Réttur - 01.06.1946, Side 17
RÉTTUR
97
10. Bær í Ölfusi
Komið verði upp bæ í Ölfusi samkvæmt tillögum, er Ný-
byggingarráð hefur nú til meðferðar.
11. Séráætlun um ræktun og hagnýtingu
hvera í Árnes- ocr Ranaárvallasvslum
Séráætlun um ræktun og hagnýtingu hvera og vatnsorku
Árnes- og Rangárvallasýslna á næstu 10 árum, sé undirbúin
og framkvæmd, þegar samkomulag er fengið, en byggt þó í
höfuðatriðum á drögum, er nú liggja fyrir 1 Nýbygginga-
ráði.
IV. Dvrtíðin oq vandamál í sambandi við hana
1. Ríkisstjórnin geri ráðstafanir til þess að hindra vöxt dýr-
tíðarinnar svo sem frekast er kostur:
a) Auk þeirra aðgerða, sem þegar hafa verið nefndar til að
stórauka tæknina og koma á fullkomnara skipulagi í
atvinnu- og verzlunarmálunum, skulu gerðar sérstak-
ar ráðstafanir, til þess að hægt sé að framleiða mun
ódýrari landbúnaðarafurðir og skal gert nánara sam-
komulag þar um.
b) Höfð séu ströng verðlagsákvæði og verðlagseftirlit
samfara skömmtun vara, eftir því sem þurfa þykir.
c) Fullkomin eignaskráning samfara seðlainnköllun sé
látin fara fram til þess að leggja nýja skatta og
skyldulán á þá, sem mest hafa grætt undanfarin ár og
ekki goldið skatt af nema nokkrum hluta þess. 1 því
sambandi verði endurskoðuð skattalöggjöfin og hluta-
félagalöggjöfin, í því skyni að komið verði sem mest í
veg fyrir skattsvik framvegis.
d) Sé beirri aðferð beitt að borga vísitöluna niður, þá sé