Tíminn - 11.09.1993, Qupperneq 12
12 Tíminn
Laugardagur 11. september 1993
Alþjóðlega
sjávarút-
vegssýning-
in í Laugar-
dal. Ellen
Ingvadóttir,
blaðafulltrúi
sýningar-
innar:
Stórviðburöur fyrir útveg
við Norður-Atlantshafið
Gildi sýningar sem þessarar er það að viðskiptasam- Þetta er fjórða sjávarútvegssýning-
böndum fjölgar og íslensk framleiðsla fær kynningu in sem breska fyrirtækið Reed Exhi-
uffýrir landsteinana. Þá er sýningin ekki hvað síst mjög bitions heldur hér á fslandi í sam-
mikilvæg landkynning," segir Ellen Ingvadóttir, blaðafulltrúi vinnu við íslenska aðila í sjávarút-
Sjávarútvegssýningarinnar í Laugardal sem hefst á mið- °£*,ð?a*\nfílingm
uiknHan haldin hér ánð 1984 og upp frá þvi á
Litla/stóra alvöru
Vacuumpökkunarvélin
fyrir minni framleiöendur
Ýmsir hafa komib meö litlar ódýrar vélar fyrir
minni framleiöendur og stór heimili. Flestar
þessara véla hafa veriö án lofttæmihólfs og
meö um eöa innan viö 90% lofttæmingu
sem er gagnslaus! Henkelman sem er
einn stærsti og
virtasti framleiöandi
vacuumpökkunarvéla,
hefur nú komiö meö
litla og ódýra alvöruvél.
Henkovac Junior,
sem lofttæmir 99,5%
sem þýöir geymsluþol
eins og stóru vélarnar.
POfDSllaDB
Fyrstu Junlor vélarnar eru
á sérstöku kynningarverbi til
20. september, svo framarlega
sem birgbir endast.
75.000 + vsk.
þriggja ára fresti. „Ástæða þess að
sýningin er haldin hér er, eins og
framkvæmdastjóri hennar Pat Fost-
er bendir á, sú að ísland byggir af-
komu sína á sjávarútvegi. Uppistað-
an í atvinnu- og efnahagslífi Iands-
ins eru fiskveiðar og fiskvinnsla.
Ég get bætt við þetta frá eigin
brjósti að við njótum álits sem fisk-
veiðiþjóð, sem leggur stund á veiðar
og vinnslu með nýjustu og bestu
tækni og aðferðum, og stöndum
mjög framarlega á þeim sviðum.
Auk þess hef ég á tilfinningunni að
ísland hafi á sér ímynd ferskleika og
hreinleika og mér kæmi ekki á óvart
að einmitt það sé ein af ástæðum
þess að sýningin er haldin hér.
Þá vil ég geta þess sérstaklega að
það er ánægjulegt að nú taka þátt í
sýningunni þó nokkur fyrirtæki frá
fyrrverandi A-Þýskalandi,“ segir El-
len ennfremur og bætir við að fjöldi
þátttakenda frá einstökum löndum
sé nokkuð mismunandi, en með
einn stærsta sýningarbás erlendra
þjóða séu Norðmenn. Þá komi á
sýninguna sendinefndir embættis-
og áhrifamanna í sjávarútvegi frá
ýmsum löndum, þar á meðal austan
frá Kína.
Mikiö fyrirtæki
Sjávarútvegssýningin er mikið fyr-
irtæki og þátttakendur í henni eru
að þessu sinni um 480 talsins og ríf-
lega fjórðungur þeirra eru íslenskir
aðilar. Þátttakendur eru að sögn EU-
enar örlitlu færri en á síðustu sýn-
ingu, en hins vegar má búast við því
að ýmsar byltingarkenndar nýjung-
ar verði kynntar nú og ekki færri en
á undanfömum sýningum.
„Sýningin hefur gífurlegt gildi fyr-
ir íslendinga. Hún hefur ekki bara
almennt kynningargildi gagnvart
þeim erlendu gestum, sem koma
vegna hennar, heldur er hún ekki
síður mikilvægt verkfæri til þess að
kynna á erlendum vettvangi ís-
lenska sérþekkingu á sviði veiða og
vinnslu, sem er mjög mikil. Þannig
erum við vaxandi á sviði tækni og
búnaðar sem sérhæfður er fyrir fisk-
veiðar og -iðnað. Þar nægir að nefna
það starf sem Marel, Pólstækni, Jós-
afat Hinriksson toghleraframleið-
andi og margir fleiri hafa unnið á
þessum sviðum.
í sambandi við sýninguna má nefna
fjölmargt sem er athyglisvert. Það,
sem þó hefur vakið athygli mína, er
að vægi hugbúnaðar fyrir veiðar og
vinnslu fer sífellt vaxandi. Án þess að
ég sé að varpa rýrð á aðra þátttak-
endur í sýningunni, þá held ég að
það verði mjög athyglisvert að sjá
hvernig tölvur og hugbúnaður eru
notuð við gæðaeftirlit í vinnslu,
aukna nákvæmni í vigtun, skurði og
bættri nýtingu hráefnisins.
Fiskiskip eru orðin mjög tækni-
vædd og sem dæmi má nefna að nú
er með hjálp nýs tölvu- og hugbún-
aðar hægt að stýra trolli í sjó og
þannig draga stórlega úr hættu á
skemmdum á því. Með þessum
tæknibúnaði verður hægt að spara
stórfé, þar sem veiðarfæri, ekki síst
troll, eru mjög dýr. Þessi nýja tækni
er meðal þess sem kynnt verður á
sýningunni, auk margs annars til
nota bæði á sjó og landi.
Ómetanleg kynning á
íslensku hugviti
Gildi sýningarinnar og sýninga af
þessu tagi fyrir íslenskan sjávarút-
veg og iðnað er auðvitað fyrst og
fremst það að kynna íslenska fram-
leiðslu, sem er mjög mikilvægt, ekki
hvað síst nú á tímum atvinnuleysis
og efnahagslægðar. Þarna gefst færi
á að kynna íslenska tækniþekkingu
og iðnað, auk íslenskra sjávarafurð'
en ekki bara gestum, heldur eru
jafnan mjög mikil samskipti milli
einstakra þátttakenda í sýningunni
og á þann veg myndast fjölmörg og
áríðandi viðskiptasambönd."
Viðburður meðal
erlends sjávarútvegs-
fólks
Að sögn Ellenar kemur mjög mikill
fjöldi útlendinga á sýninguna að
þessu sinni sem endranær, enda hef-
ur Sjávarútvegssýningin skapað sér
alþjóðlegan orðstír meðal sjávarút-
vegsþjóða sem viðburður ársins fyr-
ir sjávarútveg við N- Atlantshaf. Síð-
ast þegar hún var haldin komu um
12 þúsund manns, bæði íslenskir og
erlendir, til að skoða hana. Ekki
verði fyrirfram vitað hve margir
muni koma nú, en vonast sé til þess
að gestir verði ekki færri en þá.
—sá