Tíminn - 29.07.1995, Side 19
Laugardagur 29. júlí 1995
19
Jakobína Guðrún Halldórsdóttir
frá Drangsnesi
Fædd 14. maí 1900
Dáin 22. júlí 1995
Móöir mín er látin. Hún fæddist í
Reykjavík í .■Bjarnarfirði, Stranda-
sýslu, 14. maí árið 1900, en lést 22.
júlí síðastliðinn, 95 ára gömul. For-
eldrar hennar voru Halldór J.ónsson
á Svanshóli, sonur Jóns Arngríms-
sonar frá Krossnesi, sem kominn
var af Jónasi Jónssyni í Litlu-Árvík,
hirðmanni Jörundar hundadaga-
konungs, og Ingibjörgu blindu
Guðmundsdóttur, prests í Árnesi.
Móðir Halldórs var Guðríður Páls-
dóttir frá Kaldbak, af Pálsætt á
Ströndum og Glóaættinni. Móðir
hennar var Þorbjörg Kristjánsdóttir,
Kristjánssonar frá Hellissandi, Ein-
arssonar á Kvenhóli í Dalasýslu,
Einarssonar, og móðir Þorbjargar
var Júlíana Jónsdóttir, bónda Ing-
ólfsfiröi, Helgasonar á Geirmundar-
stöðum, Hafliðasonar.
Systur móður minnar, Þórunn og
Kristjana, eru báðar látnar. Hún
giftist 1928 Páli Elíasi Bjarnasyni og
bjuggu þau fyrst í steinhúsinu á
Drangsnesi, en reistu nýbýli, Mýrar,
á landi Drangsness 1930. Þau
stunduðu þar búskap auk þess sem
faðir minn stundaði vinnu sem til
féll á Drangsnesi. Um 1952 fluttu
. þau aö Drangsnesi og dvöldu þar
fram yfir 1980, en voru á þessu
tímabili í nokkur ár á Akureyri, en
komu aftur, og þegar ellin lagðist
yfir fluttu þau á Dvalarheimilið í
Skjaldarvík í Eyjafirði og enduðu
æviárin á Hlíð, Akureyri.
Börn foreldra minna eru fimm
talsins: Ingimar, giftur Ástu Bjarna-
dóttur, búsettur í Reykjavík; Þor-
björg, gift Frímanni Haukssyni, bú-
sett á Akureyri; Ester, gift Bjarna
Jónssyni, búsett á Akureyri; Bjarni,
sambýliskona Gyða Steingrímsdótt-
ir, búsett á Mýrum, Drangsnesi; Sól-
rún, gift Sigmari Ingvarssyni, búsett
í Kópavogi. Afkomendur eru rúm-
Iega 30.
Útför móður minnar verður gerð
frá Drangsneskapellu í dag, laugar-
t MINNING
daginn 29. júlí, og veröur hún jarð-
sett viö hlið manns síns í Kaldrana-
neskirkjugarði.
Fratn á úfinn œgissal
áar sóttn kjark og þor.
Út meb ströndu, inn í dal,
okkar lágu bemskuspúr.
Lifi og dafiii gróin grund,
gömul lifi cevintýr.
Lifi halur, lifi sprund,
lifi um aldir sveitin hýr.
(I.E.)
Bernskuspor móður minnar og
þeirra, sem hún unni, lágu um
nyrstu sveitir Strandasýslu. Hún
óskaði þess aö grundirnar greru og
byggðin héldist um aldir. Hún var
mikil hannyrðakona, prjónaði og
heklaði á listrænan hátt. Lang-
ömmubömin, sem fengu húfur,
peysur eða vettlinga fyrir jólin,
syrgja gömlu konuna og segjast
aldrei framar fá fallegt frá lang-
ömmu.
Hún ólst upp á Svanshóli hjá
móður sinni, því foreldrar hennar
skildu. Hún var einnig á Kaldrana-
nesi hjá föður sínum og vinnukona
á Eyjum hjá Guðjóni og Kolfinnu.
Má segja að útfyrir sveitina sína fór
hún ekki að óþörfu.
Móðir mín var lágvaxin kona,
létt á fæti, skapgóö að upplagi og
spurul, sumir flokka það undir for-
vitni, en þeir sem aldrei spyrja
neins vita jafnan lítið. Afkomendur
hennar þakka fyrir samfylgdina og
biðja henni allrar gubsblessunar.
Þessi fátæklegu orð mín vil ég enda
þannig:
Þeim lýsti trú, uns lífi sleit,
og landsins fomu dyggöir.
Þau efndu vel sín œskuheit
um œvilangar tryggöir.
Þau saman litu hinstu höf
og háa veöurklakka,
þau saman eina gista gröf.
(Stefán frá Hvítadal)
Blessuð sé minning hennar.
lngimar Elíasson
A5 geta hvergi höföi hallaö
The Homeless, eftir Christopher Jencks.
Harvard University Press, 161 bls., S 17,95.
