Tíminn - 14.10.1995, Blaðsíða 4

Tíminn - 14.10.1995, Blaðsíða 4
^Wii Laugardagur 14. október 1995 limw STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: jón Kristjánsson Ritstjórnarfulltrúi: Oddur Olafsson Fréttastjóri: Birgir Cuömundsson Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík Sími: 563 1600 Símbréf: 55 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Mynda-, plötugerb/prentun: ísafoldarprentsmi&ja hf. Mánaöaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verö ílausasölu 150 kr. m/vsk. Leiöin til friðar og framtíð Nató Nú er beðið milli vonar og ótta um það hvort vopnahlé, sem lýst hefur verið yfir í Bosníu, er skref til varanlegs friðar eða ekki. Ljóst er að sú leið er vandrötuð og þau sár, sem styrjaldarátök og þungar fórnir mannslífa og verð- mæta skilja eftir sig, verða ekki grædd á skömmum tíma. Allir hljóta þó að vona að vopnahléð haldi og tóm gefist til þess að ræða framtíðarskipan mála í þessu stríðshrjáða landi. Það er augljóst að þungar loftárásir Natóherj- anna breyttu stöðunni milli aðila í umsátrinu um Sarajevo. Hitt er einnig augljóst að vaxandi afskipti Bandaríkjamanna af ástandinu þarna og þáttur Holbrookes, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkja- stjórnar og sérstaks samningamanns í málefnum Balkanskaga, hefur verið mikilvægur. Það er hins vegar langt í frá að öruggur friður sé kominn á, en jafnljóst er að ef það tækifæri, sem nú er til sam- komulags, glatast, eru miklar hörmungar fram- undan. Á sama tíma og þessir atburðir gerast á Balkan- skaga ræða stjórnmálamenn beggja vegna Atlants- hafsins um framtíð Nató og þróun samtakanna. Þjóðir Mið- og Austur-Evrópu sækja á um aðild að samtökunum, og eru ástæðurnar efnahagslegar og pólitískar ekki síður en hernaðarlegar. Stjórnmála- mönnum í Ungverjalandi, Póllandi og Tékklandi, svo dæmi séu nefnd, er mikið í mun að taka þátt í samstarfi Vesturlanda á sem flestum sviðum, og telja það þjóna bæði efnahagslegum og öryggisleg- um markmiðum. Þetta veldur hins vegar vandkvæðum í sambúð- inni við Rússa. Þeim er ekki um það gefið að aust- urmörk Natósvæðisins fylgi landamærum Rúss- lands, og ákvæði stofnsáttmála samtakanna um sameiginlegar varnir gildi fyrir þjóðir sem eiga landamæri að Rússlandi. Kosningar eru framund- an í Rússlandi og það er einnig óttast að þessi at- burðarás geti ýtt undir þjóðernis- og einangrunar- sinnuð öfl þar í landi. Þessi mál eru því vandmeðfarin fyrir Natóríkin, og nauðsyn ber til að rækta samband við Rússa eins vel og kostur er. Hins vegar má ekki heldur loka dyrum á þær þjóðir sem knýja á um aðild. Stefna íslensku ríkisstjórnarinnar hefur verið að styðja stækkunina, en fara með gát í þessu efni og setja ekki ákveðin tímatakmörk um aðgerðir. Það er mjög áríðandi að Nató missi ekki trúverð- ugleika í þessum jafnvægisdansi. Á þessum tímum er styrk stjórn samtakanna afar áríðandi. Mútumál framkvæmdastjóra þeirra gat vart komið upp á óheppilegri tíma. Bandalagið er beinn þátttakandi í stríðsátökum, þeim mestu í sögu sinni, og við- kvæm stefnumótun fer einnig fram um afstöðuna gagnvart Austur-Evrópu. Til þess að meðhöndla þessi mál þarf óskipta starfsorku manns sem nýtur trausts allra. Birgir Gubmundsson: Framsóknarmenn allra flokka Ungir framsóknarmenn í Reykjavík héldu fund í vikunni um nýgeröan búvörusamning og fengu Guömund Bjarnason landbúnaöarráöherra og Jón Baldvin Hannibalsson formann Alþýöuflokksins til aö vera frummælendur. Eins