Tíminn - 03.04.1993, Page 12

Tíminn - 03.04.1993, Page 12
12 Tíminn Laugardagur 3. apríl 1993 ÞAU FRAMLEIÐA ÍSLENSKT . . . ÞAU FRAMLEIÐA ÍSLENSKT . . . „Þessl málning er að verða tilbúin," sagði Sverrir Guðmundsson, starfsmaður Málningar, þegar hann hrærðl í fagurrauðrí málning- unnl, sem veríð að var að hræra upp í. Ágúst Helgi Þórðarsson Lv. fylgist áhugasamur með. Málning hf: að eru merk tímamót f sögu Málningar hf. því fyrirtækið held- ur í ár upp á 40 ára afmæli. Máln- ing hf. hefur lagt metnað sinn í að framleiða allt það sem þarf til málningar. Amar Bjarnason framleiðslu- stjóri sagði í samtali við Tímann að undanfarið hefði Málning lagt áherslu á það í markaðssókn sinni að um íslenskar og visthæfar vör ur væri að ræða frá fyrirtækinu og við því væru góðar viðtökur. Þeir fyndu fyrir breyttu almennings- áliti gagnvart þessu tvennu og það væri að skila sér. Eins og áður sagði framleiðir Málning hf. allt til málningar, gólf- lökk, inni- og útimálningu svo eitthvað sé nefnt, en um 45 fast- ráðnir starfsmenn starfa hjá fyrir- tækinu. BÆNDUR! Leysið mykjuvandamálin í eitt skipti fyrir öll með mykjutækjum frá Vélboða h.f. Nánarí upplýsingar hjá sölumönnum okkar í síma 91-651800. VÉLBOÐI hf Hvaleyrarbraut 2 220 Hafnarfjöröur Sími 91-651800 Það var nóg að gera hjá starfsmönnum Atson-Leðuríðjunnar hf. þegar Tíminn heimsótti fyrírtækið. Hér eru þær Edda Hrönn Atla- dóttir, Þóra Sverrísdóttir og Klara Steinsdóttir við seðlaveskja- framleiðsiu. Atson-Leðuriðjan hf. Seðlaveski og Dagskinna A annarri hæð við Hverfisgötu 52 starfa 13 manns hjá fram- leiðslufyrirtækinu Leðuriðjunni hf. Auk þess hefur Leðuriðjan ný- lega breytt og bætt verslun sína á jarðhæð. Leðuriðjan hf. er gamal- gróið fyrirtæki, stofnað 1936, og hefur staðið af sér með prýði þá miklu samkeppni sem það starfar í. Aðaláherslan er lögð á hönnun og framleiöslu á Atson seðlaveskj- um og dagbókarkerfmu Dag- skinnu Berglind ÓWsdóttir, markaðs- stjóri Leðunðjunnar hf., sagði í samtali við Tímann að það hefði verið mikil uppsveifla á síðustu tveimur árum, í fyrra hefði verið 65% söluaukning og árið þar áður 35%. Það þekkja flestir ATSON seðlaveskin en á seinni ánim hefur einnig verið lögð áhersla á að framleiða dagbókarkerfið Dag- skinnu. Það er að öllu leyti íslensk hönnun. Þá sagði Berglind að Leð- uriðjan hf. hannaði og framleiddi ýmsar aðrar leðurvörur svosem fundarmöppu, nafnspjaldamöppu, sérhannaðar matseðlamöppur fyr- ir veitingastaði og fleira.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.