Tíminn - 18.09.1993, Side 24
Áskriftarsími
Tímans er
686300
NÝTTOG
FERSKT
DAGLEGA
reiðholtsbakarí
VOLVUFELL113-SlMI 73655
^fliabriel
HÖGG-
DEYFAR
Verslið hjá fagmönnum
ftjvarahlutir
Hamarshöfða 1
Hamarshöfða 1
Simi676744
Tímimi
LAUGARDAGUR 18. SEPT. 1993
dressa upp
viðskipta-
fræðinga
Tölvunefnd virðist hafa tor-
veldað Sævari Karli það ætlun-
arverk hans að hjálpa nýjum
viðskiptafræðingum að hressa
upp á útlitið áður en þeir legðu
út í lífið. í ársskýrslu nefndar-
innar fyrir 1991 kemur m.a.
fram að Sævari Karli hafi verið
synjað um heimild til að fá lista
yfir nöfn og heimilisföng
þeirra sem útskrifast úr við-
skiptadeild HÍ þetta ár, þar sem
Háskólinn hafi ekki starfsleyfi
ti! afhendingar og áritunar íyr-
ir aðra á nöfnum og heimitis-
föngum tiltekinna hópa. En af
hverju langaði Sævar Karl ekki
líka í nöfn og heimilisföng lög-
fræðinga, lækna, presta og t.d.
hjúkrunarfræðinga?
Alþýðuflokkurinn sér um sína þegar ráðið er í stöður hjá hinu opinbera:
Karl Steinar ráðinn for-
stjóri TVyggingastofnunar
Guðmundur Ámi Stefánsson, heilbrigðis- og tryggingaráðherra,
hefur skipað Kari Steinar Guðnason alþingismann í starf forstjóra
Tryggingastofnunar ríksins og mun hann taka viö embættinu um
næstu mánaðamót.
Heilbrigðisráðherra segir að helstu
rökin fyrir ákvörðun sinni sé að Karl
Steinar hafi góða grunnmenntun,
þekkingu af stjómunarstörfum og
reynslu af verkalýðsmálum. Ráð-
herra blæs á allt tal um að hann sé
að hygla samflokksmanni sínum og
vísar á bug öllum vangaveltum í þá
veru að ákvörðun um ráðningu Karl
Steinars hafi verið tekin þegar hann
var gerður að ráðherra í sumar og
segir það vera dæmigert ráðabrugg
og samsæriskenningar sem runnar
séu undan rifjum stjómarandstöð-
unnar.
Að hans mati er Karl Steinar „hæf-
astur meðal jafningja" en alls sóttu
13 um stöðu forstjóra TVygginga-
stofnunar. Meirihluti tryggingaráðs
mælti með þeim Hilmari Björgvins-
syni, Jóni Sæmundi Sigurjónssyni,
Karli Steinari, Kristjáni Guðjóns-
syni og Pétri H. Blöndal.
Einn fulltrúi í tryggingaráði, Sig-
ríður L. Baldursdóttir, skilaði sér-
áliti en hún mælti með ofangreind-
um að undanskildum Karli Steinari
og Hilmari Björgvinssyni, en bætti
Ólínu Torfadóttur í hópinn.
Ráðning Karls Steinars Guðnason-
ar í stól forstjóra Tryggingastofnun-
ar er enn einn minnisvarðinn um
Guðmundur Áml tilkynntl um ráðn-
ingu Karfs Steinars á blaðamanna-
fundi f gær. Tímamynd Aml BJama.
stefnu Alþýðuflokksins þegar kemur
að skipan manna í opinberar stöður.
Skemmst er að minnast skipan Jóns
Sigurðssonar í embætti seðlabanka-
stjóra, Eiður Guðnason hefur afhent
Noregskonungi trúnaðarbréf sitt
sem sendiherra í Noregi, varaþing-
maður flokksins í Reykjavík tekur
við embætti veðurstofustjóra um
næstu áramót og þá hefúr fyrrver-
andi aðstoðarmaður Sighvats Björg-
vinssonar ráðherra, Þorkell Helga-
son, verið skipaður ráðuneytisstjóri.
Hið sama gerði Eiður Guðnason í
tíð sinni sem umhverfisráðherra
þegar hann skipaði Magnús Jóhann-
esson í embætti ráðuneytisstjóra í
umhverfisráðuneytinu, en Magnús
hafði áður verið aðstoðarmaður
Eiðs. -grh
Ráðning í stöðu forstjóra Tryggingastofnunar dregur dilk á eftir sér:
Meðferð tryggingaráðs kærð
til umboðsmanns Alþingis
MeAferð tryggingaráðs á umsókn-
um um starf forstjóra Trygginga-
stofnunar ríkisins hefur verið kærð
tíl umboðsmanns Alþingis. Kæran
byggir á því að ráðið hafi ekki gegnt
lagaskyldu sinni um að gera tíllögu
tíl heilbrígðisráðherra um ráðningu
forstjóra. Ráðið hafi einungis gefið
umsögn um umsækjendur.
Það er Jón Sveinsson lögfræðingur
sem kærir meðferð tryggingaráðs
fyrir hönd umbjóðanda síns. Um-
bjóðandinn er einn af þeim 13 sem
sóttu um stöðuna, en hann vill ekki
gefa upp nafn sitt að svo komnu
máli.