og eflaust fleiri ákvaö sá sem þetta ritar aö sleppa beinni útsendingu í sjón- varpi frá landsleiknum við Tyrki en fara þess í stað á fundinn enda viðbúiö að þar yrði mikil pólitísk flugeldasýning — tveir landsliðsmenn úr pólitíkinni aö takast á um heitt mál. Því er skemmst frá aö segja aö þó fundurinn hafi ábyggilega verið skemmtilegri en landsleik- urinn, létu pólitísku flugelda- sýningarnar á sér standa og kannski var merkilegasta atriðið á þessum fundi einmitt það hversu lítill pólitískur ágreining- ur var á milli þessara (meintu?) andstæöu skauta í landbúnaðar- málum. Varfærinn málflutn- ingur Jón Baldvin er vissulega ekkert allt of hrifin af búvörusamn- ingnum eins og hann kemur af skepnunni. En málflutningur hans er þó fjarri því aö vera skil- yröislaus gagnrýni og fordæm- ing. Þvert á móti fagnar Jón Baldvin fjölmörgum hugmynd- um í samningnum og gagnrýni hans beinist fyrst og fremst að því að menn hafi ekki endað í útfærslum, sem líklegar eru til aö skila tilætluöum árangri. Yfir- vegun og varfærni formanns Al- þýðuflokksins í þessari gagnrýni var slík aö ég hélt um tíma aö hann ætlaöi í forsetaframboð og vildi því engan styggja. Svo er þó sennilega ekki því hann átti líka kunnuglega spretti þar sem hann talaöi um ofstjórnaráráttu framsóknarmannanna í ríkis- stjórnarflokkunum og hvérsu hún skerti dómgreind þeirra. Þemaö í málflutningi Jóns Bald- vins á þessum fundi var þó að í búvörusamningnum fælust já- kvæð markmiö og hann gekk meira að segja svo langt, bæöi á þessum fundi og í útvarpsviötali daginn eftir aö fagna því sérstak- lega aö Framsóknarflokkurinn heföi nú séð aö sér í landbúnað- armálum og ætlaöi loksins að brjóta upp kerfið. Hann sagðist geta tekiö undir með frelsaran- um, aö það væri meira fagnaðar- efni þegar einn syndari sneri aft- ur en 99 réttlátir. En þaö er rétt aö halda gagn- rýninni líka til skila og Jón Bald- vin segist vissulega uggandi um framkvæmdina og útfærsluna og sérstaklega ab menn væru aö draga þaö í tvö ár aö afnema kvóta og verölagningarkerfiö. Þannig taldi hann til dæmis að trúlega væri samningurinn of dýr og hann efaðist líka um aö birgða og neysluforsendur stæö- ust. Hann virðist líka í vafa um aö tilboð um uppkaup séu nægj- anlega girnileg til aö hafa tilætl- uö áhrif. Kerfisbreytingin Gubmundur Bjarnason lagöi á þessum fundi, og hefur líka gert þaö annars staöar, áherslu á ab hér sé verið aö gera samning um kerfisbreytingu og þess vegna séu líkurnar meiri til aö hann gangi upp en sá síðasti. Það er einmitt þessi kerfis- breyting, þar sem sauöfjárræktin fetar sig út úr núvernadi kvóta og verðlagn- ingakerfi, sem menn virðast sammála um að koma til fram- kvæmda. Ágreining- urinn er hins vegar um útfærsluna og e.t.v. hvert hraðahá- markiö eiga að vera á þeirri ferö. Hinn pól- itíski ágreiningur er m.ö.o. ekki nærri eins djúpstæö- ur og slagorðin og kalkúnalapp- akómedían gætu gefið tilefni til aö ætla. Þaö virðist því engum vafa undirorpiö lengur aö Jón Baldvin er kominn í hlóp „fram- sóknarmanna allra flokka", svo innilega glaður er hann yfir „syndaranum sem sneri aftur". Rétt er að rifja upp að búvöru- samningurinn er samningur tveggja aðila, en ekki tilskipun ríkisstjórnarinnar. Hann er því heldur ekki óskaniöurstaða neins sem aö honum stóð. Ríkis- stjórnarflokkarnir og bænda- samtökin hafa einmitt bent á þetta, en jafnframt undirstrikaö aö það sé betra aö semja um ein- I tímans rás hverja málamiðlun en