Réttur - 01.06.1946, Qupperneq 15
RÉTTUR
95
III. Almeim bióðfélaaslea framfaramál
1. Tryggingar
Ríkisstjórnin og stuðningsflokkar hennar beiti sér fyrir
því, að Alþingi samþykki á kjörtímabilinu eftirfarandi löggjöf.
um tryggingar:
a) Lög um viðunandi atvinnuleysistryggingar, sem samin
verði í samráði við Alþýðusamband Islands.
b) Breytingar á þeim kafla laga um almannatryggingar, sem
fjalla um mæðra- og ekknalífeyri, með hliðsjón af breyt-
ingartill. þingmanna Sósíalistaflokksins við frumvarpið.
c) Ennfremur verði látin fara fram endurskoðun á lögum um
almannatryggingar í því skyni að lagfæra ýmis atriði
þeirra og þá fyrst og fremst bæta kjör gamalmenna og
öryrkja.
d) Lög um tryggingar bátaútvegsins gegn skakkaföllum, er
sett verði í samráði við samtök útvegsmanna og Alþýðu-
sambandið.
e) Þær breytingar verði gerðar á lögum um almannatrygg-
ingar, er tryggi yfirráðarétt hinna tryggðu yfir fram-
kvæmd trygginganna í hverju tryggingarumdæmi.
2. Áætlun um bvaaingar
Gerð verði áætlun um byggingu skóla, sjúkrahúsa, lækn-
ingastöðva, heilsuverndastöðva, barnaheimila og menn-
ingarstofnana, er felld verði inn í heildaráætlun um fram-
kvæmdir í landinu. Með lögum verði að fullu tryggt nægi-
legt lánsfé til þessara bygginga, að svo miklu leyti, sem
bein framlög frá því opinbera ekki hrökkva til.
3. Örvaai við vinnu
nEndurskoða skal núgildandi löggjöf um öryggi sjómanna
og endurbæta ákvæðin um eftirlit með skipum. Ennfremur
skal setja lágmarkskröfur um aðbúnað sjómanna.