsir aðilar þarlendis hafi hug á
að grípa til harkalegra aðgerða til að
koma í veg fyrir slíka framvindu
mála. Einkum eigi það við um her-
foringjana. Þeim hafi þótt nógu
hörmulegt að horfa aðgerðalausir
upp á sovéska heimsveldið leysast
upp og muni ekki hafa hugsað sér
að verða eingöngu áhorfendur að
öðru álíka sögudrama. Sagt er að
þeir geri sér vonir um Aleksandr
Rútskoj, varaforseta Rússlands, sem
nothæfan leiðtoga. Rútskoj gat sér
frægðarorð í Afganistan og hefur
náð talsverðu fylgi, ekki síst í hern-
um, með því að tala máli „Rússa
næstum erlendis". Svo kalla Rússar
þá landa sína sem búa í fyrrverandi
sovétlýðveldum og í sumum sjálf-
stjórnarlýðveldanna.
Ekki er ólíklegt að framtíðar-
draumar tartarskra þjóðernissinna
og líkur á því að þeir gætu ráðið úr-
slitum um hvort Rússland fer alveg
úr böndunum eða ekki hafi einhver
áhrif á hugarfar herforingja og fleiri
Rússa um þessar mundir. Ætla má
að gamlar endurminningar Rússa
um Tartara séu í því sambandi ekki
án þýðingar.
Rússar í Tatarstan hafa Rútskoj í
miklum hávegum. En tartarskir
þjóðernissinnar eru farnir að sjá
hann fyrir sér sem mögulega nú-
tímaútgáfu af ívani grimma.
Jeltsín og sjóllðar: tekur herlnn
tll slnna ráða?
tækniskóli
íslands
Háskóli og framhaldsskóli
Höfðabakka 9,
112 Reykjavík, sími 91-814933
Tækniskóli íslands vekur athygli á, að frestur til að sækja
um skólavist árið 1993-94 ertil 16. apríl næstkomandi.
Tækniskóli íslands er háskóli í tengslum við atvinnulífið og
býður upp á nám til B.S.-prófs og styttra starfsnám.
Áætlað er að taka inn í eftirtaldar deildir og námsbrautir
Frumgreinadeild. Almennt nám til undirbúnings námi á
háskólastigi. Námið er ætlað iðnaðar-
mönnum og öðrum með viðeigandi
reynslu úr atvinnulífinu.
Byggingadeild. Byggingaiðnfræði og byggingatæknifræði
til B.S.-prófs.
Véladeild. Véliðnfræði og 1. ár í véltæknifræði og
skipatæknifræði.
Rafmagnsdeild. Rafiðnfræði (sterkstraums- og veik
straumssvið) og 1. ár í rafmagnstækni-
fræði (sterkstraums-, veikstraums- og
tölvusvið).
Rekstrardeild. Iðnrekstrarfræði (framleiðslu-, markaðs-
og útvegssvið) og iðnaðartæknifræði til
B.S.-prófs.
Heilbrigðisdeild. Meinatækni til B.S.-prófs og röntgen-
tækni til B.S.-prófs (Umsóknarfrestur til
10. júní n.k.).
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans alla virka
daga kl. 8.30 til 15.30. Skrifstofan veitir allar almennar
upplýsingar um skólann. Auk þess veita deildarstjórar
kennsludeilda allar upplýsingar um inntökuskilyrði og
námsframboð einstakra deilda.
Umsækjendur, sem Ijúka prófum eftir lok umsóknarfrests,
þurfa að senda inn prófskírteini, þegar þau liggja fýrír.
Öllum umsóknum verður svarað fyrir miðjan júní.
Rektor
Héraðssjúkrahúsið Blönduósi
Hjúkrunarfræðingar
Okkur vantar hjúkrunarfræðinga í afleysingar í sumar.
Á sjúkrahúsinu er blönduð deild og öldrunardeild, alls 42
rúm.
Hringið og kannið málin í símum 95- 24206 og heimasíma
95-24528.
Hjúkrunarforstjórí.
Byggdastofnun, ísafirði
Til sölu
Til sölu erfasteignin Nauteyri II, íbúðarhús, Nauteyrar-
hreppi, Norður-ísafjarðarsýslu.
Húsið er byggt 1986, steyptir útveggir en milliveggir úr
timbri. Stærð er 144 m2 að grunnfleti á einni hæð, sem
skiptist þannig: 4 svefnherbergi, stofa, eldhús, þvottahús,
geymsla og forstofa.
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Óskarsson í síma
94-4633.
Hjúkrunarfræðingar
Sumarafleysing
Sjúkrahús Suðurlands óskar eftir að ráða hjúkrunarfræð-
inga á sjúkradeild og Ljósheima, langlegudeild, í sumar-
afleysingar.
Sjúkradeildin er blönduð 30 rúma deild, sem skiptist í A-
og B-gang. Hluti af A-gangi verður lokaður í sumar.
Ljósheimar er öldrunardeild með 26 rúmum.
Vinnuaðstaða er góð, umhverfi hlýlegt og góður starfs-
andi.
Upplýsingar um launakjör og annað gefur hjúkrunarfor-
stjóri, Aðalheiður Guðmundsdóttir, í síma 98-21300 eða
heima 92-21209.