Tíminn - 11.09.1993, Side 5

Tíminn - 11.09.1993, Side 5
Laugardagur 11. september 1993 Tíminn 5 Heyskapurinn í Brautarholti. Vmamynd Árni Bjarna Þegar haustlaufm falla Jón Kristjánsson skrifar Hinn hefðbundni gangur árstíðanna heldur áfram. Haustið gengur í garð og það er kominn september. Jörðin klæðist í haustskrúðann og mannlífið breytist, námsmenn ungir og gamlir setja bækumar í tösku og arka í skólann. Óró- leiki sumarsins er að baki og lífið fellur í fastari farveg. Viðmót landsins Ég hef verið á faraldsfæti undanfarið. Skyldi nokkurt land hafa svo margbrotið viðmót? Það eru undarleg viðbrigði eftir ískalda norðan- rigninguna og þokusúldina f sumar að ferðast á bökkum Lagarfljóts þar sem spegilmynd Snæfells stendur á hvolfi í lognkyrru vatninu og þögnin er slík að hundgá heyrist í órafjar- lægð. Eða ganga upp í Skaftafellsheiðina í heiðskíru veðri og Öræfajökul ber við grænan skóginn, Lómagnúpur og Súlutindar bláir í vestri, sandur í átt til hafs. Liggja úti í Ingólfs- höfða og horfa á bátana að veiðum í logninu og hita, og hrefnur og hnýsur bylta sér um allan sjó. Síðan kemur haust og vetur og stórsjóir bylt- ast að landinu og kólguskýin hrannast upp við hafsbrún. „Bleikir akrar og slegin tún“ Slegin tún höfðuðu til Gunnars á Hlíðarenda forðum og samkvæmt Njálu varð meðal annars sú aðdáun honum að bana. Ég er líkur Gunn- ari að þessu leyti, þótt við eigum ef til vill ekki annað sameiginlegt. Það vekur mér alltaf sér- staka tilfinningu að ferðast um landið og sjá túnin slegin og hirt. Við þá sjón vaknar í mér sveitamaðurinn. Þegar ég var strákur var hey- skapurinn hörð barátta og þar gilti að standa sig. Sigurgleðin var mikil þegar túnið var að velli lagt og hirt og hey komin í hlöðu. Mér finnst rúllubaggamir hræðilegir ásýnd- um í litadýrð haustsins, hvítir, svartir og græn- ir, en hins vegar geri ég mér ljóst að baggamir þeir ama þýða sigur bænda yfir rigningunni og bleytunni, sigur sem að vísu er kostnaðarsam- ur í vélbúnaði og umbúnaði, en hefur víða orð- ið til þess í sumar að hægt hefur verið að afla fóðurs. Án rúllubagganna hefði heyskapur á stórum svæðum landsins gengið hörmulega. Landbúnaðarumræðan Og þegar ferðast er um landið og dáðst að lita- dýrð septembermánaðar, hirtum túnum og fögnuður uppskemtímans seytlar um mann, berast fréttir af hörkuátökum um landbúnað- inn í landinu. Óvissan, sem steðjar að, er meiri en nokkru sinni. Hörkuátök standa um inn- flutningsvemdina sem landbúnaðurinn hefur notið til þessa og sú staðreynd blasir enn við að framleiðslan er meiri en eftirspumin hér inn- anlands. Útflutningur skilar ekki því verði sem bændur þurfa, án útflutningsbóta. Einnig er þráttað um beinan stuðning ríkisvaldsins við landbúnaðinn, hvemig hann skal vera og hvort hann sé meiri eða minni en annars staðar. Ákafinn í þessum þrætum verður slíkur og fullyrðingamar svo miklar að venjulegur neyt- andi og skattgreiðandi, sem verið er að tala til, mglast því meira eftir þvf sem orðaflóðið vex. Meginatriðin Umræður um landbúnaðarmál hafa snúist um nokkur meginatriði. Þau em þessi: - í fyrsta lagi hvort rétt sé að brjóta upp bú- vömsamninginn sem var gerður við bændur og tók gildi þann 1. september síðastliðinn. - í öðm lagi hver stuðningur ríkis- sjóðs sé við iand- búnaðinn miðað við aðrar OECD-þjóðir. - í þriðja lagi hvort leyfilegt sé að flytja inn danska skinku soðna og hvort eigi að leggja á jöfnun- artolla. - í fjórða lagi hvort beingreiðslur til bænda eigi að skoðast sem auðfengin laun úr ríkis- sjóði. - f fimmta lagi að sláturleyfishafar hafi svikið fé út úr bönkunum vegna veðsvika. Viðskiptaráðherra hefúr gefið stóryrtar yfir- lýsingar um þessi mál og formaður Stéttar- sambands bænda krafist afsökunarbeiðni vegna aðdróttana sem beinlínis byggja á röng- um forsendum. Riftun búvörusamningsins — hvað þýðir hún? Búvömsamningurinn, sem nú er í gildi, hafði í för með sér þær meginbreytingar að útflutn- ingsuppbætur vom felidar niður frá 1. septem- ber á síðasta ári. Einnig var verðábyrgð ríkis- sjóðs felld niður og framleiðslan varð á ábyrgð framleiðenda, þá