Réttur - 01.06.1946, Side 1
RETTVR TÍMARIT UM ÞJÓÐFÉLAGSMÁL
80. árgangur
2. liefti
1918
Hvernig skal einbeita
orku íslenzka þjóð-
félagsins?
Nýbygging lands vors í nýstofnuðu lýðveldi þjóðar
vorrar er hafin.
Kynslóð feðra vorra tók við landi, sem rúð var eftir
alda áþján, — vegalausu, brúalausu landi, þar sem vart
var steinhús til og timburhús fá, og framleiðslutæki öll
fátækleg fram úr hófi. öld fram af öld höfðu forfeður
vorir orðið að berjast við það eitt að lifa, að halda lif-
andi íslenzku þjóðerni, íslenzkri tungu, íslenzkum bók-
menntum, við svo ömurleg ytri skilyrði, að flestum hefði
orðið slík viðleitni ofvaxin. Meðan moldarhreysin hrörn-
uðu á íslandi, voru byggðar hallir erlendis fyrir arðinn
af vinnu íslenzkrar alþýðu. Meðan íslenzkir fiskimenn
týndu lífinu hundruðum saman á fúnum fiskibátum, óx
auður einokunarherranna erlendis, sem skömmtuðu fs-
lendingum smánarverð fyrir fiskinn og okruðu á útlendu
afurðunum, er þeir seldu þeim. Meðan nágrannaþjóð-
um vorum f jölgaði, fækkaði fslendingum. Og þegar harð-