Tíminn - 11.09.1993, Page 9
Laugardagur 11. september 1993
Tíminn 9
mundir, saka hann raunar um að
sýna bókstafshópunum alltof mikla
Iinkind. „Vandamálið er ekki of mik-
il kúgun,“ hefúr breska Sunday Tim-
es eftir einum af ráðgjöfum Egypta-
forseta, „heldur það að hryðjuverka-
mennimir eru ekki beittir nógu
mikilli hörku. Almenningur bæri
meiri virðingu fyrir forsetanum ef
hann léti hengja fleiri."
Svipaðrar skoðunar um Egypta var
Napóleon Bonaparte, sem fyrstur
valdhafa reynt að kenna þeim ver-
aldarsinnaða menningu vestræna.
Þeir tóku því miður vel. Þjóðstjór-
um byltingarinnar f París skrifaði
Napóleon, sem var í Egyptalandi
1798-99: „Þessir tyrkir láta sér ekki
segjast nema þeir séu beittir ýtrustu
hörku. Aldrei líður svo dagur að ég
verði ekki að láta höggva af þetta
fimm eða sex höfuð hingað og þang-
að um götumar." (Með „tyrkjum"
mun Napóleon hafa átt við múslíma
yfirleitt, samkvæmt evrópskri mál-
venju í þá tíð.)
„Allir veraldarsinnar
hættulegir
í júní og júlí hengdu egypsk yfirvöld
15 bókstafssinna, dæmda fyrir
hryðjuverk. En ekki er að sjá að það
fæli aðra frá þeim hópum. Sam-
kvæmt íslömskum átrúnaði fara
þeir, sem deyja í baráttu fyrir trúna,
beina Ieið til paradísar og þurfa ekki
að bíða dómsdags.
Svo er að heyra að bókstafstrúar-
samtökin hafi mest fylgi meðal
þeirra fátækustu, einkum í slöm-
munum í Kaíró og í suðurhluta
landsins. Þau ná fylgi fatæklinganna
ekki einungis með því að lofa þeim
betri tíð í íslömsku guðræðisríki,
heldur og með því að útbýta meðal
þeirra mat og veita þeim ýmsa aðra
hjálp til að komast af. Öðru hvoru
a.m.k. hafa bókstafssinnar haldið
uppi eigin stjóm- og félagsmálakerfi
við hliðina á ríkiskerfinu í eymdar-
hverfunum í Kaíró og sveitum suð-
urlandsins.
Yfirstéttin, sem fátæka fólkið og
margt millistéttarfólk einnig lítur
illu auga, er tiltölulega veraldar-
sinnuð og temur sér vestræna siði.
Út frá því halda bókstafssinnar því
fram að spillingin, fátæktin og gíf-
urleg misskipting auðs sé að kenna
áhrifum frá Vesturlöndum og því að
yfirstéttin hafi í raun gengið af ísl-
amstrú. Þeir trúa því e.t.v. sjálfir, og
af yfirlýsingum þeirra og athæfi má
a.m.k. ráða að afstaða þeirra til Vest-
urlanda og alls þess, sem þeir telja
til áhrifa þaðan, sé gagntekin af
hatri. Þetta kemur ekki síst fram í
sannkallaðri útrýmingarherferð
bókstafssinna gegn rithöfundum og
o.fl. menntamönnum, sem að áliti
bókstafssinna eru of „vestrænir“ og
„veraldlegir" í viðhorfum, og ekki
einungis í Egyptalandi, heldur og í
Alsír, Tyrklandi og víðar. Það er
löngu liðin tfð að Rushdiemálið sé
nokkurt einsdæmi.
Sheikh Mohammed Ghozali, þekkt-
ur egypskur íslamskennimaður sem
oft kemur fram í sjónvarpi, var fyrir
skömmu spurður hvort hann teldi
að allir þeir, sem létu í ljós skoðanir
í anda veraldarhyggju, verðskuld-
uðu refsingu. ,AHir veraldarsinnar
eru sem slíkir hættulegir samfélagi
og þjóð og því skal þeim útrýmt,“
sagði kennimaðurinn. „Skylda
stjómarinnar er að drepa hvem slík-
an mann.“
Áberandi við egypskt bókstafsíslam
er fjandskapur þess við flest það sem
minnir á fortíð Iandsins fyrir tíð ís-
lams. „Faraó“ er í munni bókstafs-
sinna skammaryrði og þessvegna
titla þeir svo núverandi ráðamenn
landsins. Bókstafssinnar hafa einnig
amast við ýmsum fornminjum frá
faraóafomöld, á þeim forsendum að
þær séu úr heiðni, og sagt að stjóm-
völd láti sér svo annt um þetta að
stappi nærri skurðgoðadýrkun. Þeir
hafa ymprað á því að ýmsar frægar
fomminjar verði fjarlægðar, þó ekki
pýramídamir.