komu beinar greiðslur í stað niðurgreiðslna. Þetta em veigamestu atriðin sem breytt var. Riftun á búvömsamningnum hlýtur að þýða að eitthvað af þessum atriðum verður endurskoðað og ef það á að draga úr út- gjöldum ríkisins til landbúnaðar, hlýtur það að þýða lækkun eða afnám beingreiðslna, sem em hluti af afurðaverðinu í raun. Ef þetta gengi eftir og jafnframt gengi eftir sá ásetningur að knýja fram innflutning án jöfn- unargjalda, þá mundi svo sannarlega vera þröngt fyrir dymm í landbúnaðinum. Ekki verður þó betur séð en það sé þetta sem Al- þýðuflokkurinn og ráðherrar hans krefjast. Allt er þetta undir því yfirskini að það sé verið að hugsa um hag neytenda, en hin raunvemlega ástæða held ég að sé óttí Alþýðuflokksmanna við lélega stöðu sína eftír slæmt umtal sumars- ins um embættaveitingar og aðrar uppákomur. Gróðinn: sýnd veiði en ekki gefin Hagfræðingar hafa verið að reikna út fyrir kratana gróðann af því að flytja inn landbúnað- arvömr og segja hann mikinn. Hver 5 manna fjölskylda mundi græða 255 þúsund á ári, að sögn. Viðskiptaráð- herra hefur stað- hæft þetta. Það munar um minna, en að mínum dómi og margra annarra er það sýnd veiði en ekki gefin. Málið snýst um sex þúsund ársverk í landbúnaði og 2500 árs- verk í úrvinnslu landbúnaðarafurða. Þar að auki vinnur Qöldi manns við þjónustustörf tengd landbúnaði, en það er erfitt að áætla fjöldann. Þar sem fleiri en einn em í mörgum tilfellum um hvert ársverk, er varlega áætlað að málið snúist um atvinnu 10 þúsund manna í þjóðfélaginu. Atvinnuleysisvofan er mesti rík- isfjármálavandinn um þessar mundir og ríkis- sjóður er að kikna vegna útgjalda vegna at- vinnuleysis og hliðaráhrifa þess. Þó að helm- ingur landbúnaðarins héldi velli ásamt helm- ingi úrvinnslugreinanna, lætur nærri að atvinnuleysið mundi aukast um helming og útgjöld og tekjutap vegna þess verða 5-6 millj- arðar króna. Þau mundu lenda á almenningi í hækkuðum sköttum og hækkuðum vöxtum vegna stóraukins halla á ríkissjóði, sem gengur þó illa að ráða við nú þegar. Hvert á fólkið að leita? Þessu fólki er ekki hægt að vísa í aðrar at- vinnugreinar. Þar að auki er ég þeirrar skoðun- ar að landbúnaðurinn sé nokkurs virði fyrir menninguna og þjóðlxífið í landinu. Ég er þeirrar skoðunar að það gildi hans sé Iátíð liggja í láginni, í umræðum stjómmálamanna, og skilur þar með íslenskum stjómmálamönn- um og mörgum starfsbræðmm þeirra í Evr- ópu. Eg hef sjálfur hlustað á þá halda ræður í tengslum við efnahagsmál um þjóðfélagslegt gildi landbúnaðar. Abyrgðariaus klissjugerð Ég er mjög hissa á ábyrgðarleysinu, sem ein- kennir málflutninginn í landbúnaðarmálun- um, og þeim einföldu áróðursklissjum sem einkenna málflutning varðandi þau. Ég undr- ast það mjög að hagfræðideild Háskólans skuli ganga fram á svo óvísindalegan hátt varðandi landbúnaðarmálin og taka þátt í orðaskaki um þau, sem ég hélt að tilheyrði okkur stjómmála- mönnunum. Ég hélt að þeir lærdómsmenn, sem vinna við Háskólann, bæm svo mikla virð- ingu fyrir honum sem stofnun að þeir mundu ekki láta sér detta í hug að byggja skýrslur á gömlum og úreltum upplýsingum og verja þær fram í rauðan dauðann. Það vekur mér í raun mikla furðu að hag- fræðideild Háskólans skuli líma sig upp að hlið Sighvats Björgvinssonar í galgopalegum um- ræðum hans um landbúnaðarmálin. Raunveruleikinn Breytingar í landbúnaði hafa orðið gífurlegar á undanfömum ámm og útgjöld til hans á fjár- lögum ársins 1993 lækkuðu um 2,6 milljarða frá árinu áður. Sauðfé í landinu hefúr feekkað um helming og mjólkurframleiðslan verið lög- uð að innanlandsmarkaði. Það verkefni liggur fyrir í landbúnaðinum að laga sig að enn breyttum aðstæðum með nýjum búvömsamn- ingi og leita allra leiða tíl þess að lækka til- kostnað við framleiðsluna á öllum stígum, þar með talið í vinnslu og sölu. Til þessa þarf vinnufrið, en hann fæst ekki með því að taka heljarstökk út í innflutning landbúnaðaraf- urða. Það heljarstökk gæti þýtt hmn í atvinnu- greininni, sem yrði til stórtjóns fyrir lands- menn alla.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.