Tíminn - 16.03.1996, Qupperneq 14
14
Laugardagur 16. mars 1996
Litla rauba húsib
/ september 1991
komst bandaríski smá-
bœrinn Cabin Creek í
fréttirnar fyrir grófa
naubgun og tvöfalt
morb. Margaret
McClain, 63 ára göm-
ul, hafbi búib í Cabin
Creek allt sitt líf. Hún
var 7 barna móbir,
hafbi komib fimm
þeirra upp, en tvö
höfbu látist ung. Hún
bjó í húsi móbur sinn-
ar og hafbi séb um
hana á fullorbinsár-
um, auk barnanna
sinna fimm, en móbir
hennar var nýlátin.
Margaret var illa haldin af
liðagigt, sem ágerðist
eftir því sem árin liðu.
Svo var komið að hendur hennar
voru hálfstirðnaðar, kræklóttar
og varla til nokkurra nota. Það var
með naumindum að hún gat
klætt sig, hvað þá meira, og hún
þarfnaðist hjálpar viö ýmis störf í
æ ríkari mæli. Það var 'af þeim
sökum sem 36 ára gömul dóttir
hennar, Pamela Castoneda, hafði
flust til móður sinnar og sá um
ýmis verk fyrir hana.
Sagan frá næstu kynslóð á und-
an endurtók sig hvað það varð-
aði. Þær mæðgur höfðu viðurværi
af barnapössun Pamelu, en sá
böggull fylgdi skammrifi aö börn-
in voru í 80 mílna fjarlægö, í St.
Albans. Af þeim sökum dvaldi Pa-
mela yfir virku dagana í St. Al-
bans, en ók síðan til móður sinn-
ar og varði helgunum með henni.
Margaret vildi ekki lifa á opinber-
um styrkjum og því var þröngt í
búi. Til að mynda höfðu þær ekki
efni á síma og því var hvítur Ford
Taurus skutbíll eini tengiliður
þeirra viö umheiminn.
Síðasta heimsóknin
í lok ágúst 1991 óku mæðgurn-
ar til St. Albans í heimsókn til
ættingja. Þennan dag var Margar-
et svo illa haldin vegna sjúkleika
síns aö hún treysti sér ekki út úr
bílnum, heldur lét sér nægja að
tala við fólkið sitt úr bílnum.
Þetta var í síðasta skiptið sem ætt-
ingjar þeirra sáu þær á lífi.
7. september, kl. 16.45, keyrði
vegaeftirlitið fram á mannlausan
bíl, sem lá á hliðinni í skurði
skammt frá þjóðveginum. Hann
virtist hafa runnið til í lausum
vegarkantinum og oltið. Öku-
maðurinn stóð við hlið bílsins, en
afþakkaði alla aðstoð. Hringt var
eftir kranabíl til að fjarlægja bíl-
hræið, en áður en hann kom á
stabinn haföi ökumaður bílsins
yfirgefið vettvang. Síðar varð ljóst
að hann haföi fengib far nokkurn
spöl með ökumanni á mótor-
hjóli. Ekill bifhjólsins tók eftir að
farþegi hans var skrámaður á
höndum og fótum, en virtist ab
ööru leyti heill. Meðferðis hafði
hann bláa íþróttatösku. Þegar
kom að næstu vegamótum skildu
leiöir með þeim, u.þ.b. 500 metra
frá Cabin Creek. Síöar sagði öku-
maður bifhjólsins: „Ég hélt að
hann ætlabi bara að hringja í ein-
hvern út af slysinu og þess vegna
hjálpaði ég honum. Mér sýndist
hann ekki hafa neitt illt í
hyggju."
Margaret McClain.
Tvöfalt morö
Síðar um kvöldiö ætlaði ná-
grannakona Margaret og Pamelu
að heimsækja mæðgurnar. Eng-
inn kom til dyra þegar bankað var
á huröina. Bíllinn þeirra var ekki
við húsib, svo gestunum þótti lík-
legast að mæðgurnar væru ekki
heima. Eitthvab var þó ööruvísi
en þab var vant aö vera og óhug-
ur yfir litla, rauða húsinu. Nóttin
leið, en daginn eftir nánast vissu
nágrannarnir aö eitthvað alvar-
legt hafði gerst.
Þegar í birtingu tóku tvær vin-
konur Pamelu sig til og gengu inn
í húsiö sem reyndist ólæst. Á eld-
húsgólfinu lá Margaret, hreyfing-
arlaus og .allsnakin í blóðpolli.
Gleraugun lágu viö hlið hennar
og svo virtist sem átök hefðu átt
sér stað. Pamela lá aftur í stof-
unni. Lík hennar var hroðalega
leikið — líkskoðun leiddi í ljós að
hún hafði verið stungin með
hnífi 17 sinnum — og líkt og
móbir hennar var hún klæðalaus
sem benti til að þær hefðu verið
svívirtar kynferðislega. Pamela
hélt á hárbrúski sem síðar reynd-
ist vera af henni sjálfri, tákn
hinnar algeru örvæntingar rétt
fyrir andlátið. Flest stungusárin á
líkama kvennanna tveggja voru á
handleggjum og fótum. Þá hafði
einnig verið stungiö á milli fingra
þeirra, sennilega til að hindra þær
í að seilast eftir hnífnum á meðan
morðinginn lauk sér af. íbúðin
var blóði drifin vígvöllur hræði-
legra atburða. Blóð fannst m.a. á
veggjum, húsgögnum og glugg-
um.