láta máliö dankast og springa svo í loft upp. Vægi gagnrýni Jóns Bald- vins á tekníska útfærslu samn- ingsins ber þar af leiðandi ekki aðeins að skoöa í ljósi þess sem Jón Baldvin hefur sagt um mark- miö samningsins. Hann veit auövitaö sem reyndur stjórn- málamaöur að stjórnmálin snú- ast ekki um ab berjast viö vind- millur ýtrustu hugsjóna. Þau snúast um að gera þá hluti sem - eru mögulegir og í þessu tilfelli ráðast möguleikarnir aö miklu leyti í samningaviðræöum. Framsóknararmur kratanna Hin nýja pólitíska staða, sem komin er upp í þessu búvöru- samningsmáli öllu saman, er að Jón Baldvin Hannibalsson birtist sem leiötogi framsóknararms Al- þýöuflokksins og gagnrýnir tæknilega útfærslu ■samningsins vegna þess aö hún muni ekki virka nægjanlega vel til ab ná fram hinum góöu markmiðum. Þetta er nákvæmlega sama staöa og virðist uppi með leiðtoga framsóknararms Sjálfstæöis- flokksins, Egil Jónsson. Hann hefur kvatt sér hljóös, eins og Jón Baldvin, um búvörusamn- inginn og sagt stefnumörkunina ásættanlega (markmiðin) en ým- is útfærsluatriði gölluö. Egill nefnir raunar heimaslátrunina sérstaklega til sögunnar í þessu sambandi og hefur lýst áhyggj- um sínum yfir því að hún muni aukast. Vissulega koma koma þessir tveir „framsóknarmenn allra flokka" að málinu úr nokk- uö ólíkum áttum, en þeir fallast í fabma í þessu máli, nokkuð sem hlýtur ab teljast til pólitískra tíð- inda. En þaö er þó ekki hægt aö leggja gagnrýni þeirra fóst- bræöra alveg aö jöfnu. Annars vegar er stjórnarandstæöingur sem ekki hefur haft tækifæri til að sétja mark sitt á samnings- gerðina. Hins vegar er varafor- maður landbúnaöarnefndar og landbúnaöarmógúll í öðrum stjórnarflokknum sem stendur að gerð samningsins. Auk þess vekur athygli aö Egill er ekki einn þingmanna Sjálfstæöis- flokksins sem er að skapa sér sér- stöðu í þessu máli, þeir eru marg- Baktrygging? Auðvitað getur enginn veriö viss um aö samningur til langs tíma, samningur sem þar að auki er málamiðlun, muni ganga eftir í einu og öllu. Þaö væri raunar merkilegt ef svo væri og engir hnökrar kæmu upp. Hins vegar þykir almennt drengilegt að þeir sem gera slíka samninga og standa að þeim, reyni aö fylkja sér um þá niðurstöðu sem fæst, þó svo aö veriö sé aö taka ein- hverja pólitíska áhættu. Þess vegna kemur heldur ekki á óvart að undiralda sé meðal fótgöngu- liðsins í Framsóknarflokknum, þar sem sú skoðun heyrist aö hópur sjálfstæöisþingmanna sé að kaupa sér pólitíska tryggingu gagnvart því aö búvörusamning- urinn misheppnist að einhverju eða öllu leyti. Þeir geti þá síöar vísaö til þess að þeir hafi alltaf verið með efasemdir um hann. Framsóknarmaður, sem hringdi á ritstjórn Tímans í gær- morgun, haföi einmitt orð á þessu og taldi fulla ástæöu til að fylgjast meö því hvort íhaldið ætlaöi aö koma sér undan ábyrgö af búvörusamningnum og láta framsókn eina sitja uppi með málið ef svo illa vildi til aö eitthvað færi úrskeiðis. Þeir hafi jú stundaö þetta í samstarfinu viö krata. Vissulega veröur fróð- legt að fylgjast meö málflutni sjálfstæðismanna í þinginu og þá ekki síður málatilbúnaöi Jóns Baldvins, sem nú er orðinn að einum hinna víöfrægu „fram- sóknarmanna allra flokka". En þar er vitaskuld líka komin skýr- ing á óvæntum kærleikum Jóns og Páls Péturssonar, sem saknar Jóns svo mikið aö hann hrein- lega auglýsir eftir honum úr ræðustól Alþingis og bibur að hann komi sem fyrst úr fríi!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.