Tíminn - 12.06.1993, Síða 6
6 Tíminn
Laugardagur 12. júnf 1993
Tímamynd Pjetur
Sex ára pólitískum ferli Jóns Sigurðssonar, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, lýkur á mánudag:
Ekki endalaust
hægt að hj akka
í sama farinu
að sætir ávallt tíðindum í ís-
lenskum stjómmálum þeg-
ar ráðherra tekur þá ákvörðun
að segja af sér ráðherradómi, svo
ekki sé talað um þegar sami
maður ætlar einnig að láta af
þingmennsku, eins og Jón Sig-
urðsson, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, hefur ákveðið. Hvaða
veldur því að maður í stöðu Jóns
ákveður að hverfa frá valdamiklu
embætti og sækja um starf sem
er mun valdaminna? Pólitískir
andstæðingar halda því fram að
Jón sé á flótta úr eigin kjör-
dæmi, sem býr við mikið at-
vinnuleysi og enga nýja stóriðju,
og því sé hann í raun pólitískt
gjaldþrota. Hvaða áhrif hefur
brotthvarf hans á ríkisstjórnar-
samstarfið og hvatti formaður
Alþýðuflokksins hann eða latti í
þessari ákvarðanatöku? Eða ber
ákvörðun þessi vott um að Jón
Sig. sé saddur pólitískra lífdaga
og vilji hverfa á ný til rólegri
starfa sem ekki em eins mikið í
kastljósi fjölmiðlanna? Þetta og
margt fleira í viðtali við Jón Sig-
urðsson, sem lætur af ráðherra-
dómi n.k. mánudag eftir sex ára
setu í ríkisstjóm og þing-
mennsku í jafnlangan tíma, án
þess þó að hafa nokkum tíma
verið óbreyttur þingmaður.
Ekki eilífur
augnakarl
En af hveiju tók Jón þá ákvörð-
un að segja af sér embætti sem
ráðherra og hætta jafnframt
sem þingmaður?
„Menn eiga ekki að vera eilífir
augnakarlar. Það er nauðsynlegt
að endumýjun eigi sér stað á
hvaða sviði sem er og menn
hverfi til annarra starfa þegar
réttur tími er til þess. Mér finnst
að það sé réttur tími fyrir mig að
hverfa að öðm og er mjög
ánægður með og þakklátur fyrir
að hafa fengið tækifæri til að
starfa á Alþingi og í ríkisstjórn í
þessi sex ár og hygg gott til þess
að njóta þeirrar reynslu í öðmm
störfum."
Ertu þá saddur pólitískra líf-
daga?
„Ég segi ekkert annað um það
mál en að ég hef ákveðið að
hverfa til annarra starfa og hef
sótt um starf, eins og fram hefur
komið. En auðvitað veit ég ekki
hvort ég fæ það starf. Ég tel mig
Iíka hafa til þess góðan undir-
búning og forsendur, m.a. af að
hafa verið ráðherra banka- og
viðskiptamála í sex ár.“
En ber þessi ákvörðun ekki
vott um það að þú sért pólitískt
gjaldþrota?
„Sannarlega ekki, sannarlega
ekki. Þvert á móti tel ég mig hafa
safnað gildum reynslusjóðum og
góðum árangri í mínu starfi,
þótt ég hafi að sjálfsögðu metn-
að af því að gera enn betur og
hefði viljað gera það, sem er eðli-
legt Ég tel líka að það viðhorf í
stjómmálum, sem ég hef starfað
eftir, hafi skilað góðum árangri á
þessum tíma. Að ýmsu leyti við
erfiðar aðstæður, en yfir þeim á
maður ekki að kvarta, heldur
vera þakklátur fyrir að fá tæki-
færi til að draga úr neikvæðum
áhrifum ytri aðstæðna."
Álitamál hvar þjóðmál
byija og enda
En með því að fara yfir í Seðla-
bankann, þ.e.a.s. ef þú hreppir
stöðuna, þá þýðir það að þú ert
hættur í öllu pólitísku starfi?
,Já, að sjálfsögðu. Þá er ég
hættur í flokkspólitísku starfi.
Síðan er það auðvitað álitamál
hvar þjóðmál enda og byrja. Ég
ætla ekki að segja annað um það
en að ég hef ákveðið að segja af
mér störfum bæði sem þing-
maður og ráðherra. Það mun ég
gera á mánudaginn og síðan
mun það koma fljótlega í ljós
hvort ég verð valinn til annarra
starfa eður ei.“
En skýtur það ekki skökku við
að fara úr valdamiklu embætti
og sækja um annað sem er mun
valdaminna?
„Ég bendi nú á að Seðlabankinn
hefur sjálfstæða stöðu í okkar
stjórnkerfi og reyndar liggja til-
lögur fyrir þinginu um það að
gera stöðu bankans enn sjálf-
stæðari og um það virðist vera
víðtækt pólitískt samkomulag.
Þannig að ég tel það mjög ákjós-
anlegan vettvang til að starfa á
og hirði ekki um það sem kallað
eru valdastöður. Maður verður
að meta það á hverjum tíma hvar
maður getur helst komið að
gagni.“
Neikvæðni og
persónuníð
En ná menn ekki betri árangri
í því að hrinda hugsjónum sín-
um í framkvæmd sem ráðherrar
heidur en sem bankastjórar?