Koptar óttast
holocaust
Að öllu samanlögðu er hatur eg-
ypskra bókstafsmúslíma á kristnum
löndum sínum líklega óhugnanleg-
asta hliðin á hreyfingu þessari. Kop-
tíska kirkjan í Egyptalandi, sem tí-
undi hluti landsmanna aðhyllist, er
ein af elstu kirkjum kristninnar og
stendur djúpum rótum í menningu
landsins og sögu þess fyrir tíð ís-
lams. Hún er þar að auki öflugasta
kristna kirkjan í arabíska heimin-
um. Koptar em líklega að jafnaði
betur menntaðir en íslamskir landar
þeirra og ekki fer leynt að þeir styðja
núverandi valdhafa, sem á íslamsk-
an mælikvarða em í frjálslyndasta
lagi í trúarefnum. Margir koptar
hafa á undanfömum áratugum verið
háttsettir í stjórnmálum og nægir í
því sambandi að minnast á Boutros-
Ghali. Hann virðast bókstafssinnar
leggja sérstakt hatur á, meðfram
kannski vegna þess að auk annars er
hann kvæntur konu af gyðingaætt-
um. Sérstaklega í fyrrasumar var
um að ræða í Suður-Egyptalandi
beinar ofsóknir bókstafssinna gegn
koptum. Flestir sem hryðjuverka-
menn myrtu þar þá vom koptar og
margir þeirra vom að því er virtist
myrtir fyrir það eitt að þeir vom
koptar. Eftirtektarvert er í þessu
samhengi að bókstafstrúarstjómin í
Súdan, sem almennt er talið að
styðji egypska bókstafssinna, stend-
ur í útrýmingarhernaði gegn kristn-
um minnihlutaþjóðflokkum í Suð-
ur- Súdan.
Naim Tákla, koptískur rithöfundur,
segir trúbræður sína lifa í „ótta við
gereyðingu (Holocaust)." Bókstafs-
sinnar kreQast þess m.a. að dauða-
refsing verði lögð við því að ganga af
íslamstrú og að koptar verði settir
skör lægra múslímum, lögum sam-
kvæmt. Hvorttveggja er raunar í
samræmi við lögmál íslams.
Sheikh Omar — óhultur fyrir yfirvöldum lands slns I skjóli bandarískra laga.
Lögfræðiþjónusta
Innkaupastofnun ríkisins, f.h. Ábyrgðasjóðs launa, óskar
tilboða vegna innheimtu krafna samkvæmt 1. mgr. 5. gr.
laga um Ábyrgðasjóð launa vegna gjaldþrota nr. 53/1993.
Gögn eru afhent á skrifstofu vorri að Borgartúni 7,
Reykjavík. Tilboð berist á sama stað fyrir kl. 11.00 f.h.
þann 30. september 1993 þar sem þau verða opnuð í
viðurvist viðstaddra bjóðenda.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 . 105 REYKJAVÍK
Til sölu íbúðir í Hafn-
arfirði og á Akranesi
Kauptilboð óskast I:
Lækjargötu 34a, Hafnarfirði, íbúð (0302) á 3. og 4. hæð, stærð
íbúðar 117,4 m2, brunabótamat 10.398.000 krónur. Eignin verð-
ur til sýnis í samráöi við Stellu Eiriksdóttur, Lækjargötu 34a,
sími 650459.
Laufvang 4, Hafnarfirði, ibúð (0202) á annarri hæð, stærð íbúð-
ar 110,6 m2, brunabótamat 8.871.000 krónur. Eignin verðurtil
sýnis í samráði við Mariu E. Pálsdóttur, sími 51029.
Vallholt 13, Akranesi, íbúð í kjallara, stærð íbúðar 103 m2,
brunabótamat 4.873.000 krónur. Eignin verður til sýnis I sam-
ráði við Guðna Jónsson slmi 93-12385 eða 93-13120.
Tilboðseyðublöö liggja ffammi hjá ofangreindum aðilum og á
skrifetofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavík. Tilboð skulu berast á
sama stað fyrir kl. 11.00 f.h. þann 28. september 1993 þar sem
þau verða opnuð í viöurvist viðstaddra bjóðenda.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7.105 REYKJAVÍK
M ENNTAMÁLARÁÐ U N EYTIÐ
Ferðastyrkur til
rithöfundar
Ráðgert er að af fjárveitingu til norræns sam-
starfs í fjárlögum 1993 verði varið 90 þúsundum
króna til að styrkja rithöfund til dvalar á Norður-
löndum.
Umsókn um styrk þennan skal hafa borist
menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4,150
Reykjavík, fyrir 25. september nk.
Umsóknum skal fylgja greinargerð um hvernig
umsækjandi hyggst verja styrknum.
Menntamálaráðuneytið 10. september 1993.
Innritun
í eftirtalin námskeið:
Hugtakatengsl (5-6 og 7-8 ára), mál og hugsun (9-10
ára), ráögáturog rökleikni (11-12 ára), siðfræði (13-14
ára).
Upplýsingar og innritun í síma 628283.
Húsnæði óskast
Hjón með tvö böm, 19 og 11 ára, óska eftir hús-
næði til leigu, 4ra herbergja eða stærra. Reglu-
semi og skilvísum greiðslum heitið.
Upplýsingar í síma 91-687113.