Réttur - 01.06.1946, Page 2
nÉTTUR
82
ast var, stóð baráttan beinlínis um tilveru íslenzkrar
þjóðar í þessu landi.
Vér höfum á síðustu 150 árum sigrað í þessari bar-
áttu, Islendingar.
Nú stendur baráttan um að vinna upp aldirnar, sem
við höfum tapað.
Engin lcynslóð íslendinga hefur haft eins góð skilyrði
til þess og einmitt kynslóð vor. Auður og tækni, sem
allar undanfarnar kynslóðir skorti, eru lögð upp í hend-
ur vorar, ef vér aðeins kunnum að nota þetta hvort-
tveggja rétt.
Vér þurfum að skapa á einum áratug fullkomnasta
framleiðslukerfi, sem nokkur þjóð hefur í hlutfalli við
stærð hennar. — Slíkt er hægt, ef stjórnað er af viti.
Vér þurfum að reisa íbúðarhús yfir alla þjóðina, —
byggja þetta land, sem heita mátti húsalaust fyrir hálfri
öld, þannig að ekki búi aðrar þjóðir betur, þótt þær
standi á fornum merg efnahagslega. Það er hægt að
vinna slíkt verk á eimlm til tveim áratugum, ef kröft-
unum er varið rétt.
Vér þUrfum að reisa fjölmargar menningarstofnanir
og opinberar byggingar, til þess að skapa þeirri menn-
ingu vorri, sem er tilveruskilyrði og aðall þjóðar vorrar
gagnvart öðrum þjóðum, þau ytri skilyrði, sem hún
þarfnast til þess að þroskast og verða raunveruleg sam-
eign alþjóðar. Og þetta er því nauðsynlegra sem íslenzkt
þjóðerni og erfðamenning verður á komandi árum að
heyja baráttu gegn smekkspillandi og lítillækkandi ó-
menningaráhrifum vesturheimsks auðvalds.
★
Eigi þjóð vorri að takast að lyfta þessu Grettistaki á
efnahagssviðinu á næstu áratugum, þá verður að ein-
beita öllum kröftum hennar að því.
Slíkt stórvirki verður ekki unnið, ef sundrung ríkir
með þjóðinni, ef kröftum eins er varið til þess að arð-