í 3. grein laga um almannatrygg-
ingar stendur: „Ráðherra skipar for-
stjóra Tryggingastofnunar ríkisins
að fengnum tillögum trygginga-
ráðs.“ Jón Sveinsson segir í bréfi
sem hann hefur sent heilbrigðisráð-
herra og umboðsmanni Alþingis að
þessi lagatexti geri alls ekki ráð fyrir
að tryggingaráð veiti umsögn um
umsækjendur. Þess háttar umsögn
tryggingaráðs sé heldur ekki að
finna annars staðar í lögum. Trygg-
ingaráði sé hins vegar skylt að gera
tillögu eða tillögur um umsækjend-
ur ef ráðið er ekki sammála. Á þessu
tvennu, „umsögn" og „tillögu", sé
verulegur munur.
Jón segir í bréfinu að málsmeðferð
tryggingaráðs sé vafasöm og eigi sér
vart stoð í lögum. Hún sé raunar
meiðandi fyrir hluta umsækjenda,
þá sem samkvæmt umsögn ráðsins
teljist vanhæfir. Jón fer fram á það
við ráðherra að hann hlutist til um
að ráðin verði á bót í samræmi við
skýlaus lagaákvæði.
Jón sendi heilbrigðisráðherra þetta
bréf snemma í gærmorgun. Þrátt
fyrir að hafa fengið bréfið gekk ráð-
herra frá ráðningu á Karli Steinari
Guðnasyni í stöðu forstjóra þá um
morguninn. í framhaldi af því
óskaði Jón Sveinsson eftir því við
umboðsmann Alþingis að hann tæki
málið til umfiöllunar.
-EÓ
Sjö sóttu um skattstjora-
embætti á Vestfjörðum:
Elinu
Fjármálaráðherra hefur sett El-
ínu Ámadóttur f embætti skatt-
stjóra Vestfiarðaumdæmis frá
næstu mánaðamótum. Elín er
32 ára að aldri, lauk lögfræði-
prófi frá HÍ haustið 1989 og hef-
ur síðan verið starfsmaður ríkis-
skattstjóra.
Sex aðrir kepptu við Elínu um
stöðuna. Af þeim eru nafn-
greindir Guðmundur Halldórs-
son viðskiptafræðingur, Harald-
ur Þór Teitsson viðskiptafræð-
ingur og Jónas Guðmundsson
lögfræðingur. Hinir þrír óskuðu
nafhleyndar. - HEI
Verð á skinku í dönskum stórmörkuðum kringum 686 krónur, 6%
hærra en í Hagkaup:
Leggur Hagkaup
minna á danska
skinku en íslenska?
DENNI DÆMALAUSI
Samkvæmt verðkönnun sem gerð var í stórmörkuöum í Danmörku
í ágústbyrjun er algengt verð á sambærilegri skinku og þeirri sem
Hagkaup hefur flutt inn 66 Dkr. á kíló, eða um 686 kr. íslenskar.
Hagkaup hefur tilkynnt að það
hygðist selja innfluttu skinkuna á
649 kr. kílóið, sem er 37 kr. lægra
verð en út úr búð í Danmörku. „Með
hliðsjón af innflutningskostnaði má
því gera ráð fyrir að Hagkaup hafi
ætlað sér að selja dönsku skinkuna
með lágri álagningu á sama tíma og
það seldi íslensku skinkuna með
a.m.k. 40% álagningu," segir í til-
kynningu frá Upplýsingaþjónustu
landbúnaðarins.
„Innlendir framleiðendur hljóta að
krefiast þess að Hagkaup láti inn-
Ienda framleiðslu sitja við sama
borð og erlenda. íslensk skinka sam-
bærileg þeirri dönsku kostar 1.199
krAg. út úr búð. Ef Hagkaup lækk-
aði álagningu úr 40% í 10% mundi
smásöluverð hennar lækka í 922
krAg. Það er 30% hærra verð en á
dönsku skinkunni, ekki 70% hærra
eins og Hagkaup tilkynnti á sínum
tíma,“ segir UL.
Þann 30% verðmun megi að veru-
legu leyti rekja til aðstöðumunar
innlendra og danskra svínakjöts-
framleiðenda, þar sem þeir dönsku
njóti góðs af niðurgreiddu fóður-
verði og rýmri heilbrigðisreglum.
Þannig sé danskt svínafóður t.d. iðu-
lega íblandað fúkkalyfium og jafnvel
vaxtarhvetjandi hormónum, sem
bannað er að nota hér á landi.
Það er sagt algengt að skinka sé
seld með 40-45% álagningu hér á
landi. Smásöluálagningin sé 27-
30%. Við hana bætist magnafsláttur,
sem algengt sé að veittur sé á heild-
sölustigi, oft á bilinu 3-10%. Þar til
viðbótar fái smásalamir ýmsan ann-
an „óbeinan" afslátt, svo sem vaxta-
lausan gjaldfrest og endurskilarétt á
vöru með útrunninn dagstimpil.
Þessi afsláttur virðist sjaldan skila
sér í lægra vöruverði. - HEI