Réttur


Réttur - 01.06.1946, Page 43

Réttur - 01.06.1946, Page 43
RÉTTUR 123 Þó versnaði sambúðin enn, er það kvisaðist, að þýzka stjórnin hefði boðizt til að taka ábyrgð á landamærum Finnlands gegn ákveðnum skilyrðum. Átti þetta að hafa gerzt 3. júní 1939, og skilyrðin voru þessi: 1) Þýzka- land skyldi fá þrjár minniháttar eyjar í Finnska flóa til 15—50 ára. 2) Þýzkaland skyldi fá þrjá flugvelli fyrir herflugvélar í Finnlandi. 3) Finnland skyldi auka her- skipaflota sinn með pöntunum frá Þýzkalandi. 4) Álands- eyjar skyldu víggirtar. Frétt þcssi var aldrei staðfest af opinberri hálfu, en víst er um hitt, að um þessar mundir var Finnland mjög undir áhrifum Þjóðverja. Og mánuði síðar kom þýzki herráðsforinginn Fritz Halder í opinbera heimsókn til Finnlands. Hann fór ásamt finnskum herforingjum í eftirlitsferð til að skoða virkin á landamærunum. Erkko, finnski utanríkisráðherrann, hélt mikið hóf fyrir Þjóðverja í Helsingfors. Þar hélt Halder ræðu, þar sem hann gaf eftirfarandi opinbera yf- irlýsingu: „Finnland mun velja rétta veginn, einnig þeg- ar syrtir að“. Þá var það, að til máls tók einn af fulltrúum hinnar „norrænu hlutleysisstefnu", finnski utanríkisráðherrann Yuho Eljas Erkko. Hann stóð ekki upp til að afbiðja þýzk afskipti af finnskum innanríkismálum. Ónei, en til- gangurinn var að koma eftirfarandi kveðju á framfæri: „Vér bjóðum yður hjartanlega velkominn sem fulltrúa hins heiðri krýnda þýzka hers, sem við dáum fyrir frá- bær og einstök afrek. Við minnumst þeirrar miklu hjálp- ar, er Þýzkaland veitti oss, er mest syrti að. Gildi þcirrar aðstoðar lýsir sér bezt í þeirri staðreynd, að flestir þeir liðsforingjar, er hér eru staddir, hafa hlotið hernaðar- lega menntun í þýzka hernum. Þýska herstjórnm hefur og sýnt oss einstaka velvild, eftir að erfiðustu árin voru um garð gengin, og við metum þrð ákaflega mikils“. Þannig lýsti „hlutlaus" utanríkirmálaráðherra aðdá- un sinni á Ieiðtogum þess hers, er hafði þá fvrir nokkrum

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.