Tíminn - 22.05.1993, Síða 9
Laugardagur 22. maí 1993
Tfminn 9
Eftir að Robespierre og félagar
hans lentu undir fallöxinni, sem
þeir höfðu beitt svo mjög sem
stjómtæki, var útrýmingarher-
ferðinni gegn Vendéebúum hætt
og þeir sem eftir lifðu af þeim
fengu tvær milljónir franka í
skaðabætur. Napóleon mikli gaf
síðan öllum, sem talið var að tekið
hefðu þátt í uppreisninni og enn
voru á lífi, upp sakir. Kröfu þeirra
um að útrýmingarherferðin yrði
fordæmd var hinsvegar vísað á
bug.
Mótmæli frumföður
kommúnismans
Þá þegar fordæmdu þó ýmsir, sem
töldust málsmetandi, umræddar
aðfarir í Vendée, einnig sumir bylt-
ingar- og lýðveldissinna. Sá sem
fyrstur gerði það í riti var Babeuf,
sem í sögunni er gjaman kallaður
„eini sósíalisti (í orðsins nútíma-
Táknmynd um sigur byltingarstjórnarinnar á uppreisnarmönnum.
almennrar þátttöku héraðsmanna
í henni og sigursældar uppreisn-
armanna fyrst í stað. Sendi kon-
ventan til Vendée um 100.000
manna her, mestanpart reyndar
sveitir af vígstöðvunum við aust-
urlandamærin. Lutu uppreisnar-
menn þá smámsaman í lægra
haldi og í desember 1793 var
skipulegri vöm af þeirra hálfu lok-
ið.
En byltingarleiðtogamir í París
töldu að hér þyrfti ógrunsamlegar
að vinna. Ofan á ótta við ósigur og
gagnbyltingu bættist hjá þeim yf-
irgengileg hneykslun og reiði í
garð Vendéemanna. Að þeirra mati
var „óútskýranlegt" að heilt hérað
skyldi vísa „frelsinu“ á bug. Með
frelsi meintu þáverandi ráðamenn
Frakklands að allt vald skyldi til-
heyra þeim á þeim forsendum að
þeir einir vissu hvemig búa skyldi
almenningi gæfuríkt framtíðar-
þjóðfélag. í hugarfari þeirra var
kenning Rousseaus um „almenna
viljann" (la volonté générale) ofar-
lega á baugi. Rousseau taldi að al-
menningur vissi undir niðri hvað
honum væri fyrir bestu en gerði
sér það ekki alltaf Ijóst. Heimspek-
ingur þessi, eða kannski frekar
þeir sem tileinkuðu sér kenningar
hans, túlkuðu þetta sem réttlæt-
ingu á því að minnihluti sem
skildi almannaviljann tæki í krafti
þeirrar uppljómunar ákvarðanir
fyrir hönd alþýðunnar, einnig þótt
alþýðan gerði sér ekki ljóst að þær
væm í hennar þágu og beitti sér
gegn þeim.
Vítisfylkingar
Konventan ákvað að skapa Vendée
víti sem yrði til vamaðar öðmm.
6. febrúar 1794 samþykkti hún „að
Vendée skyldi gersamlega eytt og
íbúum þess útrýmt." Tekið var
fram í samþykktinni að konum og
bömum „glæpamannanna" skyldi
ekki hlíft fremur en öðmm. (Orð
og setningar innan tilvitnunar-
merkja em tekin úr Der Spiegel
sem virðist hafa tekið þetta upp úr
frönskum frumheimildum og
söguritum.)
Næstu mánuði rásuðu tólf stjóm-
arherfylkingar, sem kallaðar vom
„vítisfylkingar" (colonnes infema-
les), fram og aftur um Vendée,
eyddu hvert þorpið af öðm, létu
akra, engi og skóga uppganga fyrir
eldi og drápu hvert mannsbam
sem þær náðu. Fólk var skotið,
stungið, því drekkt, það kyrkt
o.s.frv. Það vom óteljandi „Orado-
ur“, segja franskir Vendéesagn-
fræðingar. (Oradour var franskt
þorp sem þýskt herlið brenndi
1944 og drap þar nálega hvert
mannsbam.)
