Réttur - 01.06.1946, Page 13
HÉTTUR
D3
lagi við Reykjavíkurbæ og Akureyri, ef verða mætti, að
virkjunum þessum yrði lokið árin 1948—49. Öflugur stuðn-
ingur sé veittur bæjar- og sveitarfélögum við að koma
upp nauðsynlegum raforkuveitum og séu jöfnum höndum
byggðar diesel- og eimtúrbínurafstöðvar og vatnsvirkjanir
eftir því sem við á í hverjum stað. Hveraorka verði virkjuð
í stórum stíl, ef tilraunir leiða í ljós, að það sé hagkvæmt.
b) Undirbúningur með hverskonar nauðsynlegum rannsókn-
um sé hafinn til þess að geta komið upp hér á landi á
næsta áratug stóriðju, sem fyrst og fremst byggi á ódýrri
raforku og vinni úr innlendum hráefnum, sem nú þegar
eru fundin eða finnast kunna við rannsóknir, og erlendum
hráefnum, sem borga myndi sig að flytja inn. Skulu sér-
staklega rannsökuð virkjunarskilyrði Þjórsár og fjárhags-
legur möguleiki á mjög stóru orkuveri, er skapi grund-
völl að stóriðju á Suðurlandsundirlendinu og vélreknum
landbúnaði.
c) Áburðarverksmiðja sé byggð, ef rannsóknir þær, sem nú
standa yfir, leiða í ljós, að það sé asskilegt.
d) Sementsverksmiðju sé komið upp, er fullnægi sementsþörf
landsmanna, strax er jákvætt álit sérfræðinga á málinu
væri fengið.
7. Bvaaincfarstoínun ríkisins
Komið verði upp Byggingarstofnun ríkisins, er hafi þessi
megin hlutverk með höndum:
a) að safna skýrslum um húsnæðisástandið í kaupstöðum og
kauptúnum og gera áætlanir og tillögur um, hvernig bætt
verði úr húsnæðisþörfinni á hverjum tíma.
b) að annast byggingarframkvæmdir fyrir byggingarfélög,
sem njóta opinberrar aðstoðar við byggingarframkvæmd-
ir, ef þau óska þess og fyrir ríkið, sveitarfélög og aðra
aðila, eftir því sem óskað er og við verður komið.
c) að gera teikningar að húsum byggingarfélaga, sem njóta