Réttur


Réttur - 01.06.1946, Page 31

Réttur - 01.06.1946, Page 31
R É T T U R 111 Gterlingspund tonnið, en er leitað var tilboða í Ráðstjórnar- ríkjunum og Tékkóslóvakíu nú í ár, buðu þessi lönd 63 pund fyrir tonnið, og varð það til þess, að Unilever varð einnig að greiða sama verð fyrir það lýsi, sem til Bretlands fór. Og um þessar mundir berast enn hærri tilboð frá Ráðstjórnar- ríkjunum. Fyrir fáum árum var fundin upp aðferð til að gera lýsi nothæft til smjörlíkisframleiðslu (með því að losa það við lýsiskeim og lykt), og gerir hún lýsiö vitanlega stórum verð- meira. Þessa veromætisaukningu getum við þó ekki hagnýtt okkur til nokkurrar hlítar nema við losum okkur að fullu úr klóm hringsins. I þessu skyni er nú verið að koma upp lýsisherzluverksmiðju hér á landi. Með því að við herðum lýsið sjálfir, vinnst það tvennt, að lýsið verður í sjálfu sér stórum verðmætari útflutningsvara en áður og við getum selt hana hverju því landi, sem hefur smjörlíkisverksmiðjur, þó að það hafi ekki herzluverksmiðju. Eykur það markaðs- möguleika okkar stórkostlega, því að eins og sakir standa eru það aoeins sárafá lönd, sem eiga herzluverksmiðjur óháð- ar Unilever. Ekki þarf að efa, að Unilever lítur óhýru auga fyrirætlanir okkar um eigin lýsisherzlu og mun leita ráða til að viðhalda einokunaraðstöðu sinni. En það er bót í máli, að við stöndum engan veginn einir í baráttunni við liringana. Hráefnalöndin, nýlendur og hálfnýlendur, rísa nú æ ákveðnar gegn hringa- valdinu, og verzlunarpólitík Ráðstjórnarríkjanna nú eftir stríðið er augsýnilega við það miðuð að hnekkja einokunar- valdi hringanna í heiminum. Sú stefna Ráðstjórnarríkjanna að bjóða stórhækkað verð í ýmis mikilvæg hráefni, sem hring- arnir hafa hingað til setið einir að, skapar nýtt viðhorf í við- skiptamálum heimsins og getur orðið hráefnalöndunum ómet- anleg hjálp í baráttu þeirra fyrir efnahagslegu og stjórn- málalegu sjálfstæði. Grein sú, sem hér fer á eftir, er þýdd úr sænskri bólc, Det moderna trust- och kartellvásenet, eftir Thorsten Ohde. Bók- in er að vísu frá 1932, en þessi kafli er þó enn í fullu gildi svo langt sem hann nær. Þýð

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.