Réttur


Réttur - 01.06.1946, Page 27

Réttur - 01.06.1946, Page 27
RÉTTUR 107 og þeir, sem áttu meira en 20 hundruð „eiga byssu, boga og langspjót fyrir hvern sinn vígfæran mann“ o. s. frv. Einnig voru ákvæði um virkisgerð, varðhöld og merkjakerfi o. fl. Dómsmenn komast svo að orði, að þeir dæmi þennan dóm til lögréttunnar. Hitt er þó auðsætt, að málið hefur verið kæft niður, hvaða rök sem til þess hafa legið. Vopnadómur kemur aldrei fyrir Alþingi og kemst aldrei í framkvæmd, nema hvað Magnús heldur sjálfur uppi vopnuðu fylgdarliði. Upp frá þessu fer vopnaburði og vopnaeign landsmanna stórhrakandi, og í lok 16. aldar þykir það slíkum tíðindum sæta, að íslendingur eigi vopn, að hann fær nafn af því og er kallaður Vopna-Teitur. Hans er síðast getið um 1605. Aíleiðingar afvopnunarinnar Vera má, að vopnaleysið hafi dregið eitthvað úr mannvígum innanlar Is, en þó er það óvíst. Hitt er aftur á móti sannað mál, að það hafði það í för með sér, að íslendingar urðu öldungis berskjaldaðir fyrir árásum er- lendra sjóræningja, en það voru alltíð fyrirbrigði um þessar mundir. Beið þjóðin af þeim mikið afhroð bæði á eignum og mönnum, og nægir að minna á Tyrkjaránið 1627, er 356 íslendingum var rænt og 43 drepnir. Messu- gerðir og galdraljóð voru einu varnartæki landsmanna gegn þessum ófögnuði , og hrökk hvort tveggja skammt, slíkt hið sama dugur og forsjá Dana. Þá má og telja víst, að vopnleysið hafi haft nokkur áhrif á afstöðu íslendinga gegn ágangi konungsvaldsins. Þetta vald var nú að vísu miklu sterkara en fyrr, rís- andi borgarastétt og aukin hertækni höfðu rennt undir það nýjum stoðum. Með siðbótinni hafði það stóraukið eignir sínar og áhrif á íslandi og sveigt hugmyndakerfi og kennimenn kirkjunnar til þjónustu við sig. Hin nýja

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.