Tíminn - 12.06.1993, Page 9
Laugardagur 12. júní 1993
Tíminn 9
Hillaryá leið upp á Everest 1953: „eins og göngugata íLundúnum".
Iðnvæðingu kæra stjómvöld sig
ekki um.
Þau eru sögð auðsýna almenningi
talsverða umhyggju, t.d. kvað heil-
brigðisþjónusta vera með betra móti
þar, eftir því sem gerist í grannlönd-
um, og fólk fær hana ókeypis.
Reykingar bannaðar
Alþjóðlegar hjálpar- og þróunar-
stoftianir, daprar í bragði út af því að
flest, sem þær hafa verið að reyna að
gera gegnum árin, virðist koma að
litlu haldi eða snúast til hins verra,
hafa tekið ástfóstri við smáríki þetta
á mörkum tveggja fjölmennustu
ríkja heims. Sama er að segja um
mörg ríki sem stunda þróunarhjálp.
Enda fær Bhútan nú tvo þriðju
hluta útgjalda á fjárlögum sínum
borgaða af Sameinuðu þjóðunum,
Alþjóðlega gjaldeyrissjóðnum, Ind-
landi, Japan, Sviss o.fl.
Stjómvöld Bhútans em sögð mjög
meðvituð í umhverfismálum. „Við
byggjum hamingju okkar ekki á ryk-
sugum og þvottavélum, eins og gert
er á Vesturlöndum," segir Dawa
Tsering, sem hefur verið utanríkis-
ráðherra Bhútans í rúma tvo áratugi
og er einn helstu ráðamanna þar.
„Við vomm farnir að vemda náttúr-
una löngu áður en efnishyggju-
heimurinn lét sér detta það í hug, af
því að við trúum því að andar búi í
dýmm og jurtum."
Minna er Bhútönum hrósað fyrir
lýðræði. Stjórnarfarið þar, skilgrein-
ir Der Spiegel, er „búddískt um-
hverfisvemdareinræði". Sem dæmi
um það er nefnt að hver sá lands-
manna, sem geri sig sekan um að
klæðast öðm en þjóðbúningnum, er
Spiegel segir minna á náttslopp,
verði að borga 150 ngultmm (gjald-
miðill landsins) í sekL Það samsvar-
ar vikulaunum fyrir flesta. Brjóti
menn reglu þessa þrívegis, eiga þeir
fangelsisvist yfir höfði sér. Reyking-
í Lhasa: spjótsoddi beint að Peking.
ar em bannaðar með öllu, sem og
sjónvarp, en hinsvegar ekki mynd-
bönd, ekki heldur þótt á þeim sé
klám og ofbeldi.
Ríkið á allan skóg og má þar ekkert
tré fella nema með leyfi þess. Til
þess að eignast akurlendi og að flytja
úr sveit í þéttbýli þarf og leyfi stjóm-
arinnar.
Óskaland umhverfis-
vemdarsinna
Bhútan hefur konungsstjóm, sem
að formi til a.m.k. er þingbundin.
Núverandi konungur, Dshigme
Singhi Wangtshuk, á fjórar drottn-
ingar sem allar em systur. Fjöl-
skylda þeirra er sú áhrifa- og eigna-
mesta í ríkinu, næst konungsfjöl-
skyldunni sjálfri. Að sið fyrri kon-
unga víða um heim einkennist
samband Dshigmes konungs við
þegnana jöfhum höndum af hátíð-
Iegri fjarlægð milli hans og þeirra
og nánum tengslum. Konungur
heimsækir þannig með vissu milli-
bili allar byggðir landsins, eins og
fornkonungar Svía er þeir riðu Ei-
ríksgötu, og tekur við bónarbréfum
frá þegnunum.
„Ef við opnum landið hið minnsta,"
segir Dawa Tsering utanríkisráð-
herra, „ryðst efnishyggjan inn um
dymar.“ í atvinnumálum er lögð
áhersla á að nýta skóginn, án þess að
á hann gangi, og umhverfisvæna
kvikfjárrækt. í handbókum stendur
að vísu gjaman að Bhútan sé eitt
vanþróaðasta ríki heims, en víst er
um að í grannlöndunum hefur land
þetta það orð á sér að þar sé betra að
eiga heima en annarsstaðar. Þar af
leiðandi sækir þangað fátækt fólk úr
grannlöndum, sérstaklega Nepal.