„Heimilisleysi var eitt sinn
talið persónuleg ógæfa lítils
hóps manna, sem heillum voru
horfnir. En heimilisleysi hefur
nú umbreyst í eitt helsta félags-
lega vandamál Bandaríkjanna,
pólitískt viðkvæmnis- og
ágreiningsmál. Illa á sig komið,
oft örvilnaö, fólk, fólk á götum
borga landsins hefur á skeiði að-
eins tveggja áratuga orðið sjón,
sem sárindum veldur. Hin
feiknarmikla fjölgun þeirra
gengur þvert á allar gagnráðstaf-
anir stjórnvalda." Svo sagði í rit-
dómi í New York Times Book
Review 1994 um bók þessa, en
höfundur hennar er prófessor í
félagsfræðum viö Northwestern
University.
„í bók sinni fjallar Jencks um
hina „sýnilega heimilislausu",
þ.e. um „alla þá, sem sváfu á al-
mannafæri í tiltekinni viku". Af
heimildum, sem ýmsir aðilar
hafa saman dregið, telst honum
svo til, að þeir hafi verið
300.000 til 400.000 í mars 1987
(en frá þeim tíma eru viðamestu
heimildirnar, sem hann vísar
til). Ef á hann er gengiö, fæst
hann til að færa tölu þeirra upp
í 500.000, en hvorar heldur eru
til marks hafðar, eru þær víðs
fjarri fyrri áætlunartölum, sem
fóru upp fyrir þrjár milljónir.
Meðal annarra orða, þessar vel-
grunduðu áætlunartölur hans
munu óþægur ljár í þúfu höf-
í FinanciaL Times 20. maí 1994, í
fylgiblaði World Taxation, sagði
um skattavinjar: „Skattavinjar,
eyjavar, lágskattasvæði — hvað
sem þau nefnast reynist þeim allt í
kringum hnöttinn erfiðara en áður
að laða til sín stórfyrirtæki og auð-
uga einstaklinga. ... Þau leita að-
stoðar ráðgjafa til að halda íviln-
unum sínum á loft. — Á meðal
þeirra ber bókhaldsstofur hátt:
Price Waterhouse er ráðgjafi Gíbr-
altar, KPMG Peat Marwick aðstoð-
ar Möltu og Trinidad & Tobago,
svo að dæmi séu tekin. — Komiö
hefur til óviðurkvæmilegrar tog-
streitu á milli skattavinja. Út gefa
Fréttir af bókum
undum nýlegrar, básúnaðrar
skýrslu frá ríkisstjórn Clintons,
en þeir segja heimildir vera um
sjö milljónir heimilisleysingja í
Bandaríkjunum, sem vænti að-
þær æ fleiri glæsta kynningarbæk-
linga og boða til æ fleiri alþjóð-
legra ráðstefna. Eyjan Mön keppir
við Ermarsundseyjar, og meira að
segja hinar ráðsettu Jersey og Gu-
ernsey eru komnar í hár saman.
Hafa þær leitað fulltingis al-
mannasamskiptastofa til að halda
kynningarfundi í London, París og
öðrum helstu borgum til að verða
sér úti um viðskipti."
„Jafnframt hefur skattavinjum
fjölgað mjög. Og neyta þær sí-
breytilegra aðferða til að draga til
sín vibskipti. Gera þær ný boð,
breyta skattalögum, draga úr kröf-
um um birtingu reikninga og slaka
gerða stjórnvalda.... Jencks sýn-
ist sem tala heimilisleysingja
hafi fjórfaldast frá 1980 til 1988,
meðan bæjarstjórnir, einstök
ríki og stofnanir sambandsríkis-
ins reyndu að sporna við fjölg-
un þeirra. í leit að skýringum á
þeirri óvæntu fjölgun metur
hann ýmsa þætti, sém til heim-
VIÐSKIPTI
á skráningarskilyrðum."
„Caroline Doggart, höfundur yf-
irlits yfir skattavinjar (Tax Havens
and Their Uses, Economist Intellig-
ence Unit, £ 75), segir Campione á
landamærum Sviss og Ítalíu hafa
orbið fyrsta skattavinin, þegar
bæöi löndin frábáðu sér fjárráð
héraðsins. — Einn sá nýlegasti,
sem gengur á lag gildandi milli-
ríkja- skattasamninga, er Labuan
undan Malasíu. Og rifi á milli
Tonga og Fiji er ætlað að verða
ilismissis geta leitt: Brottsend-
ingu geðveilla úr stofnunum á
áttunda áratugnum, sóttkennda
aukningu á neyslu eiturlyfja á
níunda áratugnum, breytingar á
fasteignamarkaði, ríkisframlög-
um, hámarksleigu, atvinnuleysi
og hjúskaparháttum."
fyrsta neðansjávar-skattavinin! —
Þeirra á milli eru margar skatta-
vinjar, margar í hlýju loftslagi:
Bermúda, Bahamaeyjar, Cayman-
eyjar, Bresku Jómfrúreyjar, Cook-
eyjar o.s.frv. En aörar eru í köldu
loftslagi: Ermarsundseyjar, eyjan
Mön, Falklandseyjar, Svalbaröi og
Ascension. Aörar eru landluktar,
svo sem Lúxemborg, Lichtenstein
og jafnvel Albanía."„Doggart bein-
ir einnig sjónum að ólíklegum lág-
skattasvæöum, ekki síst Bretlandi,
sem er óbúsettum enn mjög álitleg
lágskattavin, og að Bandaríkjun-
um í samanburði vib mörg evr-
ópsk lönd." ■
Næöir um skattavinjar?
