Tíminn - 22.05.1993, Qupperneq 22

Tíminn - 22.05.1993, Qupperneq 22
22 Tíminn Laugardagur 22. maí 1993 ■■ DAGBÓK Félag eldri borgara Sunnudagur Bridskeppni, tvímenning- ur kl. 13. Félagsvist kl. 14 í Risinu. Dans- að f Goðheimum kl. 20. Reykjanes-Garðskagi-Grindavík26. maf. Farið frá Risinu, Hverfisgötu 105, kl. 10. Leiðsögumaður Jón Tómasson. Skrá- setning í s. 28812. Lögfræðingurinn er til viðtals alla þriðjudaga. Panta þarf tíma. Fríkhrfcjan í Reykjavík Sunnudagun Guðsþjónusta kl. 14. Minnst verður þeirra, sem látist hafa úr alnæmi. Andrea Gylfadóttir og Egil! Ól- afsson syngja. Að guðsþjónustunni lok- inni verður samverustund í Safnaðar- heimilinu, kaffi og meðlæti. Miðviku- daginn 26. maí er morgunandakt kl. 7.30. Organisti Pavel Smid. Prestur Cec- il Haraldsson. Opið hús í FB í dag í dag, laugardaginn 22. maf, er opið hús í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. öll svið skólans verða kynnt og kennarar munu skýra frá námsframboði og sýna aðstöðu til náms. Kynningin stendur frá kl. 10.30 til 13.30 og eru allir velkomnir. Sama dag kl. 14 verður athöfn í hinu nýja íþróttahúsi skólans, þar sem út- skrifuðum nemendum verða afhent prófskírteini sín. 255 nemendur útskrif- ast að þessu sinni og er það metfjöldi. Sveítadagar í Kolaportinu Þessa helgi ema Bændasamtökin og Kolaportið til stórsýningar þar sem mik- ill fjöldi einstaklinga, hópa og fyrirtækja af landsbyggðinni mun kynna ýmsar nýj- ungar f atvinnustarfsemi á sviði mat- væla, handverks, iðnaðar og ferðaþjón- ustu. Sýningin verður á 1200 fermetra svæði í Kolaportinu, en í öðrum hluta hússins verður markaðstorg að venju. Sýningin verður opin á venjulegum Kolaportstfma, laugardag kl. 10-16 og sunnudag kl. 11-17. Lokaganga Skóla- göngu Utivistar f tfunda og síðasta áfanga Skólagöngu Útivistar sunnudaginn 23. maí verður gengið f gegnum sögu Grunnskólans f Grindavfk. Farið verður frá Umferðar- miðstöðinni kl. 10.30 og frá Fitjanesti í Njarðvík kl. 11.15. Gangan er í tvennu lagi: í „bamaskólagöngunni" verður gengið að gömlum skólastæðum og skólahúsum í Staðarhverfi, Jámgerðar- staðahverfi og Hrauni. í lok göngunnar tekur Gunnlaugur Dan Ólafsson skóla- stjóri og nemendur tfunda bekkjar á móti hópunum í Grunnskólanum. í „embættismannaskólagöngunni" verður gengin gamla Skógfellaleiðin, fom leið úr Vogunum til Grindavíkur. Frá Voga- stapa verður farið upp Vogaheiðina og með Skógfellunum um Sundhnúka- hraun og niður Hópsheiðina að Jám- gerðarstöðum. Síðan verður sameinast bamaskólagöngunni. Staðfróðir heima- menn og tíundubekkingar Grunnskól- ans verða fylgdarmenn. Þátttakendur fá afhent göngukort sem viðurkenningu fyrir þátttöku. Sýning í Ásmundarsafni: Aldarminning Ásmundar Sveinssonar Opnuð hefur verið í Ásmundarsafni við Sigtún sýningin „Náttúran í list Ás- mundar Sveinssonar", en á uppstigning- ardag vom 100 ár liðin frá fæðingu hans. Á sýningunni em um 50 verk, þau elstu frá 1913-1914 sem hann gerir um tví- tugt, þá alls ómenntaður í listinni, en hin yngstu frá því um 1975, þannig að sýningin spannar allan hans feril. Jafn- framt sýningunni hefur verið gefin út vönduð og ríkulega myndskreytt sýning- arskrá, með grein um náttúmna og list Ásmundar eftir Gunnar B. Kvaran. Ás- mundarsafn er opið alla daga frá kl. 10- 16. Björg Þorsteinsdóttir sýnir í Hafnarborg Björg Þorsteinsdóttir opnaði málverka- sýningu í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, 8. maí s.l. Á sýningunni em málverk og olíukrítar- myndir sem unnar em á sl. þremur ár- um. Sýningin er opin frá kl. 12-18 alla daga nema þriðjudaga og hvítasunnu- dag. Henni lýkur31. maí. Kvenfélag Óháöa safnaöarins Kvöldferðalag 24. maf. Farið frá Kirkju- bæ kl. 20. Þátttaka tilkynnist til Elsu í síma 676267. ítalska viö Háskóla íslands Endurmenntvmarstofhun