Réttur - 01.06.1946, Qupperneq 12
92
EÉTTUR
D. Landhelgisgæzlan aðskilin Sikpaútgerðinni
Landhelgisgæzlan verði aðskilin Skipaútgerð ríkisins og
falin þeim ráðherra, sem fer með sjávarútvegsmál, jafn-
framt verði landhelgisgæzlan stóraukin.
E. Verzlun með nauðsynjar sjávarútvegsins
Verzlun með nauðsynjar sjávarútvegsins skal hagað
sem hér segir:
Ríkið annist innflutning allra veiðarfæra og efnis til
þeirra (sbr. ákv. um innkaupastofnun þjóðarinnar hér að
framan) og rekur þær veiðarfæragerðir, sem hejpilegt
kann að reynast að reka hér á landi, og selji veiðarfærin
til útgerðarinnar á kostnaðarverði. Á sama hátt verði
verzlun ríkisins með olíu rekin með það fyrir augum, að
útgerðin fái olíuna með kostnaðarverði.
F. Verzlun með sjávarútvegsal’urðir og
gjaldeyriseftirlit
Komið verði upp sérstakri stofnun, er hafi umsjón með
sölu á öllum sjávarafurðum landsins. Stefnt skuli að því,
að sem allra flestar af útflutningsvörum landsins verði
seldar á einni hendi og annist þá þessi stofnun söluna, enn-
fremur skal hún annast útgáfu útflutningsleyfa fyrir
þeim vörum, sem einstaklingum er leyft að selja.
G. Kannsóknir í þágu sjávarútvegsins
a) Hafrannsóknarskip verði keypt til landsins, svo fljótt sem
unnt er.
b) Ríkisstjórnin beiti sér fyrir því, að frv. um atvinnudeild
Háskólans, sem nú liggur fyrir Alþingi, verði samþykkt.
6. Raforka oa stóriðia
a) Flýtt sé svo sem verða má nýjum stórvirkjunum Sogsins
og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu með sérstöku samkomu-