DAGBÓK
210. dagur ársins -155 dagar eftir.
30. vika
Sólris kl. 04.23
sólarlag kl. 22.43
Dagurinn styttist
um 6 mínutur
Regnboginn sýnir Geggj
un Georgs konungs
Regnboginn hefur hafið sýn-
ingar á bresku myndinni The
Madness of King George, eba
Geggjun Georgs konungs.
Mynd þessa ætti í raun að vera
óþarft að kynna, svo mikla um-
fjöllun sem hún hefur fengið, og
margir vita að Nigel Hawthorne
var tilnefndur til Óskarsverðlauna
fyrir leik sinn í titilhlutverkinu,
þó að hann hreppti þau að vísu
ekki. Auk þess var myndin sjálf
tilnefnd til fjögurra Óskarsverð-
launa, og hlaut þar af ein, fyrir
bestu „listræna stjórn" (art
direction).
Myndin er byggð á sögulegu
efni, sem sé síðari æviárum Ge-
orgs III. Englandskonungs, sem
þjáðist af kynlegri geðbilun og var
ab lokum sviptur völdum.
Meö aðalhlutverkin fara, auk
Hawthornes sem leikur konung-
inn ógæfusama, Helen Mirren
(Karólína drottning), Rupert Ever-
ett (prinsinn af Wales) og Ian
Holm (læknir konungs).
Handrit myndarinnar samdi
Alan Bennett og byggði þaö á
samnefndu leikriti sínu. Leikstjóri
er Nicholas Hytner.
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Dansað í Goðheimum, Sigtúni
3, kl. 20 sunnudagskvöld.
Þeir, sem eiga pantað far í Borg-
arfjarðarferðina, vinsamlegast
sækið miðana fyrir kl. 15 á þriðju-
dag. Nokkur sæti laus.
Sumarkvöld viö orgelib
í dag, laugardag, kl. 12-12.30
leikur Roger Sayer, organisti í
dómkirkjunni í Rochester í Eng-
landi, á orgel Hallgrímskirkju. Að-
gangur ókeypis. Sayer leikur einn-
ig annað kvöld, sunnudag, kl.
20.30. Á þeim tónleikum verða
verk eftir Charles Marie Widor,
Howard Howells, Norman Coc-
ker, Guy Bovet, Barry Ferguson,
Petr Eben og Maurice Duruflé.
Aðgangseyrir 800 kr.
Heyannadagurá
Árbæjarsafni
Hinn hefðbundni heyannadagur
verður á Árbæjarsafni á morgun,
sunnudag. Þá veröur túnið við Ár-
bæinn slegið með orfi og ljá og síð-
an verður rakað, rifjað, tekið saman
og bundið í bagga upp á gamla mát-
ann. Gestir eru hvattir til að taka
þátt í heyskapnum að vanda.
Einnig verður dönsk harmón-
íkuhljómsveit undir stjórn hinn-.
ar frægu Gitte Sivkjær á staðnum
og mun hún leika við Hólms-
verslun kl. 15.
Samsýning í Hveragerbi
Þorbjörg Pálsdóttir og Hannes
Lárusson halda myndlistarsýn-
ingu í Heilsustofnun Náttúru-
lækningafélags islands í Hvera-
gerði. Sýningin verður opnuð á
morgun, sunnudag, kl. 15 og
stendur fram í september.
í fréttatilkynningu stendur
m.a.:
„Þorbjörg Pálsdóttir glímir í
verkum sínum einkum við tengsl
hugarástands og líkamsstellinga.
... í höggmyndum Þorbjargar,
sem allar vísa til mannslíkamans,
er að finna algjöran samruna
milli stellinga, stöðu eða hreyf-
ingar, og hugarástands eba innra
lífs. ...
Hannes Lárusson fæst fyrst og
fremst við myndmálið og hvernig
það tengist menningarlegum bak-
grunni."
TIL HAMINGJU
Þann 24. júní 1995 voru gefin
saman í Háteigskirkju af séra
Úlfari Guðmundssyni, þau Sól-
borg Ingadóttir og Einar
Hreinsson. Heimili þeirra er að
Barmahlíð 5, Reykjavík.
Ljósmyttdastofa Sigríðar Bachmann