Réttur


Réttur - 01.06.1946, Page 39

Réttur - 01.06.1946, Page 39
RÉTTUR 119 Mikið hefur borið á þeirri viðleitni í ritsmíðum eftir- stríðsáranna að kenna Sovétríkjunum um misklíð og árekstra, er orðið hafa í samskiptum þeirra við Bretland og Bandaríkin. Og hefur kenningin um „tortryggni þeirra gagnvart borgaralegum umheimi“ verið notuð sem rök- semd í þessum efnum. Sé um sálrænt fyrirbrigði af þeim toga að ræða, er hitt öldungis víst, að það á rök sín og rætur í veruleikanum, að því er Sovétríkin varðar. Sá, sem vill skilja utanríkispólitík ráðstjórnarinnar, má aldrei láta sér gleymast, að rússneskir verkamenn og bændur, eiga sára og ríka reynslu að baki, bæði frá tímabilinu upp úr valdatökunni, frá innrásarstríðunum og reyndar frá síðari árum. Allt fram að annarri heimsstyrjöldinni var Rússland umkringt f jendaflokki, — það voru er.gir ímyndaðir fjandmenn, heldur fjandsamleg öfl, íklædd holdi og blóði, búin með stál og gull. Og í augum Rússa var Finnland engan veginn óvið- komandi smáríki, að afstaða þess og stjórnmálastefna skipti þá engu máli. Landfræðileg afstaða landsins ein saman girti fyrir slíkt. Jafnvel árið 1919 hafði brezka íhaldsblaðið ,,The Times“ komizt svo að orði í ritstjórn- argrein um Finnland: „Þegar litið er á landabréfið, er auðsætt, að Eystrasalt er hægasta leiðin til Pétursborg- ar og skemmsta og greiðfærasta brautin liggur um Finn- land. . . . Finnland er lykillinn að Pétursborg, Péturs- borg lykillinn að Moskvu“ (,,The Times“ 17. apr. 1919). Og þar með er ekki öll sagan sögð. Það veltur ennfrem- ur á afstöðu Finnlands, hvort Sovétríkin geta stytt víg- línu sína í vestri um meira en 1000 km., ef til ófriðar dregur á þeim slóðum. Svona ,,lítilræði“ verður tæpast virt að vettugi. En hér kom fleira til. Sa.mskipti hins sjálfstæða, finnska ríkis við Rússland byltingarinnar höfðu verið helzt til óheppileg frá byrjun, bæði í lok fyrri heims- styrjaldar og eins meðan á innrásarstríðunum stóð. Og

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.