„Jú, en þar með er ekki sagt að
menn nái sínum markmiðum
betur með því að hjakka enda-
laust í sama farinu. Það er í
sjálfu sér alveg furðuleg lífsskoð-
un að ætla að halda því fram,
þegar menn hætta á pólitíska
sviðinu eftir margra ára starf í
stjómmálum, að þeir séu endi-
lega að hverfa frá því með rofinn
skjöld og brotið sverð. Það er því
miður dæmi um nöturlegan
hugsunarhátt sem á sér enga
stoð í veruleikanum, sem betur
fer. Því flestir vilja vel og telja að
þeir séu að vinna að þjóðþrifa-
málum. Það tel ég mig hafa ver-
ið að gera og náð þar góðum ár-
angri. En mér líkar ekki þessi
neikvæða starfsaðferð og níð um
persónur, sem stunda pólitískt
starf, sem er alltof algengt í ís-
lenskum stjómmálum og setur á
þau blett. Það em ekki aðeins
stjómmálamennirnir sjálfir
heldur líka þeir, sem um þá
skrifa og fjalla, og báðum til
jafnmikillar minnkunar."
Áttu kannski þessir þættir sem
þú nefnir, níðskrif og neikvæðar
starfsaðferðir, sinn þátt í því að
þú tókst þá ákvörðun að hætta í
pólitíkinni?
,Ja, auðvitað er þetta einn þátt-
ur af mörgum sem mynda heild-
ina.“
Latti Jón Baldvin þig eða hvatti
í þinni ákvarðanatöku?
„Hann latti mig mjög og dró úr
því. Það er alveg ljóst. Ég á
marga góða vini í flokknum, sem
sjá eftir mér eins og ég sé eftir
þeim, og Jón Baldvin er einn af
þeim. Hinsvegar koma alltaf þeir
tímar í lífi manna og starfi að
það er rétt að skipta um.“
En þér varð ekki hnikað?
„Nei, ég taldi þetta vera rétta
ákvörðun. Síðan mun framtíðin
leiða það í ljós. Sjálfur er ég viss
um það.“
Var það eitthvað í hinu pólit-
íska landslagi sem gerði útsiag-
ið með það að þú ákvaðst að
segja af þér?
„Nei, það er ekki neinn ágrein-
ingur eða ósamkomulag sem
veldur því. Heldur eingöngu það
að ég tel að þetta sé tímabært,
bæði sjálfs mín vegna og ann-
arra. Með þessari ákvörðun vil ég
bæði stuðla að endumýjun inn-
an flokksins og ríkisstjómarinn-
ar, enda tel ég það heppilegt Auk
þess hef ég áhuga á að leita eftir
endumýjun í mínu eigin starfi.“
Alls ekki á flótta
Pólitískir andstæðingar þínir
halda því fram að með þessari
ákvörðun þinni sért þú á flótta
úr eigin kjördæmi, með tilliti til
atvinnuástandsins þar og þeirr-
ar áherslu sem þú lagðir á stór-
iðju sem lausnarorð í atvinnu-
málunum í síðustu kosninga-
baráttu.
„Þetta tel ég með ólíkindum
ómerkilegan málflutning. Ég tel
þvert á móti að einmitt af því að
Alþýðuflokkurinn hefur verið í
ríkisstjóm á þessum ámm, sem
hafa verið erfið fyrir land og þjóð
og þá ekki síst fyrir það atvinnu-
svæði sem svarar til Reykjanes-
kjördæmis, að einmitt vegna
þess hafi tekist að spoma gegn
enn erfiðari málum. Af þeim
sökum tel ég þetta vera mjög svo
ómaklega gagnrýni, enda þarf
ekki annað en að líta til land-
anna í kringum okkur. Ef það
væm til auðteknar lausnir til að
bægja atvinnuleysisvandanum
frá, þá væm ekki tveggja stafa
hlutfallstölur í atvinnuleysi í
þeim ríkjum sem standa hvað
hæst í hagþróun og hagstjóm.
Ég vísa þessu því til föðurhúsa
og tel að það sé mjög ómerkileg-
ur málflutningur og dæmir sig
sjálfan að ætla að slá sig til ridd-
ara á erfiðleikum almennings.
Það dæmir þá menn hart sem
þeim rökum beita.“
Nú ert þú og Kari Steinar að
láta af þingmennsku í kjördæm-
inu. Þú ert ekkert hræddur um
að það veiki stöðu flokksins í
Reykjaneskjördæmi?
„Eg hef traust á því að Alþýðu-
flokkurinn í Reykjanesi, sem er
höfuðvígi flokksins, hafi einmitt
þann lífsþrótt og endumýjunar-
kraft sem er einkenni öflugra
hreyfinga. Við vitum að í flokks-
félögunum í kjördæminu er
mikið og gott starf, sem er öf-
undarefni annarra stjómmála-
flokka."
Veíkir ekki stjóraina
Þú óttast ekkert að brotthvarf
þitt úr ríkisstjórainni komi til
með að veikja hana. Sérstaklega
í ljósi þess að þú ert og hefur
veríð einn aðalstuðningsmaður
þessa stjóraarsamstarfs innan