Tíminn - 11.09.1993, Síða 15
Laugardagur 11. september 1993
Tíminn 15
Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra iðnrekenda:
Sýningin hefur ekki sölu-
gildi, en eykur tengslin
Q vona sýning er af hinu góða, svo framarlega sem
hún er ekki haldin of ofi Gildi hennar er nú frekar
fýrír sjávarútvegsgeirann sjáHan, að eiga aðgang að
þeim nýjungum sem hafa orðið frá síðustu sýningu,“
segir Gunnar Svavarsson, formaður Félags íslenskra
iðnrekenda, í samtali við Tímann.
Hann segir að þó að Sjávarútvegs-
sýningin sé alþjóðleg og á hana
komi einhver hundruð útlendinga,
þá sé hún fyrst og fremst fyrir Is-
Íendinga.
„FVrir þá sem sýna, þ.e. íslensk fyr-
irtæki, þá er gagnið aJf þessu fyrst og
fremst það að þar koma allir við-
skiptavinir saman á einn stað og
tengslin við þá aukast, í stað þess að
venjulega fara samskiptin fram í
gegnum síma.“
Gunnar segir að lítið sé um að
menn komi inn á sýningar sem
þessar, sjái einhveijar nýjungar og
gangi frá kaupum á þeim. „Sýningin
hefúr ekki beint sölugildi og það
verður að segjast eins og er, að það
Gunnar Svavarsson.
er lítið um að fyrirtæki selji mikið á
svona sýningum. Þetta er hins vegar
ágætt tækifæri til að vekja athygli á
einhverju eða kynna sig til sögunn-
ar. Venjulega þurfa fyrirtæki að taka
þátt f nokkrum sýningum til að
sannfæra markaðinn um að þama sé
fyrirtæki sem komið er til að vera,
en ekki einhver loftbóla."
Gunnar segir sýninguna hér á landi
vera svipaða að stærð og sambæri-
legar sýningar erlendis. „Sýningin
hér á landi hefur kannski haft dálít-
ið öðruvísi yfirbragð, þar sem meiri
áhersla er lögð á mál f kringum
veiðar og tæki þeim tengdum; lítið
er um fiskeldi, sem vill gjaman
trufla aðrar sýningar."
Gunnar segir sýningu eins og þá,
sem haldin er hér á landi, af hinu
góða, svo framarlega sem þær séu
ekki of margar. „Mér finnst þær hins
vegar vera of margar og vera of þétt.
Stundum vilja þær einnig verða of
dýrar fyrir þátttakendur og gallinn
er sá að þeir em svo sundurleitur
hópur að þeir geta ekki komið sér
saman um á hvaða sýningu á að
stefna og hverjum á að sleppa. Það
vill oft verða til þess að þeir neyðast
til að taka þátt í sýningum, sem þeir
hafa engan áhuga á að fara á. Það er
dýrt að taka þátt í svona sýningum,
en þátttakan kostar á bilinu frá
hálfri milljón til tvær milljónir."
-PS
Hótelin í Reykjavík fyllast vegna fjölda erlendra gesta, sem sækja
Sjávarútvegssýninguna í Laugardal:
Um 600 erlendir gest-
ir sækia sýninguna
„Islensk gæði“ HACCP-gæðakerfi
Ritið íslensk gæði, gæðakerfi fyrir fiskvinnslu-
stöðvar, leiðbeiningar til að byggja upp gæða-
kerfi m.t.t. áhættumats og mikilvægra eftirlits-
staða, HACCP-KERFI, fæst nú á aðeins 25.000
kr. án vsk. Vinsamlega sendið pantanir til MIÐs,
pósthólf 7113, 127-Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma
91-28027.
Að sögn Hrannar Greipsdóttur,
sölustjón í ráðstefnudeild Úrvals-
Útsýnar, sem sér um að bóka
stærstan hluta þeirra gesta sem
hingað koma vegna sýningarinnar,
eru hátt á þriðja hundrað eriendra
gesta búnir að bóka gistingu.
Hrönn sagði að búast mætti við að
um þijú hundruð aðrir bóki gist-
ingu beint eða gisti hjá vinum og
kunningjum og því væri ekld ótrú-
legt að um 600 eriendir gestir komi
á sýninguna.
Sýningargestir koma víðsvegar að
úr heiminum. Flestir þeirra koma
frá Noregi, Danmörku, Bretlandi og
Þýskalandi, auk gesta frá fjarlægari
löndum eins og Nýfundnalandi,
Kína og Bangladesh. „Það er ekkert
land sem stendur upp úr, en mér
finnst þó vera miklu meira af Dön-
um nú en áður," sagði Hrönn. Hún
segir að um svipaðan fjölda erlendra
gesta sé að ræða nú og komu í
tengslum við sýninguna árið 1990,
þrátt fyrir að stór hópur frá Noregi
hafi afþantað um 80 herbergi á Hót-
el Loftleiðum til að mótmæla veið-
um íslendinga í Smugunni svoköll-
uðu.
Varðandi hótelpláss segir Hrönn að
hótelin séu sem betur fer að fyllast,
þó afpöntun Norðmannanna hafi
verið skellur. Hótelin næst Laugar-
dalshöllinni fyllist strax og mikið sé
bókað í önnur hótel.
Hrönn segist finna fyrir því að það
sé kreppa í þessum sjávarútvegi víða
um heim. „Mér finnst þeir aðilar,
sem koma hingað í tengslum við
sýninguna, spá meira í það en áður
hvað hlutimir kosta,“ sagði Hrönn
að lokum. -PS
HVÍTUR STAFUR
er aðal hjálpartæki
blindra og
sjónskertra
í umferðinni
BLINDRAFÉLAGIÐ
Diesel-lyftarar 2, 2,5 og 3,5 tonn.
Fáanlegir í stærðum 1-42 tonn.
Rafmagns-lyftarar 2, 2,5 og 3 tonn.
Fáanlegir í stærðum 1/2-5 tonn
ásamt úrvali af hillu- og gólf-lyfturum.
ÖRUGG VARAHLUTAÞJÓNUSTA
Hafið samband við
sölumenn okkar,
sem gefa allar upp-
lýsingar um þessa
frábæru lyftara.
Ingvar
Helgason hf. vélasala
Sævarhöföa 2, SÍMI 91-674000.
Vertu öruggur! Notaöu
gaffallyftara
Vestur-þýskir RAFM&GNS- OG DIESELLYFTAfíAfí
í hágæðaflokki — Viðhaldskostnaður ílágmarki