og heimspeki- deild Háskóla íslands bjóða upp á byrj- endanámskeið f ftölsku, dagana 24. maí til 12. júní. Sendikennari frá Studio di Italiano í Róm, Lucia Pantaleo, kennir á námskeiðunum. Annað námskeiðið er síðdegis, en hitt er á kvöldin, alls 45 klukkustundir hvorL Upplýsingar um námskeiðin fást hjá Endurmenntunar- stofnun í símum 694923 -24 og 25. Opiö hús í Verzlunar- skóla íslands Opið hús verður f Verzlunarskóla íslands í dag, laugardaginn 22. maf, klukkan 14- 17. Nýútskrifuðum gmnnskólanemum og aðstandendum þeirra gefst þá kostur á að skoða húsakynni skólans og ræða við kennara og nemendur um skólalffið. Kennarar verða til viðtals við væntanlega umsækjendur og foreldra þeirra og nem- endur skólans kynna félagslíf sitt og nám. Bókasafn skólans, sérkennslustofur og íþróttahús verða til sýnis fyrir gesti sem og tækja- og tölvubúnaður skólans. Taka þátt í listahátíö í Siberíu — sýna í MÍR-salnum Tvær listakonur af íslandi af íslandi, Kjuregej Alexandra Argúnova og Katrín Þorvaldsdóttir, taka í næsta mánuði þátt í fjölþjóðlegrí sýningu myndlistarmanna frá norðlægum löndum f borginni Jak- útsk í Austur-Sfberíu. Myndir þeirra á sýningunni, sem nefnd er „Arktika", verða til sýnis í MÍR-salnum, Vatnsstíg 10, áður en þær fara austur eða dagana 23. maí til 6. júní. Verkin em af tvennum togæ Kjuregej sýnir myndsaum, „applík- eraðar" myndir, og Katrín sýnir brúður. Sýningin verður opnuð á morgun, sunnudag, kl. 15 og verður sfðan opin til sunnudagsins 6. júní á virkum dögum kl. 17-18.30 og um helgar kl. 14-18. Þrjár nýjar sýnmgar á Kjarvalsstööum í dag, laugardag, kl. 16 opnar í miðrými Kjarvalsstaða sýning á keramikverkum eftir Rögnu Ingimundardóttur. Ragna er fædd í Reykjavík 1959 og eftir nám í Myndlista- og handfðaskóla (slands 1977-1982 hélt hún til Hollands þar sem hún stundaði framhaldsnám við Gerrit Rietveld Akademíuna í Hollandi. Sýning- in stendur til 13. júnf. Á sama tfma verður opnuð sýning á ljós- myndum eftir bandaríska ljósmyndarann Mary Ellen Mark. Sýning þessi, sem spannar fyrstu 25 árin af ferli hennar, hefur að geyma 125 myndir, allt frá blindum bömum í Úkraínu til fjölleika- húslistamanna á Indlandi. Sýning þessi er farandsýning og var hún skipulögð af Alþjóðlega ljósmyndasaftiinu við George Eastman House og styrkt af Atvinnuljós- myndaradeild Eastman Kodak samsteyp- unnar. Hún stendur til 11. júlí. Loks verður opnuð sýning á ljóðum eft- ir Sindra Freysson (f. 1970). í fréttatil- kynningu segir m.a.: „Ljóðstíll Sindra byggist á fjölskrúðugum og stundum sérstæðum myndhverfingum sem oft eru torskildar við fyrstu sýn. ,J4innið forsýnir felumyndir / á kúptu tjaldi" seg- ir í einu ljóðanna eftir hann og lýsa þess- ar hendingar að nokkru kveðskaparað- ferð hans. Málfar og orðvísi er í góðu horfi hjá þessu unga skáldi." Árieg kirkjureiö Fáksmanna til Langholtskirkju Á morgun, sunnudaginn 23. maí, munu félagar úr hestamannafélaginu Fáki í Reykjavík fjölmenna til kirkjureiðar að Langholtskirkju eins og þeir hafa gert mörg undanfarin ár. Safnast verður sam- an á félagssvæði Fáks í Víðidal og riðið niður Elliðaárdal sem leið liggur að kirkjunni, en guðsþjónusta hefst þar kl. 11. Að guðsþjónustunni lokinni verður framreidd kjötsúpa í safnaðarheimilinu að gömlum og góðum íslenskum sið. Það er von Langholtssafnaðar að sem flestir hestamenn beisli fáka sfna á sunnudaginn og taki þátt í kirkjureið- inni að Langholtskirkju. 6762. Lárétt 1) Dreifir. 6) Púki. 7) Svardaga. 9) Smíðaverkfæri. 11) Skáld. 12) Ónefndur. 13) Liður. 15) Elska. 16) Drekk. 18) Þvottur. Lóðrétt 1) Hoppar. 2) Land. 3) Titill. 4) Þak. 5) Úrkoma. 8) Fljót. 10) Námstíma- bil. 14) Hríðar. 15) Dýr. 17) Kvik- mynd. Ráðning á gátu no. 6761 Lárétt 1) Fjandar. 6) Lúr. 7) Eta. 9) Ósi. 11) Ló. 12) Óp. 13) Sló. 15) Átt 16) Lóm. 18) Rummung. Lóðrétt 1) Frelsar. 