En því er umsvifalaust vikið úr
landi. Stjómvöld segja að aðkomu-
fólk verð; aldrei hollt Iandi og þjóð
og sé betra að búa við vinnuaflsskort
en að taka við því.
Á þessum síðustu og verstu tímum
í umhverfismálum nýtur Bhútan
sérlega mikils álits meðal umhverf-
isvemdarsinna. Peter Stahli, for-
stöðumaður svissnesku þróunar-
hjálparstofnunarinnar Helvetas í
Bhútan, fyrir skömmu þangað kom-
inn eftir margra ára misjafna
reynslu af þróunarstarfi í Afríku,
segir starfsaðstæður þróunarstarfs-
manna varla geta verið betri en þær
em í ríki þessu í Himalaja. Það sé að
þakka því hve seint Bhútan hafi
komist í samband við umheiminn.
Þar með hafi það möguleika á „þró-
un sem hægt sé að hafa hemil á“.
Þetta er í samræmi við viðhorf sem
nú em ríkjandi meðal umhverfis-
vemdarsinna. Dshigme konungur,
sem er rúmlega hálffertugur, er
sagður vel heima um umhverfis-
vemd.
„Fyrir þróunarlönd,“ bætir við ný-
nefndur Svisslendingur, nú mið-
aldra „68-ari“, „er ekkert stjómarfar
betra en gott einræði."
í þættinum í dag verður tekið mið af ósk sem barst um að birta fleiri lög
við hina bráðskemmtilegu texta Jónasar Ámasonar. Því verður fyrra lagið
af þessum toga, en það er „Lífið er lotterf' sem er eftir Jónas, en lagið er
írskt þjóðlag. Seinna lagið er eftir ókunnan höfund og heitir „Máninn
fullur". Enn á ný er ástæða til að ítreka rétta utanáskrift fyrir þá sem vilja
koma óskum eða athugasemdum á framfæri, en hún er: Með sínu nefi,
Tíminn, Lynghálsi 9,110 Reykjavík. Góða söngskemmtun!
LÍFIÐ ER LOTTERÍ
C Am
Um frægðarmenn og kappa við fáum oft að heyra,
F C Am
en fáa veit ég líka honum Siglufjarðar-Geira.
C Am
Að erfiðleikum sínum hann alltaf gaman henti,
F C Am
og ef að hann í sérstöku klammarfi lenti,
G
sagði’ hann: Lífið er lotterí,
C
já, það er lotterí,
F
já, það er lotterí,
C G C
og ég tek þátt í þvíl
í æsku hans á böllum vom áflog fastur liður,
og allra manna fyrstur var hann jafnan sleginn niður.
En þegar hann svo stóð upp aftur eftir meðferð slíka
með augu bólgin, sprungna vör og nefið brotið líka,
sagði’ hann: Lífið er....
F
Hann ungur gerðist formaður á mótorbátnum Brandi,
og bein úr sjó hann aldrei dró, en lenti oft í strandi.
En Geira stóð á sama, hann öxlum sínum yppti,
og er hann bátnum strandaði í tuttugasta skipti,
sagði’ hann: Lífið er....
Hann eitt sinn fékk sér konu, af öðrum konum bar hún,
en ekki nema í meðallagi dyggðug kona var hún.
Hún elskaði hann talsvert, en aðra menn talsvert meira,
og er hún að lokum skildi við manninn sinn, hann
Geira,
sagði’ hann: Lífið er....
En dag einn sýndist karlinn eitthvað Iumbrulegur vera,
og læknamir þeir tóku hann og fóru strax að skera.
Og er þeir höfðu burt úr honum skorið fleira og fleira,
svo fækkað hafði stórlega innyflum í Geira,
sagði’ hann: Lífið er ....
Og kvöld eitt fékk hann aðkenningu af alvarlegu slagi,
og innan stundar fékk hann slag af miklu verra tagi.
Og þegar nóttin Iagðist yfir haf og yfir hauður
og heiðurskarlinn Geiri virtist loksins vera dauður,
sagði’ hann: Lífið er....
Am
X 0 2 3 1 0
MÁNINN FULLUR
Am
Máninn fullur fer um geiminn
E Am
fagrar langar nætur.
Am
Er hann kannski að hæða heiminn
E Am
hrjáðan sér við fætur?
C G7
Fullur oft hann er, það er ekki fallegt ónei, það er ljótt
Am E Am
að flækjast hér og flakka þar á fyllerí um nætur.
G7
E
< ►
i < ►
0 2 3 1 0 0