Réttur - 01.06.1946, Page 51
R É T T U R
131
og þegar vatnsperlur myndast á köldu glasi. Leikhús jarðar að
opna til hinnar miklu hátíðasýningar kvöldsins, er konur standa
við búðarglugga, eins og engin þuríi að ílýta sér.... Ó, friðsæíd
kvölda án fangaklefa, kvölda, þegar enginn er að deyja næst
manni. Skyidi svipur hans sveima hingað á kvöldi sem þessu, eftir
að hann væri drepinn í alvöru? þarna fyrir handan, í náttmyrkri
var sveitin sofandi, og háu, beinvöxnu epplatrén með eppiin sín
fallin allt í kring, og fjöllin og skógar, og sofandi dýr um hálfa
jörðina; og hér naut fólksfjöldinn lífsins, brosti næturbrosum eða
steyptist í dauðann með sveigum hans og líkkistum; þessi slcyn-
semdarsnauði, andvaralausi múgur, sem heyrði eklci svar sjálfs
sín við dauðaógninni sem falin var uppi i stjarnbjörtum viðernum;
múgur, sem eklci einu sinni þekkti rödd sjálfs sin; með dynsláandi
hjartað kæft af umbrotum og hávaða hversdagslífsins, sem Kassner
var nú að koma heim til, er hann var í þann veginn að finna konu
sína og barn.
Hann var kominn að húsinu, sem þau áttu heima í. Hann tók
að ganga upp stigana. Skyldi hann vakna af draumi í klefa sínum?
Hann barði að dyrum, en ekki var svarað, barði fastar, en sá þá
miða hjá dyrastafnum niður við þröskuld: „Eg er i Lucerna".
Anna starfaði mikið meðai þýzku flóttamannanna, og Lucerna var
einn stærsti fundarsalur í Prag. Hann yrði að ná í kommúnista-
blaðið. Hann starði hugsunarlaust á dyrnar, illa á sig kominn, en
þó hafði honum létt. Hún hlaut að hafa heyrt um handtökuna og
hann hafði aldrei getað horft kvíðalaust til þeirrar stundar er þau
fyndust. Skyldi barnið ekki sofa bak við þessa bannsettu hurð? Nei,
það hefði vaknað, þegar hann bankaði. Og Anna hefði ekki skilið
það eitt eftir.
Þegar honum var sleppt, og aftur, þegar flugvélin hafði sig út
úr óveðrinu ,hafði honum fundizt að henni væri bjargað, en eklci
sér, og fannst illa með sig farið að finna hana ekki heima. Hann
fór niður aftur og keypti blaðið: Leikhús. .. . Kvikmyndir. .. . Luc-
erna: Fundur fyrir þýzku andfasistufangana. Slíkir fundir voru
vikulega. Einnig þar var hún hjá honum.
★
Fundurinn minnti Kassner bæði á heimsmeistarakeppni og mark-
aðsdag i þorpi. Jafnframt var sem ógn hvíldi yfir honum. Fimmtán
til tuttugu þúsund manns hnöppuðust saman, umkringdir lögreglu-