2) Ala. 3) Nú. 4) Dró. 5) Reiptog. 8) Tól. 10) SóL 14) Ólm. 15) Ámu. 17) Öm. Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka I Reykjavík frá 21. til 27. mai er I Lyfjabúðinni löunn og Garös apóteki. Það apótek aem fyrr er nefnt annast eitt vöreluna frá kl. 22.00 að kvöldl tll kl. 9.00 að morgnl virka daga en kl. 22.00 á sunnudögum. Upplýsingar um læknis- og lyfja- þjónustu eru gefnar I sima 18888. Neyóarvakt Tannlæknafélags Islands er starfiækt um helgar og á stórtiátíóum. Slmsvari 681041. Hafnartjöróur Hafnarfpróar apótek og Norðurfjæjaf apó- tek eru opin á viikum dögum frá Id. 9.00-18.30 og á skipds annan hvem laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag Id. 10.00-1200. Upplýsingar I simsvara nr. 51600. Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjömu apótek enr opin váka daga á opnunartima búóa. Apótekin skiptast á slna vikuna hvort aó smna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. A kvöldin er opið I þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, IIM. 19.00. A helgidögum er opið frá M. 11.00-1200 og 20.00- 21.00. A öðrum Umum er lyfjafræðingur á bakvakt Uppiýs- ingar etu gefnar I sima 22445. Apótek Keflavikun Opið virka daga frá M. 9.00-19.00. Laugard., helgidaga og aimenna fridaga M. 10.00-1200. Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá M. 8.00- 18.00. Lokað I hádeginu mlli M. 1230-14.00. Setfoss: Seifoss apótek er opið 8 kt 18.30. Opið er á laug- ardögum og sunnudögum M. 10.00-1200. Akranes: Apótek bæjarins er opið vkka daga ti M. 18.30. A laugard. M. 10.00-13.00 ogsurmud. M. 13.00-14.00. Garðabær Apótekið er opið rúmheiga daga H. 9.00-18.30, en laugardaga M. 11.00-14.00. V* ' .irt > *, 21. mai 1993 kl. 9.15 Kaup Sala Bandaríkjadollar ...63,510 63,650 Sterílngspund ...98,647 98,864 Kanadadollar ...50,215 50,326 .10,2211 10,2437 9,2994 Norsk króna ...92790 Sænsk króna ...8,6603 8,6793 Finnskt mark .11,6051 11,6307 Franskur frankl .11,6313 11,6570 Belgiskur frankl ...1,9075 1,9117 Svissneskur frankl... .43,2585 43,3539 Hollenskt gylllni .34,9398 35,0168 Þýskt mark ,.39,1977 39,2841 Itölsk líra .0,04312 0,04322 Austum’skur sch ...5,5698 5,5821 Portúg. escudo ...0,4125 0,4134 Spánskur peseti ...0,5141 0,5152 Japanskt yen ..0,57566 0,57693 ,...95,741 95,952 89,9031 SérsL dráttarr ..89,7053 ECU-Evrópumynt .76,7741 76,9433 ngar HELSTU BÓTAFLOKKAR: 1. mai 1993. Mánaðargreiðslur Elli/örorkulifeyrir(grunnllfeyrir).......... 12.329 1/2 hjónalifeyrir............................11.096 Full tekjutrygging ellilifeyrisþega..........22.684 Full tekjutrygging örorkulifeyrisþega........23.320 Heimilisuppbót............................. 7.711 Sérstök heimilisuppbót........................5.304 Bamalifeyrir v/1 bams....................... 10.300 Meðlag v/1 bams............................ 10.300 Mæðralaun/feðrálaun v/1bams...................1.000 Mæðralaun/feðralaun v/2ja bama................5.000 Mæðralaun/feðralaun v/3ja bama eða fleiri...10.800 Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaða .............15.448 Ekkjubætur/ekkilsbætur12mánaða...............11.583 Fullur ekkjulifeyrir.........................12.329 Dánarbælur 18 ár (v/slysa)...................15.448 Fæðingarstyrkur..............................25.090 Vasapeningar visbnanna .................... 10.170 Vasapeningar v/sjúkratrygginga.............. 10.170 Daggreiðslur Fullir fæðingardagpeningar....................1.052 Sjúkradagpeningar einstaMings............... 52620 Sjúkradagpeningar fyrir hvert bam á framfæri ...142.80 Slysadagpeningar einstaMings.............. 865.70 Siysadagpeningar fyrir hverl bam á framfæri ....142.80 V E L L G E I R I K U B B U R

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.