Réttur


Réttur - 01.06.1946, Page 60

Réttur - 01.06.1946, Page 60
140 RÉTTUR umlukti líkama hennar, var hœgt qg hægt að taka hann til sín. „Líklega er ég að hugsa um hvað ég eigi að segja við þig, af því ég á bágt með að hugsa um nokkuð annað, sagði hún, „en það er ekki þess vegna að ég finn ekki það rétta. Ég qr ekki alltaf ham- ingjusöm kona, ég á erfiða ævi.... Og samt er ekkert í heiminum dásamlegra — ekkert — en að vita af drengnum. Og ég skuli eiga hann. Ég hugsa til þess að hér i borginni eru fimm þúsund — tíu þúsund börn. Og þúsundir kvenna, sem eftir stutta stund taka léttasóttina, (hún byrjar næstum alltaf milli eitt og tvö á nótt- unni), og bíða. Með angist, að vísu, en líka í öðrum hug. Öðrum hug, sem orðið gleði nær hvergi nærri til. Og ekkert annað orð. Og frá upphafi vega hafa allar nætur verið slikar." Af rödd hennar réð hann, að feimni, eða ef til vill falinn og hjá- trúarkenndur kviði, kæmi henni til að láta gleði sína einungis í ljós i myndum þeim, sem alltaf höfðu lifað með henni óvissutim- ann. Það heyrðist til drengsins. En hann grét ekki; masaði við sjálfan sig. „Þú varst í Þýzkalandi þegar hann fæddist. Ég vaknaði og leit á hann, svo örlitinn í vöggunni, og hugsaði að lif hans ætti eftir að verða það sem allt líf er, og ég sárgrét yfir honum og yfir sjálfri mér.... Ég var svo máttfarin, að tárin streymdu án afláts, en samt vissi ég að frá þeirri stundu átti ég það sem var sterkara en sorg....“ „Karlmenn fæða ekki börn“. Hann varð að einblina á andlit konunnar, sem harin hafði haldið látna. „En samt, í fangaklefunum er þeim lífsnauðsyn að eiga eitthvað raunverulegt, eitthvað lifandi, eins djúptækt og sársauka.... Gleð- in á ekkert mál.“ „Fyrir mér var gleðin tónar". „Ég hef orðið andstyggð á tónum." Hún ætlaði að spyrja um ástæðuna, en lét það vera. Hann fann að hún hlustaði eftir honum fremur með líkamanum en huganum, eins og móðir, og skildi miklu meira en hann sagði. Sú hugsun var að veltast fyrir honum, að maðurinn hefði,orðið maður þrátt fyrir fangaklefa, þrátt fyrir grimmd; og virðingin fyrir manninum, og ekkert annað, gæti orðið sársauka yfirsterkari. .. . En honum fannst nóg að horfa á Önnu, hann þurfti ekki að hugsa. Það var barið á

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.