Tíminn - 03.04.1993, Blaðsíða 15
Laugardagur 3. apríl 1993
Tíminn 15
íslendingar þurfa að stefna að því að fjölga nemendum sem leggja stund á starfsmenntun um 25-100%. Þróunin
stefnir í öfuga átt:
Horfur á miklum samdrætti
í hefðbundinni iðnmenntun
„Veröi ekkert aö gert mun starfsmenntun dragast saman um helm-
ing en til að mæta eölilegum þjóöfélagslegum kröfum þarf að auka
hana einhvers staðar á bilinu 25 til 100%. Það er semsé fjórfaldur
munur milli hæsta og lægsta kosts.“ Þetta sagði Cestur Guðmunds-
son félagsfræðingur á málþingi um iðnmenntun sem haldið var í
síðasta mánuði.
starfsmenntun hér á landi. Hann
sagði koma til greina að stokka
upp núverandi kerfi og beita sér
fyrir þrepanámi, þ.e. að nemendur
fengju takmörkuð starfsréttindi
eftir td. eins eða tveggja ára nám.
„Nú virðist þróunin innan lög-
giltra iðngreina víðast hvar steftia
í þá átt að skyldar iðngreinar renni
saman, skilgreindur verði sameig-
inlegur kjami þeirra, menn velji
sérhæfingu til sveinsprófs en geti
bætt við sérhæfingu á öðrum svið-
um með endurmenntun. Þetta
virðist skynsamlegast en engan
veginn vandalaust,“ sagði Gestur.
-EÓ
í dag ljúka 35-40% íslenskra
ungmenna stúdentsprófi. 15-20%
ljúka starfsnámi á framhaldsskóla-
stigi, 30-35% hefja nám f fram-
haldsskóla en ljúka því ekki og 10-
15% stunda ekkert nám í fram-
haldsskóla.
í löndum einsog Danmörku, Svf-
þjóð og Þýskalandi ljúka mun
fleiri nemendur stúdentsprófi eða
starfsnámi en hér á landi. í þeim
löndum sem við berum okkur oft-
ast nær saman við ljúka færri
stúdentsprófi en hér en aftur á
móti mun fleiri starfsnámi.
Gestur Guðmundsson segir að
það sé mikilvægt fyrir fslenskt
efnahags- og atvinnulíf að við
reynum að auka og bæta starfs-
menntun. Hann segir hins vegar
að þróunin hjá okkur sé ekki f þá
átt Við stöndum frammi fyrir
miklum samdrætti á þessu sviði.
„Það er nefnilega svo að hrun vof-
ir yfir verulegum hluta þess starfs-
menntakerfis sem við eigum nú ef
ekkert verður að gert Eg vil að-
eins minna á að langstærstu iðn-
greinaflokkamir eru málmiðnir
og byggingagreinar að meðtalinni
húsasmíði.
FVrir fáum árum menntuðu þess-
ir iðngreinaflokkar um 10% af
hverjum árgangi þ.e.æs. innan
þeirra var meira en helmingur
starfsmenntakerfisins. í dag berj-
ast stórir hlutar beggja þessara
iðngreinaflokka í bökkum; eðlileg
viðbrögð í báðum greinum eru að
skrúfa nánast alfarið fyrir nema-
töku.
Tölumar sem ég neftidi miðast
við veruleikann fyrir 2-3 árum;
líkur benda til að 15-20% þeirra
sem fæddir eru fyrir 1970 muni
ljúka einhverri starfsmenntun á
framhaldsskólastigi. En ef svo fer
fram sem horfir munu innan við
10% þeirra sem fæddir eru eftir
1970 ljúka slíku námi,“ sagði
Gestur.
í erindi sínu ræddi Gestur um
þær auknu kröfur sem gerðar em
til menntunar starfsfólks nú á
seinni ámm. Hann sagði að örari
tækniþróun og breytingar á
vinnumarkaði kalli á hreyfanlegra
vinnuafl. Það sé sífellt minna um
að fólk geti menntað sig í einni
starfsgrein og stundað hana með
sama hætti allan starfsaldurinn.
Sífellt meiri kröfur séu gerðar um
verkkunnáttu og þeim störfum
fækki þar sem hægt sé að taka
óþjálfað og ómenntað fólk inn af
götunni. Gestur sagði að til að
bregðast við kröfum um sérhæfð-
ari störf þyrftu launþegar að afla
sér almennrar menntunar. Hann
sagði að þetta kynni að hljóma
sem þversögn. Það væri engu að
síður svo að almenn menntun
væri forsenda þess að menn gætu
mætt auknum kröfum um að
skipta um störf og starfsvettvang.
Gestur gagnrýndi hvernig unnið
var að endurskipulagningu iðn-
menntunar á íslandi á 7. og 8. ára-
tugnum. Hann sagði að menn
hefðu þar tekið of mikið mið af
starfsmenntun annarra þjóða en
ekki tekið nægilega mikið tillit til
sérkenna fslensks samfélags.
Gestur sagði að hægt væri að fara
nokkrar leiðir í að endurbæta
LIND
Fjármögnun
Lágmúla 6,108 Reykjavík
Sími: 91-67 99 66
Ef svo er, er Tækjalind eitthvað fyrir þig. Tækjalind er ný þjónusta á vegum
Lindar hf. sem felst í rekstrarleigu á vinnuvélum og öðrum tækjum. Þessi
þjónusta er nýjung á íslandi og er mjög hagkvæm fyrir einstaklinga og
fyrirtæki, lítil sem stór.
Rekstrarleiga þýðir að þú þarft ekki lengur að kaupa dýrar vélar og tæki,
heldur getur þú einfaldlega tekið þau á leigu í þann tíma sem þú þarft,
alltfrá einum degi upp í nokkra mánuði.
Innifalið í leigugjaldinu eru allartryggingar, þjónustu- og viðhaldsgjöld.
Öll tæki eru yfirfarin reglulega og síðan seld eftir vissan tíma þannig að það
eru ávallt nýleg tæki í notkun.
Starfsfólk Lindar hf. veitir þér allar upplýsingar um Tækjalind í
síma 679966. Nánari upplýsingarfást einnig hjá Kraftvélum hf. í síma 634500.
Tækjalind býður þjónustu sem borgar sig