Franskur rithöfundur, Michel
Ragon, skrifar svo af atburðum
þessum f bók með titlinum:
„Rauðu vasaklútamir frá Cholet
(borg í Vendée)“:
,A markaðstorginu sem einu
sinni var lágu allir þorpsbúar,
beinir og stífir, eins og fyrir taln-
ingu... 564 lík, þar af 147 bamslík.
Þau minnstu, litlu angamir, höfðu
verið hafin upp á byssustingjum.
Konumar lágu með pilsin upp um
sig... Bæjarstjórann mátti þekkja á
bláhvítrauðum herðafetlinum.
Þótt hann væri lýðveldissinni
höfðu blástakkamir skorið af hon-
um eym og nef... Flugnager sem
sótti í blóðið var allt um kring."
Byltingarstjómin gerði þar að
auki ráðstafanir til að eitra vín-
birgðir og vatn í héraðinu með ar-
seniki og var jafnvel það langt á
undan sínum tíma að hún reyndi
að framleiða eiturgas til notkunar
gegn Vendéebúum. Tilraunir með
gaseitmn vom því til undirbún-
ings gerðar á sauðkindum en
tæknin á þeim vettvangi var of
skammt komin til að þær bæm ár-
angur.
merkingu) byltingarinnar“ og
frumfaðir kommúnismans. í bók
sem hann skrifaði um Vendéeupp-
reisnina studdist hann við frásagn-
ir hershöfðingja sem stjómuðu
„vítisfylkingunum." Það rit var
lengi gleymt og endurútgefið fyrst
1980. Þar hefur Babeuf eftir einum
hershöfðingjanna, heimildar-
manna sinna: „Ég veit að í hérað-
inu kunna að vera einhverjir föð-
urlandsvinir (þ.e.a.s. menn sem
vom andstæðir uppreisninni eða
tóku ekki þátt í henni). En það
skiptir ekki máli; við verðum að
fórna þeim öllum.“
(Babeuf vildi afnema einkaeign-
arrétt og koma á kjarajöfnuði.
Hann var hálshöggvinn 1797.
Flestir aðrir leiðtogar frönsku
byltingarinnar, Robespierre þar á
meðal, vom frjálshyggjumenn í
efnahagsmálum.)
Með frönsku byltingunni var haf-
ið tímabil átrúnaðar á skynsemi og
vísindi er gekk svo langt að í raun
varð þetta tvennt í augum ófárra
ekki sfður óskeikult en guð/guðir í
augum trúaðs fólks. í spor hug-
myndafræðinga, sem töldu sig
hafa — eða vom af öðmm taldir
hafa — uppgötvað vísindalega
sannaða lausn á vandamálum
mannkyns, gengu leiðtogar sem
álitu ekki síður en Robespierre að
tilgangurinn — hamingjusamleg
framtíð fyrir mannkynið eða ein-
hvem hluta þess — helgaði hvaða
meðal sem væri.
Uk* J« W é d •' 9WO M Ofc
1
gjalddagi húsnæðislána
- iA VI aj ► i
DRÁTTARVEXTIR leggjast á lán með lánskj aravísitölu
I 6, íVIa; u
DRÁTTARVEXTIR
leggjast á lán með byggingarvísitölu
■ LJ! líaí: i
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. borgarverkfræöingsins
i Reykjavík, óskar eftir tilboðum í ýmis verk i vesturborg Reykja-
vikur.
Verkið nefnist: Vesturborg—ýmis verkefni.
Helstu magntölur em: Gröftur um 4.400 m:
Fylling um 3.400 m:
Púkk um 1.200 m:
Mulinn ofaniburður um 3.600 m:
Gangstéttar um 1.100 m:
Ræktun um 400 nrv
Lokaskiladagur verksins er 1. október 1993
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3
Reykjavík frá og með þríðjudeginum 25. maí 1993 gegn 10.000
króna skilatryggingu.
Tilboöin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 3. júni 1993 kl.
14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
ÚTBOÐ
Tölvur fýrir Ríkisspítala
Tilboð óskast i vinnustöðvar og prentara til uppsetningar á Rlk-
isspitölum.
Útboðsgögn em seld á skrifstofu vorri að Borgartúni 7, Reykja-
vik á 6.225 krónur með VSK.
Tilboð verða opnuð á sama stað kl 11.00 f.h. 4. júnf 1993 I við-
urvist viöstaddra bjóöenda.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800