Rannsóknin
Hefðbundin lögreglurannsókn
hófst með myndatökum og sýna-
tökum hvers konar, auk líkskoö-
unar og samræöna við nágranna
og kunnuga. Strax var lýst eftir
hvíta skutbílnum auk mannsins
sem lent haföi í umferðarslysinu.
uðum, skítugum bíl" og beöið
hana að útvega sér fjarvistarsönn-
un yfir helgina. Hann var alblóð-
ugur meb skrámur og stungusár
víða um líkamann og mjög
strekktur. Hann rétti henni
myndbandstæki sem „gjöf upp í
greiöann" og spurði síðan hvort
hún myndi ekki hjálpa sér og
votta að hann hefði verið hjá
henni um nóttina. Stúlkunni
varð ekki um sel, þannig að hún
þorði ekki að segja nei. Eftir að
Smith var handtekinn gat hún
hins vegar ekki hugsað sér að bera
ljúgvitni í jafn alvarlegu máli og
ákvað að segja lögreglunni sann-
leikann.
Ruglingslegar hug-
myndir
Það kom á daginn að í síðustu
tið hafði Smith farið að fá rugl-
ingslegar hugmyndir um sjálfan
sig. Hann fór að líta á sig sem lík-
amlegt og andlegt ofurmenni,
sökkti sér niður í rit Nietzsches og
varð heltekinn mikilmennsku-
brjálæöi. Hluta þessa má rekja til
steranotkunar. Meðal annars
krafðist hann að vinir hans köll-
uðu hann Rambó og hann hugð-
ist sýna þeim að hann kæmist
upp með hvab sem væri. Eins og
einn vina hans staðfesti að Smith
hefði sagt: „Fariði bara í bíó og
horfið á Rambó. Hann lætur verk-
in tala og fær borgað fyrir það."
Dómurinn
Eftir þetta var aldrei spurning
um hvort, heldur hversu harðan
dóm Dana December Smith hlyti.
Þrátt fyrir ab ýmis gögn hefðu
veriö vel þegin, s.s. fingraför á
heimili mæðgnanna, morövopn-
ið sjálft (hnífurinn kom aldrei í
leitirnar) eba vitni, þá komst
kviðdómur að þeirri niðurstöðu
að Smith væri sekur.
Dana December Smith var loks
dæmdur í ævilangt fangelsi án
möguleika á náöun og var fund-
inn sekur um tvöfalt morð að yf-
irlögðu ráði, auk kynferðisafbrots
á Pamelu a.m.k. (gögn reyndust
ekki fullnægjandi hvað Margaret
varðaði).
Smith hótaði dómaranum öllu
illu viö dómsorðiö og færa varð
hann í járnum úr réttarsalnum.
Af sérstökum öryggisástæðum var
hann færður í eitt rammgerðasta
fangelsi Bandaríkjanna í Mounds-
ville, Vestur-Virginíu.
Pamela Castoneda.
nema hæfilega bjartsýn á að
moröinginn væri þegar kominn í
hendur hennar. Enda voru engar
sannanir á þessu stigi málsins og
því var Smith sleppt úr haldi gegn
1000 d2la tryggingu daginn eftir.
Hins vegar jukust líkurnar veru-
lega á sekt hins grunaða þegar
Smith reyndist í sama blóöflokki
og blóðið sem fundist hafði á
morðstað. Þetta þótti nóg til að
ákæra Smith fyrir tvöfalt morð,
en hann var á bak og burt. Hann
fannst þó þrem dögum seinna og
var tekinn til yfir-
heyrslu eftir að
honum hafði ver-
ið lesinn réttur
sinn.
Smith þótti
hlægilegt að
hann væri ákærð-
ur fyrir morðin í
Cabin Creek, þar
sem hann sagðist
hafa verið í Log-
an, litlum bæ í 50
km fjarlægð.
Hann neitabi
brátt að tjá sig
frekar um máliö
og heimtabi lög-
fræðing. Þar meö
endaði fyrsta yfir-
heyrslan.
Fingraför
og fleiri
sannanir
Dana December Smith.
SAKAMAL
Gestagangur var það sjaldgæfur í
litla þorpinu að það gat varla ver-
ið tilviljun að sést hefbi til
ókunnugs manns á sama tíma og
morðin tvö voru framin.
Daginn eftir fannst maðurinn
og var hann handtekinn í litlum
bæ, 100 km frá Cabin Creek.
Hann reyndist vera sami maður
og haföi lent í umferöaróhappinu
kvöldið áöur og hét Dana Dec-
ember Smith, 26 ára gamall. Sést
haföi til hans daginn áður á
göngu eftir slysið, með bláa tösku
og stóran veiðihníf í slíðri hang-
andi á vinstri mjöðm.
Smith hafði aldrei komist í kast
við lögin og lögreglan var ekki
í millitíðinni
leituðu menn
enn skutbílsins
hvíta, auk þess
sem ættingjar
mæðgnanna staðfestu að nokk-
urra hluta væri saknaö úr íbúð
þeirra, s.s. myndbands- og út-
varpstækis.
Loks komst skriður á málið þeg-
ar hvíti Taurusinn fannst í gil-
skorningi. í bílnum fundust blóð-
ugar ábreiður og fjöldi fingrafara.
M.a. fingraför Smiths. Svo virtist
sem Smith hefði sjálfur ætlað að
sjá til að bíllinn fyndist aldrei, en
athugull fjallgöngumaður kom af
tilviljun auga á hann nokkrum
mánuðum eftir morðið.
Þegar réttarhöldin hófust reikn-
ubu margir meb að niðurstaðan
yrði þrátt fyrir allt tvísýn og mál-
ið langt frá því að vera í höfn.
Ákæruvaldið leiddi hins vegar
fram vitni, vinkonu Smiths, sem
varpaði nýju og þýðingarmiklu
ljósi á það sem gerst hafði. Smith
hafði komiö heim til hennar
skömmu eftir moröiö, á „ljóslit-